Innlent

Opna þakið á þeim hluta sem brennur ekki

Samúel Karl Ólason og Bjarki Sigurðsson skrifa
Eldurinn kom upp í þvottahúsi Vasks á Egilsstöðum.
Eldurinn kom upp í þvottahúsi Vasks á Egilsstöðum. Vísir/Daníel Cekic

Mikill eldur logar í húsnæði Vasks á Egilsstöðum. Vaskur er þvottahús, efnalaug og verslun með hreinlætisvörur, skrifstofuvörur, hljóðfæri, víngerðarefni, búsáhöld, leikföng og hannyrðavörur. Þvottahús er í húsinu þar sem talið er líklegt að eldurinn hafi komið upp.

Guðmundur framkvæmdastjóri Vasks segir líklegt að eldurinn hafi kviknað í þvottahúsinu en hann viti það þó ekki fyrir víst. Hann segir sem betur fer ekkert fólk hafa verið innandyra þegar eldurinn kviknaði.

Eldur logar í nokkrum bílum við húsnæðið.Tristana Sól Kristjánsdóttir

Húsnæðið stendur í ljósum logum og slökkvilið reynir hvað það getur til að slökkva eldinn.

„Þetta er altjón,“ segir Guðmundur aðspurður hvort ekki sé ljóst að tjónið sé hrikalegt. Um sé að ræða fjölskyldufyrirtæki.

Uppfært klukkan 18:06:

Haraldur Geir Eðvaldsson, slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum á Austurlandi, segir í samtali við fréttastofu að verið sé að opna þakið á þeim hluta hússins sem enn er heill.

„Við erum að reyna að komast í þetta þeim megin frá. Það hefur gengið vel ennþá. Þetta er mikil vinna og erfitt viðureignar. Eldurinn hefur borist í bíla og eitthvað dót fyrir utan en ekki í neinar byggingar,“ segir Haraldur. 

Búið er að kalla til slökkviliðið á Seyðisfirði og Fáskrúðsfirði sem aðstoðar við slökkvistörf. Þá eru björgunarsveitir á svæðinu að aðstoða. Mikinn reyk leggur frá eldinum og hafa íbúar á svæðinu verið beðnir um að loka gluggum.

Í færslu á Facebook-síðu Vasks segir að allir hafi sloppið ómeiddir úr húsinu. Starfsmenn fyrirtækisins segja það mjög leiðinlegt og sárt að sjá húsnæði fyrirtækisins brenna niður.

Austurfrétt greindi fyrst frá. 

Myndir eða myndbönd

Ertu með myndir eða myndbönd frá vettvangi? Sendu okkur endilega í tölvupósti eða WeTransfer á ritstjorn@visir.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×