Þrjú mörk dæmd af í fjörugu jafntefli Brighton og Englandsmeistaranna Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 24. maí 2023 21:00 Brighton vörnin hélt Håland í skefjum. Nick Potts/Getty Images Englandsmeistarar Manchester City gerðu 1-1 jafntefli við Brighton & Hove Albion í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Fyrir leik hafði Pep Guardiola, þjálfari Man City, hrósað Roberto De Zerbi, þjálfara heimamanna, í hástert. Það má segja að ekkert hafi verið undir í kvöld, gestirnir höfðu tryggt sér titilinn og Brighton hafði í fyrsta skipti í sögu félagsins tryggt sér þátttöku í Evrópukeppni á næstu leiktíð. Þrátt fyrir það var fyrri hálfleikur nokkuð skemmtilegur en báðir þjálfarar stilltu upp sínum sterkustu liðum ef frá er talið að Stefan Ortega var í markinu hjá Man City. Danny Welbeck átti þrumuskot í marksúlurnar á marki Man City áður en Phil Foden kom gestunum yfir eftir snögga sókn. Erling Braut Håland fékk sendingu inn fyrir en lagði boltann á Foden sem renndi honum í netið. Kaoru Mitoma hélt hann hefði jafnað metin skömmu síðar en markið dæmt af vegna hendi í aðdragandanum. Hinn 19 ára gamli Julio Enciso jafnaði hins vegar metin með mögnuðu marki á 38. mínútu. Hann lét vaða af löngu færi og söng boltinn í samskeytunum. Another special Julio Enciso strike #BHAMCI pic.twitter.com/eCUGSaCu1r— Premier League (@premierleague) May 24, 2023 Undir lok fyrri hálfleiks kom Welbeck boltanum í netið þegar hann lyfti honum yfir Ortega úr þröngu færi en markið dæmt af vegna rangstöðu. Staðan því 1-1 í hálfleik og reyndust það lokatölur þar sem markið sem Håland skoraði í síðari hálfleik var einnig dæmt af. Eru þetta fyrstu stigin sem Man City tapar í deildinni síðan 18. febrúar þegar liðið gerði jafntefli við Nottingham Forest. Að loknum 37 leikjum eru Englandsmeistararnir með 89 stig á meðan Brighton er í 6. sæti með 62 stig. Enski boltinn Fótbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti