Forsvarsmenn Fjármálaeftirlits Bandaríkjanna (FTC) sögðu fyrr í mánuðinum að rannsókn á samruna tveggja fyrirtækja hefði leitt í ljós samráð sem hefði aukið kostnað bandarískra fjölskylda og fyrirtækja.
AP fréttaveitan segir fyrrverandi framkvæmdastjóra Pioneer Natural Resources grunaðan um að hafa átt í samráði við OPEC og OPEC+ með því markmiði að hækka verð hráolíu. Fjármálaeftirlitið samþykkti fyrr í mánuðinum yfirtöku félagsins Exxon Mobil á PNR. Áðurnefndum fyrrverandi framkvæmdastjóra var þó meinað að ganga til liðs við stjórn Exxon Mobil.
OPEC-ríkin eru Alsír, Angóla, Austur-Kongó, Ekvador, Gabon, Írak, Íran, Katar, Kúveit, Líbía, Miðbaugs-Gínea, Nígería, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Sádi-Arabía og Venesúela. Bætist Rússland við og önnur ríki þar sem olía er framleidd en tilheyra ekki OPEC kallast hópurinn OPEC+.
Skýrsla eftirlitsins segir samráðið mögulega hafa kostað hefðbundna fjölskyldu um fimm hundruð dali í eldsneytiskostnað á ári. Það samsvarar tæpum sjötíu þúsund krónum.
Sjá einnig: Ofsagróði hjá olíurisunum eftir innrás Rússa í Úkraínu
Demókratar segja að á undanförnum tveimur árum hafi Exxon Mobil og önnur olíufélög Bandaríkjanna hagnast um rúmlega þrjú hundruð milljarða dala. Það samsvarar rúmum 41 billjón króna (41.000.000.000.000).
Vilja allsherjarrannsókn
Þingmennirnir vilja að starfsmenn FTC hefji allsherjar rannsókn á olíugeiranum og því hvort forsvarsmenn Bandaríkjanna hafi átt í samráði við OPEC. Þeir segja það mögulega varða þjóðaröryggi, þar sem ríki innan OPEC, eins og Rússland og Íran, reyni að grafa undan Bandaríkjunum.
Demókratar hófu sjálfir í síðustu viku rannsókn á því hvort forsvarsmenn olíufyrirtækja hafi lofað Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, einhverju og þá hverju á kvöldverði í apríl. Trump er sagður hafa beðið mennina um milljarð dala til forsetaframboðs síns í skiptum fyrir að draga úr reglum sem eiga að vernda umhverfið og binda enda á tímabundið bann við útflutning jarðgass.
Því hefur einnig verið haldið fram að Trump hafi heitið því að halda eða bæta skattaafsláttum fyrirtækjanna.
Talskona stærstu hagsmunasamtaka olíufyrirtækja í Bandaríkjunum sagði blaðamanni AP fréttaveitunnar að bandarísk olíufyrirtæki hefðu staðið við bakið á neytendum í Bandaríkjunum og um allan heim, gegn samdrætti á framleiðslu hjá OPEC.
Hún sagði bréf Demókrata vera enn eina tilraun Demókrata til að grafa undan olíuiðnaðinum.