Erlent

„Við erum Græn­lendingar, við erum ekki Banda­ríkja­menn eða Danir“

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Múte B. Egede lagði áherslu á rétt Grænlendinga til að ákveð hver framtíð þeirra væri.
Múte B. Egede lagði áherslu á rétt Grænlendinga til að ákveð hver framtíð þeirra væri. AP/Mads Claus Rasmussen

Formaður landsstjórnar Grænlands hélt blaðamannafund fyrr í dag vegna nýlegra og endurtekinna ummæla nýs Bandaríkjaforseta sem girnist Grænland.

„Við erum Grænlendingar, hvorki Danir né Bandaríkjamenn“ sagði Múte B. Egede, formaður landsstjórnar Grænlands er hann hóf fundinn samkvæmt danska ríkisútvarpinu

Þá sagðist hann ekki leyna því að staða landa hans væri slæm.

Með Egede var Vivian Motzfeld, sjálfstæðis- og utanríkisráðherra í landstjórn Grænlands. Hún sagðist vera reyna að ná sambandi við starfsmenn nýs forseta. Þar vísar hún í Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.

„Við verðum að sameinast um að styrkja Grænland. Við verðum að geta unnið í sátt og samlyndi,“ sagði Motzfeld.

Egede var þá spurður út í ummæli Trump, sem sagði síðast í gær að nauðsynlegt sé að Danir selji Bandaríkjunum Grænland.

„Landið okkar og fólkið í því kemur til með að ákveða hvað gera skal. Önnur lönd geta ekki ráðið því hvað við gerum,“ svaraði Egede.

Þrátt fyrir að vilja sjálfstæði segir Egede að Grænlendingar vilji ekki hætta samstarfi sínu með Dönum heldur vinna saman sem jafningjar. Hann lagði mikla áherslu á að Grænlendingar ráði sér sjálfir.

„Við verðum að standa saman sem land. Allir flokkar verða að standa saman. Þrátt fyrir að við séum fá þá er rödd okkar sterk,“ sagði Egede í lokin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×