Lífið

Segist vera orðinn of gamall

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
George Clooney með Brad Pitt á rauða dreglinum eftir að kvikmynd þeirra Wolfs var frumsýnd í september á síðasta ári.
George Clooney með Brad Pitt á rauða dreglinum eftir að kvikmynd þeirra Wolfs var frumsýnd í september á síðasta ári. EPA-EFE/ALLISON DINNER

Bandaríski leikarinn George Clooney segist vera hættur að leika í rómantískum gamanmyndum. Hann segir ástæðuna einfaldlega vera aldurinn.

Þetta kom fram í fréttaskýringaþættinum 60 Minutes þar sem Clooney ræddi sitt nýjasta verkefni, hlutverk sitt í Broadway söngleiknum Good Night and Good Luck. Clooney lék síðast í rómantískri mynd árið 2022 en það var kvikmyndin Ticket to Paradise og var Clooney þar á skjánum með Juliu Roberts.

„Sjáðu til, ég er orðinn 63 ára gamall. Ég ætla ekki í samkeppni við 25 ára aðalleikara. Það er ekki vinnan mín. Ég leik ekki lengur í rómantískum gamanmyndum,“ segir leikarinn meðal annars í viðtalinu. Hann fer með hlutverk blaðamannsins Edward R. Murrow í leikritinu á Broadway en athygli vakti að hann litaði heimsfræga silfurlitaða hárið brúnt fyrir hlutverkið.

Glötuð handrit í tuttugu ár

Clooney skaust almennilega upp á stjörnuhimininn á tíunda áratugnum og í upphafi þessarar aldar þegar hann var trekk í trekk valinn kynþokkafyllsti maður plánetunnar. Þá var hann duglegur að leika í hinum ýmsu rómantísku gamanmyndum líkt og One Fine Day með Michelle Pfeiffer árið 1996 og Intolerable Cruelty með Catherine Zeta-Jones árið 2003.

Það vakti þess vegna gríðarlega athygli þegar hann og Julia Roberts brugðu sér aftur í hlutverk í rómantískri gamanmynd í Ticket to Paradise árið 2022. Julia Roberts sagði við tilefnið í viðtali við New York Times að hún hefði hafnað slíkum hlutverkum í tuttugu ár, einfaldlega vegna þess að handrit kvikmyndanna sem henni stóðu til boða að leika í hafi verið glötuð.

„Fólk misskilur það stundum þannig að ég hafi ekki leikið í rómantískri gamanmynd svona lengi af því að mig langi ekki til þess,“ sagði Roberts á sínum tíma við miðilinn. „Ef ég hefði lesið eitthvað sem mér hefði fundist vera af sama kalíberi og Notting Hill eða My Best Friend's Wedding þá hefði ég leikið í því. Það var ekki til.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.