Ný og endurbætt snyrtivörudeild opnuð í Hagkaup Hagkaup 16. maí 2025 12:17 Glæsileg opnunarhátíð fór fram í gær þegar ný snyrtivörudeild var opnuð í Hagkaup í Garðabæ Það var sannkölluð stemning í Hagkaup Garðabæ í gær, fimmtudaginn 15. maí, þegar ný og glæsileg snyrtivörudeild var opnuð formlega við hátíðlega athöfn.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, og Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, klipptu saman á borðann og innsigluðu þar með nýjan kafla í snyrtivörusögu verslunarinnar. Gestir voru boðnir velkomnir með makkarónum, freyðandi drykkjum og skemmtilegri tónlist sem skapaði létta og skemmtilega stemningu á staðnum. Opnunin er hluti af markvissri stefnu Hagkaups um að styrkja stöðu sína á snyrtivörumarkaði og bjóða upp á einstaka verslunarupplifun. Nýja deildin er hönnuð með það í huga að hver heimsókn verði bæði nýstárleg og spennandi fyrir viðskiptavini. „Þetta er mikilvægur áfangi í þróun fyrirtækisins,“ segir Sigurður Reynaldsson. „Við hófum þessa vegferð árið 2016 með endurgerð snyrtivörudeilda í Smáralind og Kringlunni, og síðan hafa aðrar verslanir fylgt í kjölfarið – þar á meðal Skeifan, Akureyri og Spöngin. Með opnuninni í Garðabæ erum við að leggja lokahönd á þessa uppbyggingu og niðurstaðan er eitthvað sem við erum einstaklega stolt af.“ Samkvæmt Sigurði hefur salan á snyrtivörum hjá Hagkaup aukist verulega á undanförnum árum. Þessi þróun endurspeglar bæði vaxandi áhuga íslenskra neytenda og þá miklu vinnu sem lögð hefur verið í að bæta vöruframboð og verslunarupplifun. „Við leggjum metnað í að mæta kröfum og óskum viðskiptavina okkar, ekki aðeins með breiðu úrvali af vörum, heldur með því að skapa heildræna og eftirminnilega upplifun. Nýja deildin í Garðabæ er glöggt dæmi um þá sýn.“ Að lokum undirstrikar Sigurður að markmið Hagkaups sé skýrt: að vera leiðandi á sviði snyrtivöruverslunar á Íslandi. „Við höldum ótrauð áfram á þeirri vegferð – og opnunin í Garðabæ er stórt og spennandi skref í rétta átt.“
Hár og förðun Heilsa Tíska og hönnun Mest lesið Hulunni svipt af Taskmaster Bíó og sjónvarp Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Menning Hvernig fer Óskarinn? Bíó og sjónvarp Innistæðulaus stjörnudýrkun: Plácido Domingo hefði betur setið heima Gagnrýni „Viljum alls ekki fá fólk hingað inn og skamma það“ Lífið Höfundur Fíusólar svarar reiðum mæðrum eftir ákall um bókabrennu Lífið Kelly Clarkson segist hvorki hafa fengið sigurféð né bílinn sem henni var lofað Lífið Boy George keppir fyrir San Marínó Tónlist Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Lífið samstarf Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Lífið Fleiri fréttir Langar þig að búa hluta árs í sólinni? Kynntu þér fasteignir á Spáni Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira