Innlent

Verða boðaðir á fund lög­reglu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Egill Einarsson, Steinþór Hróar Steinþórsson betur þekktur sem Steindi jr. og Auðunn Blöndal á sviði í höllinni um helgina.
Egill Einarsson, Steinþór Hróar Steinþórsson betur þekktur sem Steindi jr. og Auðunn Blöndal á sviði í höllinni um helgina. Vísir/Viktor Freyr

Skipuleggjendur stórtónleika FM95BLÖ í Laugardalshöll um helgina þar sem mikill troðningur átti sér stað verða boðaðir á fund lögreglu í vikunni. Skipuleggjendur hafa ekki gefið kost á viðtölum í dag en formaður Bandalags íslenskra tónleikahaldara gagnrýnir þá harðlega og segir heppni að enginn hafi dáið.

Örtröð myndaðist í Laugardalshöll um helgina á stórtónleikum útvarpsþáttarins FM95BLÖ þegar hlé var gert á dagskrá tónleikana um miðbik þeirra. Fimmtán manns leituðu á bráðamótttöku eftir tónleikana og einn lagður inn á sjúkrahús. Aðstandendur tónleikanna voru þeir Auðunn Blöndal, Steinþór Hróar Steinþórsson og Egill Einarsson en skipulag var á vegum Nordic Live Events. 

Fréttastofa hefur ekki náð tali af aðstandendum það sem af er degi en Björgvin Þór Rúnarsson eigandi Nordic Live Events baðst undan viðtali. Áður hafði hann sagt í tilkynningu að sér þætti málið miður og er sömu sögu að segja um Auðunn Blöndal sem sagði á samfélagsmiðlum glatað að heyra að fólk hefði meitt sig. 

Í svörum frá lögreglu til fréttastofu segir að skipuleggjendur verði boðaðir á fund vegna málsins í vikunni. Þar verði farið yfir skipulagið og það sem misfórst. Ísleifur Þórhallsson formaður Bandalags íslenskra tónleikahaldara gagnrýndi skipuleggjendur harðlega í Bítinu.

Gagnrýnir skipuleggjendur fyrir svör

„Þú getur ekkert verið að tala um það að tónleikarnir hafi gengið vel að öðru leyti. Ef þetta gerist og stór hluti gestanna er bókstaflega í lífshættu og stór hluti gestanna er bókstaflega traumatised eftir að hafa farið á tónleika sem eiga að vera skemmtun, þetta eiga að vera bestu minnningar lífs þíns og þetta breytist í verstu minningar lífs þíns þá getur þú ekkert stigið fram og sagt það að þetta hafi gengið vel að öðru leyti. Þetta gerðist, þetta var fyrirsjáanlegt miðað við hvernig þú skipulagðir tónleikana og þú klikkaðir,“ sagði Ísleifur Þórhallsson formaður Bandalags íslenskra tónleikahaldara í Bítinu.

„Þú getur ekkert verið að tala um það að tónleikarnir hafi gengið vel að öðru leyti. Ef þetta gerist og stór hluti gestanna er bókstaflega í lífshættu og stór hluti gestanna er bókstaflega traumatised eftir að hafa farið á tónleika sem eiga að vera skemmtun, þetta eiga að vera bestu minnningar lífs þíns og þetta breytist í verstu minningar lífs þíns þá getur þú ekkert stigið fram og sagt það að þetta hafi gengið vel að öðru leyti. Þetta gerðist, þetta var fyrirsjáanlegt miðað við hvernig þú skipulagðir tónleikana og þú klikkaðir.“

Augljóst sé að skipuleggjendur og aðstandendur tónleikanna hafi ekki tekið hlutverk sitt nægilega alvarlega, hólfaskiptingu hafi vantað alveg og öryggisgæsla ekki nægjanleg. Hann segir spurningar vakna um regluverkið og skoða þurfi hverjum sé leyft að halda tónleika hér á landi.

„Það er bara mjög sorglegt að svona aðilum sé hleypt af stað og þeir haldi það að þú getir bara ákveðið það að vera tónleikahaldari og þú tekur þitt hlutverk ekki alvarlega og þeir eru bara heppnir að enginn hafi dáið.“


Tengdar fréttir

Stutt pása hleypti öllu í bál og brand

Yfirmaður öryggisgæslu á tónleikum FM95Blö í Laugardalshöllinni í gær segir troðning hafa myndast þegar tíu þúsund manna salurinn tæmdist fram í anddyri hallarinnar vegna fimmtán mínútna pásu í dagskránni. Forðast hefði mátt ástandið með því að hleypa úr salnum á fleiri en einum stað og stýra dagskránni betur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×