Erlent

Reyna að stöðva ein á­tök og koma í veg fyrir önnur

Samúel Karl Ólason skrifar
Fjölmiðlafólk hefur fjölmennt í Genf, þar sem tvennar viðræður eiga sér stað í dag og á morgun, en báðar gætu reynst áhrifamiklar á heimsvísu, þó væntingar séu ekki miklar.
Fjölmiðlafólk hefur fjölmennt í Genf, þar sem tvennar viðræður eiga sér stað í dag og á morgun, en báðar gætu reynst áhrifamiklar á heimsvísu, þó væntingar séu ekki miklar. Getty/Sedat Suna

Úkraínskir, bandarískir og rússneskir embættismenn eiga að hittast í Genf í Sviss í dag og ræða mögulega leið að friði. Ekki eru þó miklar væntingar á kreiki um að fundurinn muni reynast afdrifaríkur en þetta er í þriðja sinn sem erindrekar ríkjanna þriggja koma saman á þremur vikum.

Síðustu tveimur viðræðulotum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hefur verið lýst sem skilvirkum af bæði Úkraínumönnum og Rússum en eins og segir í grein New York Times virðist sem þær hafi í raun litlu skilað, fyrir utan ein fangaskipti.

Enn virðist sem helsta deiluefnið sé landsvæði í Dónetsk-héraði sem Úkraínumenn halda enn. Rússar krefjast þess að Úkraínumenn hörfi frá svæðinu, sem ku vera mjög víggirt.

Svæðið var á árum áður hernumið af Rússum og úkraínskum aðskilnaðarsinnum í austurhluta Úkraínu en Úkraínumenn náðu því aftur og hafa síðan þá byggt upp miklar varnir þar.

Úkraínumenn óttast að það að hörfa frá svæðinu myndi veita Rússum stökkpall lengra inn í Úkraínu, ákveði þeir seinna meir að gera aðra innrás í Úkraínu.

Sjá einnig: „Þú stöðvar Pútín ekki með kossum og blómum“

Rússar gerðu umfangsmiklar árásir á Úkraínu í nótt en samkvæmt varnarmálaráðuneyti Úkraínu notuðust Rússar við samtals 425 mismunandi dróna og eldflaugar. Úkraínumenn segjast hafa grandað 392 þeirra.

Árásir þessar hafa að miklu leyti beinst að borgaralegum innviðum í Úkraínu en veturinn þar hefur verið mjög kaldur. Rafmagnsleysi hefur verið títt, þar sem árásir hafa verið gerðar á hvert einasta orkuver í Úkraínu og sömuleiðis hafa verið gerðar árásir á hitaveitur.

Úkraínumenn hafa einnig gert eigin árásir í Rússlandi en ríkisstjóri Bríansk-héraðs í Rússlandi sagði í gær að þar hefðu 229 drónar frá Úkraínu verið skotnir niður á undangengnum sólarhring. Ekkert hérað Rússlands hefði áður orðið fyrir jafn umfangsmikilli árás frá Úkraínu, samkvæmt því sem AP-fréttaveitan hefur eftir ríkisstjóranum.

Ræða líka við Írani

Erindrekar frá Bandaríkjunum munu einnig funda með erindrekum frá Íran í Genf í dag. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur sent umfangsmikinn herafla til Mið-Austurlanda og er hann að reyna að þvinga klerkastjórn Íran til að semja um kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins og önnur málefni.

Sjá einnig: Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda

Ein viðræðulota hefur átt sér stað milli erindreka frá Bandaríkjunum annars vegar og klerkastjórnarinnar hins vegar. Þær fóru fram í Óman en skiluðu engri niðurstöðu.

Viðræðurnar í dag eru aðallega sagðar munu snúa að kjarnorkuáætlun Írana og mögulegum tilslökunum á viðskiptaþvingunum af hálfu Bandaríkjamanna. Trump forseti sagði við blaðamenn í gærkvöldi að hann muni taka óbeinan þátt í viðræðunum þótt hann verði ekki á staðnum. Hann segir viðræðurnar mjög mikilvægar og telur Írani tilbúna til að gera samning, ólíkt því sem áður var.

Ali Khamenei, æðstiklerkur Íran, sendi í morgun út yfirlýsingu þar sem hann sagði að bandarísk flugmóðurskip væru hættuleg en að vopnin sem sendu þau skip á hafsbotn væru enn hættulegri.

Þá sagði klerkurinn að Bandaríkjamönnum væri ómögulegt að fella Íran.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×