Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Samúel Karl Ólason skrifar 17. febrúar 2026 10:54 Fjölmiðlafólk hefur fjölmennt í Genf, þar sem tvennar viðræður eiga sér stað í dag og á morgun, en báðar gætu reynst áhrifamiklar á heimsvísu, þó væntingar séu ekki miklar. Getty/Sedat Suna Úkraínskir, bandarískir og rússneskir embættismenn eiga að hittast í Genf í Sviss í dag og ræða mögulega leið að friði. Ekki eru þó miklar væntingar á kreiki um að fundurinn muni reynast afdrifaríkur en þetta er í þriðja sinn sem erindrekar ríkjanna þriggja koma saman á þremur vikum.
Síðustu tveimur viðræðulotum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hefur verið lýst sem skilvirkum af bæði Úkraínumönnum og Rússum en eins og segir í grein New York Times virðist sem þær hafi í raun litlu skilað, fyrir utan ein fangaskipti. Enn virðist sem helsta deiluefnið sé landsvæði í Dónetsk-héraði sem Úkraínumenn halda enn. Rússar krefjast þess að Úkraínumenn hörfi frá svæðinu, sem ku vera mjög víggirt. Svæðið var á árum áður hernumið af Rússum og úkraínskum aðskilnaðarsinnum í austurhluta Úkraínu en Úkraínumenn náðu því aftur og hafa síðan þá byggt upp miklar varnir þar. Úkraínumenn óttast að það að hörfa frá svæðinu myndi veita Rússum stökkpall lengra inn í Úkraínu, ákveði þeir seinna meir að gera aðra innrás í Úkraínu. Sjá einnig: „Þú stöðvar Pútín ekki með kossum og blómum“ Rússar gerðu umfangsmiklar árásir á Úkraínu í nótt en samkvæmt varnarmálaráðuneyti Úkraínu notuðust Rússar við samtals 425 mismunandi dróna og eldflaugar. Úkraínumenn segjast hafa grandað 392 þeirra. Árásir þessar hafa að miklu leyti beinst að borgaralegum innviðum í Úkraínu en veturinn þar hefur verið mjög kaldur. Rafmagnsleysi hefur verið títt, þar sem árásir hafa verið gerðar á hvert einasta orkuver í Úkraínu og sömuleiðis hafa verið gerðar árásir á hitaveitur. On the night of February 17, Russia launched a massive air attack against Ukraine’s critical infrastructure.425 air assets used:• 250 Shahed-type UAVs• 20 Kh-101 cruise missiles• 4 Iskander-M/KN-23 ballistic missiles• 4 Iskander-K cruise missiles• 1 guided aerial… pic.twitter.com/NIWkNLuXND— Defense of Ukraine (@DefenceU) February 17, 2026 Úkraínumenn hafa einnig gert eigin árásir í Rússlandi en ríkisstjóri Bríansk-héraðs í Rússlandi sagði í gær að þar hefðu 229 drónar frá Úkraínu verið skotnir niður á undangengnum sólarhring. Ekkert hérað Rússlands hefði áður orðið fyrir jafn umfangsmikilli árás frá Úkraínu, samkvæmt því sem AP-fréttaveitan hefur eftir ríkisstjóranum. Ræða líka við Írani Erindrekar frá Bandaríkjunum munu einnig funda með erindrekum frá Íran í Genf í dag. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur sent umfangsmikinn herafla til Mið-Austurlanda og er hann að reyna að þvinga klerkastjórn Íran til að semja um kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins og önnur málefni. Sjá einnig: Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Ein viðræðulota hefur átt sér stað milli erindreka frá Bandaríkjunum annars vegar og klerkastjórnarinnar hins vegar. Þær fóru fram í Óman en skiluðu engri niðurstöðu. Viðræðurnar í dag eru aðallega sagðar munu snúa að kjarnorkuáætlun Írana og mögulegum tilslökunum á viðskiptaþvingunum af hálfu Bandaríkjamanna. Trump forseti sagði við blaðamenn í gærkvöldi að hann muni taka óbeinan þátt í viðræðunum þótt hann verði ekki á staðnum. Hann segir viðræðurnar mjög mikilvægar og telur Írani tilbúna til að gera samning, ólíkt því sem áður var. Ali Khamenei, æðstiklerkur Íran, sendi í morgun út yfirlýsingu þar sem hann sagði að bandarísk flugmóðurskip væru hættuleg en að vopnin sem sendu þau skip á hafsbotn væru enn hættulegri. Þá sagði klerkurinn að Bandaríkjamönnum væri ómögulegt að fella Íran.
Sviss Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Íran Bandaríkin Hernaður Donald Trump Vladimír Pútín Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Erlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Fleiri fréttir Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Sjá meira