„Við erum ekki hrædd“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 15. mars 2026 13:09 Frá vinstri: Kristrún Frostadóttir, Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar, Mark Carney forsætisráðherra Kanada, Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs, Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur og Petteri Orpo forsætisráðherra Finnlands. AP Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra þakkaði Mark Carney forsætisráðherra Kanada fyrir forystuna sem hann hefur sýnt á alþjóðavettvangi og talaði um tómarúm sem fylla hefði þurft.
Forsætisráðherrar Norðurlandanna og Kanada funduðu í Ósló í morgun og gáfu út sameiginlega yfirlýsingu í kjölfarið. Í máli leiðtoganna var áhersla lögð á sameiginleg gildi landanna og þær sviptingar sem einkennt hafa alþjóðasviðið nýverið. Tækifæri í sviptingum Sjálfur talaði Carney um þær nýju áskoranir sem lönd heimsins stæðu frammi fyrir á sviðum á borð við gervigreind. Ráðherrarnir norrænu hrósuðu einnig allir Carney upp í hástert fyrir ræðuna sem hann flutti á efnahagsráðstefnunni í Davos sem vakti mikla athygli. Í henni talaði hann um breytta heimsmynd og færði rök fyrir mikilvægi þess að hin svokölluðu miðveldi stæðu saman gegn síauknu skeytingarleysi stórveldanna. Mark Carney forsætisráðherra Kanada.AP Þetta tók Kristrún einnig undir og sagði tækifæri felast í áskorununum. „Þetta er ekki í fyrsta sinn í sögunni sem breytingar eiga sér stað og ég tel að þetta sé sterkur hópur landa sem getur sýnt að við getum gert þetta af styrk, byggt upp ný sambönd fjárfestinga en einnig tækifæra og ég tel að norðurslóðir séu mikilvægt svæði í því samhengi,“ sagði hún. Ísland lykilþátttakandi á símikilvægari norðurslóðum Hún sagði Íslendinga finna fyrir auknum þrýstingi. „Við höfum haft áhyggjur af Grænlandi, við höfum áhyggjur af ástandinu í Evrópu hvað varðar Úkraínu, en við erum ekki hrædd. Við sjáum þetta líka sem leið til að breyta bandalögum. Þótt við séum ekki að útiloka neinn erum við líka bara að víkka út sjóndeildarhringinn og ég held að þessi hópur, ásamt Kanada, sýni að það eru frábær tækifæri þarna úti.“ Ráðherrarnir héldu sameiginlegan blaðamannafund og gáfu út yfirlýsingu.AP Áhersla Atlantshafsbandalagsins hafi færst norður á bóginn og að Ísland verði lykilþátttakandi í auknu vægi norðurslóða hvað öryggis- og efnahagsmál varðar. „Mér finnst þessi hópur sýna að það er hægt að sýna ró og yfirvegun á tímum sem þessum, að maður þurfi ekki alltaf að vera með viðbragðsstjórnmál. Ég hlakka til að sjá eitthvað áþreifanlegt koma út úr þessu.“
Utanríkismál Norðurslóðir Noregur Danmörk Svíþjóð Finnland Kanada Öryggis- og varnarmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira