Sterkari saman á óvissutímum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar 17. mars 2026 08:15 Engum dylst að við stöndum frammi fyrir mikilli og vaxandi óvissu í alþjóða- og öryggismálum, sem snertir okkur Íslendinga ekki síður en aðra. Þess vegna setti ríkisstjórnin öryggis- og varnarmál á oddinn. Það er fagnaðarefni að allir flokkar á Alþingi náðu saman um nýja stefnu í varnar- og öryggimálum, sem nú verður fylgt eftir af krafti. Öll ríki Atlantshafsbandalagsins vinna að því að styrkja eigin varnir og getu til að geta mætt hernaðarstefnu og fjölþáttaárásum Rússlands og til að senda skýr skilaboð um að við séum tilbúin að standa vörð um sameiginlegt öryggi íbúa allra bandalagsríkja. Það þurfum við líka að gera og verður stefnan leiðarljós í þeirri vinnu. Evrópa sækir í sig veðrið Bandaríkin, sem um langt skeið hafa gegnt lykilhlutverki í vörnum Evrópu, kalla eftir því að Evrópuríkin axli meiri ábyrgð á eigin öryggi og sameiginlegum vörnum Atlantshafsbandalagsins. Evrópuríkin og Kanada hafa brugðist við þessu ákalli með því að auka framlög sín og byggja upp getu sem mun á næstu árum jafna byrðarnar. Á sama tíma hefur samstarf um öryggis- og varnarmál verið eflt innan Evrópusambandsins. Á nýliðnum varnarmálaráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins og á öryggisráðstefnunni í München var þannig rík áhersla lögð á að Evrópuríkin og Kanada axli nú aukna ábyrgð og vinni náið saman að öryggispólitískum málefnum. Norðmenn, Bretar og Kanadamenn tala jafnframt óhikað fyrir því að treysta samstarfið við Evrópusambandið og ríki álfunnar til þess að renna frekari stoðum undir Atlantshafsbandalagið og vestræna samvinnu. Aukinn styrkur og samvinna gerir þessi ríki að öflugri bandamönnum – líka fyrir Bandaríkin. Traustar og víðtækar varnir Það er víðtæk samstaða um að kjarninn í sameiginlegum hernaðarvörnum Íslands er og verður Atlantshafsbandalagið og tvíhliða varnarsamningurinn við Bandaríkin. Þessar stoðir þarf að treysta áfram. Á sama tíma verður ekki horft fram hjá því að starfsemi bandalagsins er hluti af stærra samhengi öryggis- og varnarmála. Þessi málaflokkur hefur mun víðari skírskotun og nær m.a. til uppbyggingar og nýsköpunar í varnariðnaði, eflingu áfallaþols, netöryggis, efnahagsöryggis, eftirlits og fjarskiptagetu – svo fátt eitt sé nefnt. Evrópusambandið hefur verkfæri og getu sem Atlantshafsbandalagið býr einfaldlega ekki yfir, þ.m.t. margfalt stærri fjárlög, stuðningssjóð, heimildir til lagasetningar og samstarfsáætlanir sem sambandið beitir nú í auknum mæli til þess að styðja við heildstæðar varnir og öryggi. Þess vegna hafa Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið markvisst unnið að því að efla samstarf og samhæfingu sín á milli til að auka sameiginlegan slagkraft. Það er ekki síst af þessum sökum sem bandalagsríki utan Evrópusambandsins hafa kosið að styrkja samstarf við það um þessi mál, m.a. Bretland, Noregur og Kanada. Það hafa þau gert á grundvelli sameiginlegra yfirlýsinga um öryggis- og varnarmál og með það að leiðarljósi að við erum sterkari saman. Við þurfum að gera hið sama, bæði til þess að sitja ekki hjá, en líka til að efla okkar stöðu innan Atlantshafsbandalagins og samstarfið við Bandaríkin. Höfundur er utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Utanríkismál Öryggis- og varnarmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar