Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Agnar Már Másson skrifar 10. júní 2026 11:16 Miðað við loftmyndir hefur hernaðaruppbygging Rússa í nágrenni við landamærin að Nato-ríkjum aukist verulega. Rússar hafa á síðustu árum aukið umsvif sín á herstöðvum við landamærin að Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum. Loftmyndir sýna hvernig gróður hefur vikið fyrir hervirkjum á sama tíma og umferð herbíla hefur aukist á svæðunum.
Ríkisútvörp í Danmörku, Noregi og Svíþjóð auk Eistneska miðilsins Delfi birtu í morgun umfjöllun sem þeir unnu í samvinnu þar sem þeir varpa ljósi á nýlega hernaðaruppbyggingu Rússahers við landamæri Rússlands að Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum. Með því að bera saman loftmyndir milli 2022 og 2026 má sjá hernaðaruppbyggingu á hið minnsta fimm stöðum við landamæri Rússa að NATO-ríkjum en miðlarnir létu hermálasérfræðing yfirfara myndirnar auk annarra heimildarmanna innan varnarmálayfirvalda í löndunum. Nálægt landamærum Noregs og Finnlands Nyrsta dæmið um slíka uppbyggingu er í dalnum Petsjenga í Múrmansk-héraði, ellefu kílómetrum frá landamærum Rússlands að Noregi í Finnmörku, en þar hafa lengi verið herstöðvar. Frá 2022 hefur fjöldi hermanna í herstöðinni í Petsjenga tvöfaldast úr 7 þúsund upp í 14 þúsund – eða jafnvel 17 þúsund, samkvæmt umfjöllun norska ríkisútvarpsins. Með samanburði á loftmyndum af svæðinu má sjá að Rússar hafi nýlega rutt frá skóg í kringum herstöðina. Þá reynist einnig vera uppbygging rétt utan Kadalaksja sem er skammt frá landamærum Rússlands að Finnlandi. Þar hefur, rétt eins og í Patsjanga, skógur verið ruddur og hús risið síðan 2024, samkvæmt umfjöllun danska ríkisútvarpsins um málið. Danski miðillinn hefur eftir finnska varnarmálasérfræðingnum Marko Eklund að það sé um að ræða búðir fyrir hermenn, matsali og byggingar undir farartæki og annan búnað. Eklund telur að þegar stækkuninni er lokið verði pláss fyrir allt að 115 þúsund hermenn milli svæðanna Patsjanga og Katalóníu. Nýjar stöðvar rísa En Rússar eru ekki aðeins að stækka herstöðvar heldur virðast þeir einnig standa í byggingu á nýjum stöðvum. Við Novaja Vilga má svo einnig finna nýjar herstöðvar í uppbyggingu Novaja Vilga, utan borgarinnar Petrosavodsk. Haft er eftir Eklund að um sé að ræða glænýjar herbúðir á svæðinu þar sem búast megi við hátt í 16 þúsund hermönnum. Við Luga, skammt frá landamærum Rússlands að Eistlandi, sýna loftmyndir einnig hernaðaraukningu á svæðinu. Fyrir tæpu ári mátti aðeins sjá handfylli herbíla á svæðinu en miðað við loftmyndir frá febrúar 2026 hefur farartækjum farið verulega fjölgandi við herstöðina. Eklund útilokar ekki í samtali við DR að bílarnir séu á leiðinni til Úkraínu en líklegra sé að viðvera þeirra sé hluti af stækkunarverkefni á svæðinu. Fyrsta víglínan Í Kalíningrad, aðeins um 23 kílómetrum frá landamærunum að Póllandi, má einnig finna eina af mikilvægustu herstöðvum Rússa fyrir utan borgina Baltíisk. Herstöðin er notuð til að stýra aðgerðum á bæði landi og sjó. Eklund metur að herstöðin muni brátt hýsa hátt í sjö þúsund hermenn miðað við þær breytingar sem orðið hafa síðustu misseri, en þar hefur herbílum og flutningabílum fjölgað verulega. Rússland hefur talsvert fleiri herstöðvar en þær sem hér er fjallað um en að mati Marko Eklund eru hermennirnir í þessum herstöðvum meðal þeirra sem yrðu sendir fyrst á víglínuna ef til átaka kæmi milli Rússa og ríkja á Eystrasaltssvæðinu.
Rússland Danmörk Noregur Finnland Innrás Rússa í Úkraínu Eistland Pólland Vladimír Pútín Öryggis- og varnarmál Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Sjá meira