Viðskipti innlent

Fá AA- í ein­kunn

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Greint er frá niðurstöðu Scope Ratings í tilkynningu á síðu Stjórnarráðsins.
Greint er frá niðurstöðu Scope Ratings í tilkynningu á síðu Stjórnarráðsins. VÍSIR/VILHELM

Scope Ratings, evrópskt lánhæfismatsfyrirtæki, hefur veitt ríkissjóði Íslands lánhæfiseinkunnina AA- í innlendri og erlendri mynt. Horfurnar eru taldar stöðugar.

Að mati Scope Ratings eru helstu styrkleikar íslenska hagkerfisins háar tekjur á mann í alþjóðlegum samanburði, tiltölulega lágar og lækkandi skuldir hins opinbera, trúverðug ríkisfjármálastefna og sterk skuldbinding stjórnvalda til ábyrgrar ríkisfjármálastjórnar.

Ytri staða þjóðarbúsins sé sterk og stuðli það að viðnámsþrótti gagnvart ytri áföllum. 

„Það sem helst takmarkar lánshæfiseinkunn Íslands er tiltölulega fábreyttur útflutningur, sem gerir hagkerfið útsett fyrir breytingum í erlendri eftirspurn, viðskiptakjörum og gengissveiflum. Þá einkennist íslenskt hagkerfi af meiri sveiflum í helstu hagstærðum, svo sem hagvexti, verðbólgu og innlendri eftirspurn, en almennt gerist meðal sambærilegra ríkja,“ segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Þetta er í fyrsta skipti sem Scope Ratings metur lánshæfi Íslands en fyrirtækið hóf að meta lánshæfi ríkja árið 2017 samkvæmt tilkynningunni. Í dag gefur Scope Ratings úr einkunn fyrir 38 ríki og er eina fyrirtæki sinnar tegundar í Evrópu sem er viðurkennt innan matsramma seðlabanka Evrópu.

Hæsta matið sem hægt er að fá er AAA og þar á eftir er AA.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×