Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Eiður Þór Árnason skrifar 2. ágúst 2026 15:42 Adalsteinn Svan Hjelm hyggst taka málið enn lengra. Aðsend - Wikimedia/Which? Press Office Flugfélagið EasyJet segir engar líkur á því að átt hafi verið viljandi við töskumátara sem notaður eru til að athuga hvort handfarangurstöskur rúmi innan stærðartakmarkana á Gatwick-flugvelli í Lundúnum.
Breska neytendaritið Which? fjallar um mál Akureyringsins Aðalsteins Svans Hjelm sem átti í langri baráttu við flugfélagið eftir að hann var óvænt rukkaður aukalega vegna taskna sem voru sagðar of stórar. „Við bentum Easyjet á að í versta falli gætu hundruð, ef ekki þúsundir, farþega hafa verið rukkaðir um ógild gjöld. Flugfélagið segist fullvisst um að þetta hafi einungis verið einangrað tilvik,“ segir í frétt Which? Aðalsteinn var á leið frá Lundúnum til Aþenu með dóttur sinni þegar atvikið átti sér stað. Hann furðaði sig á rukkuninni þar sem mál tasknanna átti að passa við stærðartakmörkun Easyjet. Taldi hann brögð í tafli enda áður búinn að ferðast með sína tösku án vandræða víða um heim. Taskan passaði ekki í grindina og var hann krafinn um greiðslu sem nam um sextán þúsund krónum samanlagt fyrir tvær töskur. Hann grunaði að töskumátarinn væri rangt upp settur en hann átti í engum vandræðum á flugvellinum í Aþenu. Hann hóf formlegt kæruferli hjá easyJet. Það skilaði engu og heldur ekki kvörtun til Gatwick-flugvallar sem annaðhvort gat ekki eða vildi ekki aðhafast. Að lokum fór málið til óháðs úrskurðaraðila sem hafnaði einnig kröfu hans. Hann gafst þó ekki upp og eftir marga mánuði féllst Easyjet loks á það að málmstangir á annarri hlið mæligrindarinnar væru á röngum stað sem þýddi að töskur sem hefðu átt að vera innan marka pössuðu ekki. Fái bónusgreiðslur fyrir að rukka farþega Neytendaritið Which? segir það hafa komið í ljós á síðasta ári að verktakar Easyjet geti fengið bónusgreiðslur fyrir hvern farþega sem þeir rukka fyrir of stóran farangur. Easyjet samþykkti að endurgreiða Aðalsteini 96 punda töskugjaldið og sagðist hafa lagað mæligrindina á Gatwick. Fulltrúi flugfélagsins tjáði honum að áhyggjum hans um að þetta gæti verið til marks um víðtækara vandamál yrði komið á framfæri. Aðalsteinn hefur þegið endurgreiðsluna en segist enn hafa áhyggjur af öðrum farþegum sem hafi lent í gölluðu mæligrindinni. „Mun Easyjet hafa frumkvæði að því að finna og endurgreiða þeim farþegum sem urðu fyrir áhrifum? Eða verða bætur aðeins í boði fyrir þá sem eyða mánuðum í að fylgja eftir kvörtunum?“ spyr hann í frétt Which? Alvarlegra ef þetta gerðist óvart Óljóst er hvort sama vandamál eigi við um fleiri töskumátara á vegum Easyjet. Flugfélagið sagði Which? að enginn möguleiki væri á því að mæligrindinni á Gatwick hefði verið breytt af ásettu ráði. Which? bendir á að það sé jafnvel verra ef mæligrindunum getur verið breytt fyrir slysni án þess að starfsfólk Easyjet taki eftir því. Hætta sé á því að fleiri flugvellir annars staðar í heiminum hafi orðið fyrir áhrifum. Einungis til marks um velvilja þeirra EasyJet hafnaði því að vandamálin sem búið sé að afhjúpa sé til marks um stærra vandamál. „Við viljum alltaf tryggja að reglum okkar um handfarangur sé beitt á sanngjarnan hátt. Mæligrindurnar eru athugaðar vikulega eða fyrr ef vandamál kemur upp og hljóta viðhald. Ef það kemur upp vandamál með mæligrind þá er það tilkynnt starfsfólki okkar og hún er fjarlægð og löguð.“ Þrátt fyrir að óháði úrskurðaraðilinn AviationADR hafi áður dæmt flugfélaginu í vil þegar hann tók fyrir kvörtun Aðalsteins þá hafi Easyjet endurgreitt honum „til marks um velvilja“ þeirra (e. „as a gesture of goodwill“).
Flug Bretland Neytendur Tengdar fréttir Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Akureyringur gafst ekki upp eftir að hafa talið flugfélagið easyJet hafa svínað á sér og rukkað vegna handfarangurstaskna sem virkuðu of stórar. Hann taldi brögð í tafli og eftir heilmikla þrautargöngu hafði hann að lokum óvæntan sigur. 28. júlí 2026 16:55 Mest lesið Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Sigmundur Davíð finnur fyrir sterkum öflum sem vinna gegn afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Opin vinnurými: Starfsfólki líður illa og finnst erfitt að einbeita sér Atvinnulíf Ef krónan væri bíll Viðskipti innlent Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Fleiri fréttir Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Arion banki hækkar gjöld Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Kalla inn fæðubótarefni Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Vekja athygli á innköllun leikfangs Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Kalla inn súkkulaðibitakökur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Thule lækkar í prósentu Sjá meira
Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Akureyringur gafst ekki upp eftir að hafa talið flugfélagið easyJet hafa svínað á sér og rukkað vegna handfarangurstaskna sem virkuðu of stórar. Hann taldi brögð í tafli og eftir heilmikla þrautargöngu hafði hann að lokum óvæntan sigur. 28. júlí 2026 16:55