

Alþingi
Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.

Gera ráð fyrir 38 milljörðum vegna hlutabótaleiðar
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu verður í nýju frumvarpi til fjáraukalaga gert ráð fyrir 38 milljörðum króna vegna hlutabótaleiðarinnar og 25 milljörðum vegna greiðslu hluta launa í uppsagnarfresti.

Bjarni segir ríkissjóð ekki standa undir velferðarkerfinu án tekna
Fjármálaráðherra segir stjórnvöld leggja áherslu á björgun starfa meðal annars vegna þess að án þeirra hafi ríkissjóður ekki efni á að reka velferðarkerfið.

Telur öruggt að ferðaskrifstofur verði gjaldþrota fuðri frumvarp upp í „pólitískum smjörklípuslag“
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, hefur áhyggjur af því frumvarp um að ferðaskrifstofur megi endurgreiða ferðir með inneignarnótum komist ekki í gegnum þingið.

„Algjörlega óþolandi“ að sjá fyrirtæki misnota aðstoð stjórnvalda
Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra er verulega ósáttur yfir þeim tíðindum að stöndug fyrirtæki í landinu noti hlutabótaleið stjórnvalda.

Ætla að breyta lögum um hlutabótaleið til að hindra misnotkun
Lögum varðandi svokallaða hlutabótaleið stjórnvalda verður breytt til þess að koma í veg fyrir að stöndug fyrirtæki nýti sér hana til að greiða niður laun starfsmanna.

Frumkvæðisathugun á hæfi Kristjáns Þórs sett á ís
Frumkvæðisathugun stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á hæfi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna Samherjamálsins hefur verið sett á ís vegna kórónuveirufaraldursins. Formaður nefndarinnar segir málinu þó hvergi lokið.

Ræddu útlendingamál fram yfir miðnætti
Ekki tókst að ljúka fyrstu umræðu um hið umdeilda frumvarp dómsmálaráðherra um útlendinga og atvinnuréttindi þeirra

Ákvörðun um stöðvun grásleppuveiða byggi ekki á vísindalegum grunni
Formaður atvinnuveganefndar telur að ákvörðunin byggi ekki á nægilega vísindalegum grunni og hvetur ráðherra til að endurskoða.

Þingforseti freistar þess að ljúka umræðum um umdeilt útlendingafrumvarp
Mikið var um atkvæðagreiðslur á Alþingi í dag. En síðdegis hófust umræður um frumvarp með nýjustu efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar. Þingforseti freistar þess að ljúka umræðum um umdeilt útlendingafrumvarp

Hyggst nýta tímann til að sætta sjónarmið vegna hálendisþjóðgarðs
Stefnt er að því að frumvarp um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu verði lagt fram á Alþingi í haust. Umhverfisráðherra segist ætla að nýta tímann þangað til til að sætta sjónarmið.

Tvær kannanir sýna 60 prósent stuðning við ríkisstjórnina
Samanlagt njóta stjórnarflokkarnir þrír hins vegar á bilinu 43 til 47 prósenta stuðnings.

Afmælisbarn dagsins „eldgamall unglingur“ sem heldur partý síðar
Samfylkingin fagnar tuttugu ára afmæli í dag. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu verður það að bíða betri tíma að halda veislu í tilefni af afmælinu að sögn Loga Einarssonar, formanns flokksins.

Markmiðið að „banna óþarfa drasl“
Ekki stendur til að banna neinar plastvörur sem aðrar og umhverfisvænni vörur geta ekki leyst af hólmi. Þetta segir umhverfisráðherra.

Sex stór samgönguverkefni í einkaframkvæmd með gjaldtöku
Samgönguráðherra mælti fyrir frumvarpi á Alþingi í dag um samvinnu ríkis, sveitarfélaga og einkaaðila um uppbyggingu sex samgöngumannvirkja. Ef frumvarpið nær fram að ganga væri hægt að bjóða verkin út á þessu ári.

Snúðugar afmæliskveðjur til Samfylkingar frá Sigmundi
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er sneiðugur í árnaðaróskum sínum til Samfylkingarinnar.

Telur til greina koma að endurskoða laun allra æðstu embættismanna
Forsætisráðherra segir launahækkun þingmanna og ráðherra hafa verið frestað í júní í fyrra til síðustu áramóta vegna nýgerðra kjarasamninga. Þá hafi verið ákveðið að fresta annarri hækkun sem taka átti gildi hinn 1. júní næstkomandi.

Þríeykið skoðaði aðstæður á Alþingi
Hið svokallaða þríeyki, Alma Möller, landlæknir, Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn komu í þinghúsið til að skoða aðstæður þar nú þegar samkomubanni hefur verið aflétt að hluta.

Þórunn full tilhlökkunar að snúa aftur á þing eftir veikindaleyfi
Þórunn Egilsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, snýr aftur á þing í dag eftir að hafa verið í veikindaleyfi í rúmt ár vegna þriðja stigs brjóstakrabbameins sem hún greindist með í fyrra.

Sjávarútvegsráðherra vill setja grásleppu í kvóta og telur meirihluta smábátaeigenda sammála
Sjávarútvegsráðherra vill að grásleppa verði sett í kvóta og telur að smábátaeigendur séu sammála. Honum beri að fara að ráðleggingum Hafrannsóknarstofnunar og því hafi hann stöðvað grásleppuveiðar á miðnætti. Kannað verði með Fiskistofu hver staða þeirra sé sem þurftu að sækja afla og veiðafæri í dag.

„Þetta verður djúp dýfa og líklega sú mesta í lýðveldissögunni“
Forsætisráðherra segir viðbúið að fjöldi fólks skipti um starfsvettvang á næstu misserum. Mikilvægt sé að auka fjölbreytni á íslenskum vinnumarkaði. Samtök atvinnulífsins sjá fram á mestu efnahagsdýfu í lýðveldissögunni.

Veltir fyrir sér hvort að smábátaeigendur á Akranesi séu nú ólöglegir
Grásleppuveiðar voru stöðvar á miðnætti. Smábátaeigendur á Akranesi hafa harðlega gagnrýnt hversu skammur fyrirfari sé á stöðvuninni þá sé misskipt milli landshluta hversu mikið sjómenn hafa getað veitt. Siglt var frá Akranesi í morgun til að ná upp veiðarfærum hjá bátum á grásleppuveiðum.

Stærsti hluti rekstrartaps vegna rýrnunar á viðskiptavild
Rekstrartap Icelandair á fyrsta ársfjórðungi nemur ríflega þrjátíu milljörðum króna. Stærsti hluti tapisins er niðurfærsla viðskiptavildar. Gert er ráð fyrir að lausafjárstaða fari undir lágmark á næstu vikum. Þetta kemur fram í bráðabirgðauppgjöri félagsins fyrir 1. ársfjórðung sem birtist í gær

Mjög bjartsýnn á að það takist að safna þrjátíu milljörðum í nýtt hlutafé
Forstjóri Icelandair Group er bjartsýnn á að það takist að safna hátt í þrjátíu milljörðum í aukið hlutafé. Fyrirtækið verði í lykilhlutverki þegar kemur að því að reisa við efnahag landsins. Stefnt er að hlutafjárútboði um miðjan júní fyrir almenning og fagfjárfesta.

Afturvirk launahækkun þingmanna og ráðherra kemur til framkvæmda á verkalýðsdaginn
Frumvarp Pírata um að þingmenn og ráðherrar fái engar launahækkanir út kjörtímabilið hefur ekki verið afgreitt úr nefnd og því ljóst að það verður ekki afgreitt fyrir mánaðamót.

Segja augljóst að ríkið þurfi að aðstoða Icelandair
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, kveðst ekki hrifin af þeirri hugmynd að ríkið eignist hlut í Icelandair. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, telur að ríkið þurfi að stíga inn í með meira afgerandi hætti en stjórnvöld gáfu til kynna í dag.

Ók bílstjóranum í tilefni starfsloka: „Vonandi fæ ég áfram boð í lifrarpylsu til hans“
Bílstjóri Utanríkisráðherra, Björn Kjartansson, hefur látið af störfum eftir langan tíma í starfinu.

Útilokar enga möguleika um hvort ríkið eignist hlut í Icelandair
Ef Icelandair tekst að safna því hlutafé sem félagið stefnir að þá eru stjórnvöld tilbúin að koma til aðstoðar með aðkomu að lánalínum með ríkisábyrgð.

Lausnir jafnaðarmanna
Við lifum ótrúlega tíma. Á nokkrum vikum hefur tilveran umturnast og við vitum ekki hvað bíður okkar – aðeins það að lífið verður ekki alveg eins og það var í febrúar.

Segir hjúkrunarfræðinga hafa hafnað meiri hækkunum en aðrir fái
Fjármálaráðherra segir að krafa hjúkrunarfræðinga um launahækkanir kosti allt að fimm milljörðum krónum meira en aðrir hafi samið um.

Samfylkingin vill styðja Icelandair með hlutabréfakaupum
Formaður Samfylkingarinnar segir eðlilegt að íslensk stjórnvöld fari sömu leið og önnur ríki sem eignast hafi hlut í flugfélögumá móti stuðningi sínum við þau. Fjármálaráðherra segir það eiga að vera síðasta úrræðið.