Á þriðja tug mála bíða afgreiðslu og óvissa um frestun þingfunda Forseti Alþingis er vongóður um að samkomulag takist á næstu sólarhringum um afgreiðslu mála fyrir þingfrestun. Rúmlega tuttugu mál væru það langt komin að þau ættu að ná afgreiðslu. Hins vegar væri ekkert því til fyrirstöðu að funda lengra inn í júnímánuð ef á þyrfti að halda. Innlent 12. júní 2024 11:52
Ekkert bús í búðir! Fjölmörg samtök, stofnanir og einstaklingar hafa vakið máls á þeirri vegferð sem Sjálfstæðisflokkurinn hóf fyrir mörgum árum; að fá vín í búðir. Má þar nefna samtökin Fræðsla og forvarnir, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum og ýmsar breiðfylkingar forvarnasamtaka sem hafa unnið gott starf á málefnalegum og faglegum grunni til að halda lýðheilsusjónarmiðum varðandi áfengissölu á lofti. Skoðun 12. júní 2024 11:31
Forsendur ríkisstjórnarinnar hafi verið slegnar af borðinu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir endurnýjaða ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar hafa lagt áherslu á mál sem Miðflokkurinn hafi verið búinn að hamast á þar á undan. Ríkistjórnin sé síðan ekki búin að gera neitt í þessum málum. Innlent 12. júní 2024 09:08
Vonast til þess að ráðgátan um Lögréttutjöldin leysist Lögréttutjöldin eru komin aftur til Íslands eftir að hafa verið í Skotlandi í 166 ár. Verkefnastjóri sýningarinnar segir margt um sögu tjaldanna vera mikla ráðgátu og vonast til þess að læra meira um þau á meðan þau eru til sýnis. Innlent 11. júní 2024 19:10
Ráðherra sendir lögreglu erindi vegna netsölu áfengis Fjármála- og efnahagsráðherra hefur sent lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu erindi vegna netsölu áfengis til neytenda hér á landi. Málið var til umræðu á Alþingi í dag. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins líkti heimsendingu á Brennivíni eins og hún er framkvæmd í dag við nútíma sprúttsölu. Innlent 11. júní 2024 18:19
Ólíðandi misbeiting matvælaráðherra á valdi Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir blasa við að málsmeðferð matvælaráðherra í hvalveiðimálinu sé engan veginn í samræmi við lög eða stjórnarskrá landsins. Rökin sem ráðherrann færi fyrir langdreginni málsmeðferð standist enga skoðun. Innlent 11. júní 2024 14:36
Ólafur Ragnar segir deilur um forsetaembættið endanlega afgreiddar Fyrrverandi forseti Íslands segir ágreining um verksvið forseta Íslands hafa verið leystan í nýafstöðnum forsetakosningum, þar sem allir helstu frambjóðendur hefðu í fyrsta skipti verið sammála um meginvaldsvið og verkefni embættisins. Stjórnarskráin hafi reynst embættinu vel. Innlent 11. júní 2024 13:36
Inga vill helst fjármálaráðuneytið Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir að hún myndi helst vilja fara í fjármálaráðuneytið fengi hún að velja á milli allra mögulegra ráðuneyta. Innlent 11. júní 2024 09:02
Nokkrar góðar ástæður til að svindla á örorkukerfinu Allt frá blautu barnsbeini vissi ég nákvæmlega hvert ég vildi stefna í lífinu, ég vildi vaða í seðlum án þess að vinna neitt og vera laus við allt vesen og stress. Ég áttaði mig aldrei á af hverju fólk væri að leggja á sig að fara í nám til að læra einhverja iðn eða stefna á háskólanám, bæði með tilheyrandi kostnaði og álagi. Nei, ég ætlaði sko ekki að strita og púla að óþörfu. Ég ákvað að redda mér örorkumati og lifa ljúfa lífinu án þess að lyfta fingri. Skoðun 11. júní 2024 08:00
Vilja skoða að gera RÚV aftur að hefðbundinni ríkisstofnun Meirihluti fjárlaganefndar telur skynsamlegt að kannaðir verði kostir og gallar þess að Ríkisútvarpið verði gert að hefðibundinni ríkisstofnun að nýju. Þetta kemur fram í meirihlutaáliti um fjármálaáætlun fyrir árin 2025 til 2029 sem lagt var fram á þingi í gær. Innlent 11. júní 2024 07:00
Fjárlaganefnd leggur til opnun sendiráðs á Spáni Fjárlaganefnd hefur lagt til opnun sendiráðs Íslands á Spáni í nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um fjármálálaáætlun næstu fimm ár. Hingað til hefur Spánn verið umdæmisland sendiráðsins í París. Innlent 10. júní 2024 19:36
Ráðherra hafi ekki mátt láta rannsaka meðferðarheimilið Barnamálaráðherra hafði ekki lagaheimild til að fela Gæða - og eftirlitsstofnun að rannsaka meðferðarheimili sem var á Laugalandi og Varpholti að mati Persónuverndar. Forstjóri stofnunarinnar segir miður þegar mál falla á formgalla. Innlent 10. júní 2024 19:03
Segir magnafslátt á umhverfissóðaskap skelfilega hugmynd Gísli Rafn Ólafsson Pírati var ómyrkur í máli um þann hrylling sem hann og Píratar telja sjókvíaeldi vera. Hann sagði magnafslátt, eins og til sendur á leiða í lög með nýjum lagasetningum um lagareldi, skelfilega hugmynd. Innlent 10. júní 2024 16:26
Almannahagsmunir að slíkar upplýsingar séu opinberar Forstjóri Gæða-og eftirlitsstofnunar velferðarmála segir úrskurð Persónuverndar um greinargerð um meðferðarheimilið Laugaland/Varpholt hafa komið á óvart. Í honum fólst að fjarlægja þurfti greinargerð af vef stofnunarinnar. Slík mál eigi erindi við almenning og eigi ekki við um úttektir sem stofnunin vinnur að í dag. Innlent 10. júní 2024 14:01
Hófu frumkvæðisathugun á netsölu áfengis í morgun Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hóf á fundi sínum í morgun frumkvæðisathugun vegna netsölu á áfengi. Formaður nefndarinnar segir tilefnið vera ítrekaðar ábendingar um að salan fari fram í lagalegu tómarúmi. Innlent 10. júní 2024 13:10
Willum vill pakka tóbaki í ljótasta lit í heimi Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur lagt fram drög að reglugerð, sem fer núna til samráðs, sem varðar pakkningar á öllum tóbaksvörum. Innlent 10. júní 2024 10:15
Furða sig á að starfsfólkið þegi ennþá Konur sem segjast sem unglingar hafa orðið fyrir miklu ofbeldi af hálfu stjórnenda á meðferðarheimili á Laugalandi áður Varpholti, furða sig á þögn annarra starfsmanna. Þá er fyrrverandi forstjóri Barnarverndarstofu sakaður um að hafa reynt að hafa áhrif á vitnisburð um heimilið fyrir opinberri nefnd. Innlent 10. júní 2024 08:00
Telur kjördæmin of stór og vill jafna vægi atkvæða Forsætisráðherra telur að kjördæmi séu of stór og að jafna ætti vægi atkvæða á milli þeirra. Hann boðaði formenn flokkanna á Alþingi til fundar í dag til þess að ræða stjórnarskrárbreytingar. Innlent 7. júní 2024 23:24
Vinstri græn flýta landsfundi Guðmundur Ingi Guðbrandsson hefur sent út bréf til félaga í Vg þar sem hann tilkynnir að búið sé að flýta landsfundi hreyfingarinnar. Hann segir Vg nú standa á tímamótum. Innlent 7. júní 2024 16:43
Strandveiðimenn mótmæltu við Alþingishúsið: „Þurfum að gera talsverðar breytingar á kerfinu“ Stór hópur strandveiðimanna gekk frá Hörpu að Alþingishúsinu í dag og krafðist þess að veiðitímabil þeirra yrði tryggt út ágúst. Hópurinn afhenti matvælaráðherra kröfubréf þess efnis, en hún segir þörf á talsverðum breytingum á strandveiðikerfinu. Innlent 7. júní 2024 15:53
Vill upplýsingar um bótasvik öryrkja Birgir Þórarinsson hefur lagt fram fyrirspurn til félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem hann kallar eftir upplýsingum um umfang bótasvika og áhrif á útgjöld ríkisins. Frumvarp um heildarendurskoðun á örorkulífeyriskerfinu liggur fyrir Alþingi og viðbúið að tekist verði á um málið í þingsal. Innlent 7. júní 2024 14:06
Kosningaáróður skrifstofu Alþingis? Nú fara fram kosningar til Evrópuþingsins. Eins og ritstjórn Morgunblaðsins hefur bent á, benda skoðanakannanir til þess að popúlískir og svokallaðir „róttækir hægriflokkar“ dragi til sín mikið fylgi. Í umfjöllun blaðsins er jafnframt farið yfir umdeilda flokkun umræddra stjórnmálaflokka til hægri, enda tali þeir fæstir fyrir einstaklingsfrelsi og þeim mun fleiri aðhyllist miðstýringu og aukin ríkisafskipti. Skoðun 7. júní 2024 08:00
Bjarni vill fjölga meðmælendum Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur boðað formenn allra flokka á fund í dag að loknum ríkisstjórnarfundi. Tilefni fundarins er að ræða hugsanlegar breytingar á stjórnarskrá. Líklegt er að þar verði breytingar á meðmælendafjölda forsetaframbjóðenda til umræðu. Innlent 7. júní 2024 07:30
Sanngjarnt lífeyriskerfi: Í andstöðu við yfirlýst markmið Á Alþingi Íslendinga er nú til meðferðar frumvarp um endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu, sem myndi fela í sér einhverjar mestu breytingar á kerfinu fyrr og síðar verði frumvarpið samþykkt. ÖBÍ réttindasamtök hafa komið á framfæri fjölda athugasemda og tillagna um breytingar á frumvarpinu. Skoðun 6. júní 2024 13:30
Hrekkjalómur kroppar slaufuna af ókyngreindum salernum Sumir halda því fram að ein stoð þess að ríkisstjórnin haldi velli sé ósamstæð stjórnarandstaða. Klósettmálin eru þar ekki til að bæta úr skák. Lífið 6. júní 2024 12:08
Ákvörðun Bjarkeyjar um hvalveiðar mun liggja fyrir á þriðjudaginn Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra sagði á þinginu nú rétt í þessu að hún muni birta ákvörðun sína um hvort hvalveiðar verði leyfaðar á þriðjudaginn. Innlent 6. júní 2024 10:49
Segir íbúa Reykjanesbæjar búa við ógn vegna fjölda hælisleitenda Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að það veki óhug að lesa fréttir eins og þá sem birtist á Vísi í vikunni um átta Palestínumenn sem ákærðir hafa verið fyrir líkamsárásir gegn konu. Hann segir íbúa í Reykjanesbæ búa við ógn af hælisleitendum sem þar búa. Innlent 5. júní 2024 22:36
Mikilvæg mál föst vegna „störukeppni“ ríkisstjórnarinnar Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar segir mikilvæg mál fyrir þjóðarheill föst í þinginu vegna þess að ríkisstjórnarflokkarnir ná ekki samkomulagi sín á milli. Hann segir að það megi láta þingviljann ráða ef meirihluti er fyrir slíkum málum til að „störukeppninni“ eins og hann kallar hana geti lokið. Innlent 5. júní 2024 22:25
Viðreisn býðst til að bjarga lögreglufrumvarpi dómsmálaráðherra Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögreglulögum miðar meðal annars að því að efla svokallaðar „afbrotavarnir“ eða „forvirkar rannsóknarheimildir“ lögreglu. Það er enn fast í nefnd og óljóst hvort takist að koma málinu í gegn áður en þingi verður slitið. Innlent 5. júní 2024 16:51
Brynjar grætur ekki fylgistap Vg sem hann segir þeim sjálfum að kenna Brynjar Níelsson varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins gefur minna en ekkert fyrir það tal að Vinstri grænir séu nú búnir að gefa meira en nóg eftir, með vísan til fylgishruns. Innlent 5. júní 2024 16:39