Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Michelle Licata var sextán ára nemandi við Royal Palm Beach High School þegar vinkona hennar sendi henni skilaboð í tíma, skömmu fyrir jól árið 2004. Hún spurði hana hvort hún vildi vinna sér inn auka pening með því að nudda gamla menn. Licata sá fyrir sér að veita mönnum nudd á einhvers konar heilsustofnun eða hjúkrunarheimili og sagði já; hana langaði til að geta gefið öllum í fjölskyldunni sinni smá jólagjöf. Þegar vinkonan sótti Licata einn daginn var áfangastaður þeirra hins vegar hvorki spa eða heimili fyrir aldraða, heldur glæsivilla Jeffrey Epstein við 358 El Brillo Way, á Palm Beach í Flórída. Erlent 22. febrúar 2026 20:02
Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Austin Martin, 21 árs gamall karlmaður, var skotinn til bana í Mar-a-Lago, sveitaklúbbi og heimili í eigu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, af fulltrúum lögreglu og Lífvarðarsveit forsetans. Hann var vopnaður og hafði smyglað sér inn fyrir hliðið umhverfis bygginguna. Erlent 22. febrúar 2026 14:19
Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt á samfélagsmiðli sínum að hann ætli að senda spítalaskip til Grænlands. Dregið hefur úr hótunum hans undanfarnar vikur en forsætisráðherra Danmerkur telur hann enn girnast landið. Hún segist glöð með að búa í landi þar sem jafnt aðgengi er að heilbrigðiskerfinu. Erlent 22. febrúar 2026 11:24
Íranir mótmæla á ný Stúdentar við háskóla víðs vegar um Íran hafa staðið fyrir mótmælum gegn klerkastjórninni í dag. Mótmælin eru þau fyrstu síðan mótmælahrinunni, sem hófst í lok desember og áætlað er að hafi kostað þrjátíu þúsund manns lífið, lauk. Erlent 21. febrúar 2026 23:49
Trump hækkar tolla á öll lönd Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hækkað tolla á öll lönd í heiminum úr tíu prósentum í fimmtán. Hann greinir frá á Truth Social. Viðskipti erlent 21. febrúar 2026 16:11
Verða árásir á Íran gerðar frá Keflavíkurflugvelli? Þegar Bretar, Þjóðverjar, Frakkar og Ítalir hafa tekið fyrir að Bandaríkjamenn geti notað herflugvelli þeirra til árása á Íran, er nærtækt að hugsa til Keflavíkurflugvallar. Skoðun 21. febrúar 2026 16:01
Áhorfið rýkur upp þegar minnst er á Ísland Rósa Linh Ngo heldur úti TikTok-reikningi ásamt Madison vinkonu sinni þar sem þær hafa undanfarið birt myndbönd tengd íslenskum matarvenjum. Áhorfstölur virðast rjúka upp þegar minnst er á Ísland. Myndband þar sem Rósa kynnir áhorfendur fyrir ristuðu brauði með smjöri, osti og sultu hefur sem stendur halað inn 7,2 milljónum áhorfa. Lífið 21. febrúar 2026 13:02
Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Donald Trump Bandaríkjaforseti kom fram á blaðamannafundi í kvöld eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi úr gildi stóran hluta þeirra tolla sem hann hefur lagt á innfluttar vörur síðasta árið. Erlent 20. febrúar 2026 18:17
„Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir nýjan kafla vera kominn í sögu tolla Donalds Trump Bandaríkjaforseta, eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi þá flesta ólögmæta í dag. Óvissa um tollana sé síst minni eftir dóminn. Viðskipti innlent 20. febrúar 2026 16:52
Flestir Trump-tollarnir dæmdir ólöglegir Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi í dag úr gildi stóran hluta þeirra tolla sem Donald Trump forseti hefur lagt á innfluttar vörur síðasta árið. Þeir tollar sem byggja á neyðarlögum eru taldir ólöglegir. Viðskipti erlent 20. febrúar 2026 15:08
Gyða semur tónlist fyrir kvikmynd Bad Bunny Gyða Valtýsdóttir mun semja tónlistina við kvikmyndina Porto Rico í leikstjórn rapparans René „Residente“ Pérez Joglar. Stórstjarnan Benito Martinez Ocasio, betur þekktur sem Bad Bunny, fer með aðalhlutverkið og munu Viggo Mortensen, Edward Norton og Javier Bardem einnig leika í myndinni. Bíó og sjónvarp 20. febrúar 2026 13:28
Frá einni ofurbombu til annarrar Bandaríska fyrirsætan Emily Ratajkowski fann ástina í örmum fransk-gríska leikstjórans Romain Gavras og hefur frumsýnt sambandið á miðlunum. Gavras deitaði poppstjörnuna Dua Lipa árið 2023 og söngkonuna Ritu Ora þar áður. Lífið 20. febrúar 2026 10:49
Af hverju dollarinn gæti gefið enn frekar eftir Vandræðagemsar veita lítið skjól.Ef stórir, þolinmóðir fjárfestar sigla risaskipum sínum úr bandarískri höfn gæti dalurinn orðið fyrir verulegum þrýstingi. Umræðan 20. febrúar 2026 09:33
Eric Dane er látinn Leikarinn og hjartaknúsarinn Eric Dane er látinn. Hann var 53 ára. Dane, sem var hvað frægastur sem „McSteamy“ í Grey's Anatomy og nú síðast fyrir leik sinn í þáttunum Euphoria, sagði frá því í fyrra að hann hefði greinst með hreyfitaugungahrörnun (ALS). Lífið 20. febrúar 2026 06:18
Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Bandaríska ríkið hefur komið upp vefgátt þar sem Evrópubúar geta skoðað efni sem lokað hefur verið á. Bandaríkjastjórn hefur sakað Evrópuríki um að grafa markvisst undan tjáningarfrelsi í álfunni. Erlent 19. febrúar 2026 20:44
Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Donald Trump Bandaríkjaforseti fullyrti á blaðamannafundi að Norðmenn myndu hýsa fund Friðarráðsins svokallaða. Norðmenn koma af fjöllum. Erlent 19. febrúar 2026 17:41
Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina Flugher Bandaríkjanna hefur opinberað hvernig nýjar forsetaflugvélar ríkisins eiga að líta út. Þær verða bláar, rauðar og hvítar, með dass af gulli, eins og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lagði til á sínu fyrra kjörtímabili. Erlent 19. febrúar 2026 16:52
„Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Árið 2016 var hinn franski Jean-Luc Brunel, sem starfaði lengi við að finna fyrirsætur, í viðræðum við lögmenn fórnarlamba Jeffreys Epstein. Þær viðræður snerust um að hann segði saksóknurum í New York frá því sem hann vissi um meint mansal Epsteins. Erlent 19. febrúar 2026 15:52
Bar vitni í dómsmáli sem gæti dregið dilk á eftir sér Mark Zuckerberg, forstjóri Meta, bar í gær vitni í fyrsta sinn í dómsmáli þar sem fjallað er um ávanabindandi samfélagsmiðla og tækni. Réttarhöldin gætu haft mikil áhrif á rekstur samfélagsmiðla á næstu árum. Viðskipti erlent 19. febrúar 2026 13:55
Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Bandaríkjamenn hafa ekki haft jafn mikinn viðbúnað í háloftunum og getu til loftárása í Mið-Austurlöndum frá árinu 2003, þegar innrás var gerð í Írak. Búið er að senda gífurlegan fjölda herþota og stuðningsflugvéla á svæðið, auk tveggja flugmóðurskipa og fjölda annarra herskipa. Erlent 19. febrúar 2026 11:12
Ekkja Hefners varar við birtingu nektarmynda úr dagbókum hans Crystal Hefner, ekkja Playboy-útgefandans Hughs Hefner, heldur því fram að úrklippu- og dagbækur hans innihaldi nektarmyndir af konum teknar í óleyfi og hugsanlega myndir af ólögráða stúlkum. Til stendur að skanna inn öll skjölin stafrænt svo þau varðveitist. Crystal óttast að efnið muni leka út og hefur því sent kvörtun til ríkissaksóknara Kaliforníu og Illinois. Lífið 19. febrúar 2026 11:06
Fleiri telja Bandaríkin andstæðing en bandamann Rúmlega fjörutíu prósent svarenda í skoðanakönnun segjast telja Bandaríkin andstæðing Íslands en tæpur þriðjungur að þau séu bandamaður. Fjórðungur svarenda segist ekki vita svarið. Innlent 19. febrúar 2026 10:27
„Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Les Wexner, stofnandi Victoria's Secret, Bath and Body Works og Abercrombie & Fitch, bar vitni fyrir þingnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær og sagðist hafa verið trúgjarn kjáni þegar hann lét fjármál sín í hendur Jeffrey Epstein. Erlent 19. febrúar 2026 08:06
Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Björgunarsveitarmenn í Kalíforníu hafa nú fundið átta lík í hlíðum fjalls við Tahoe vatn eftir að hópur skíðamanna lenti í snjóflóði á þriðjudagskvöld. Erlent 19. febrúar 2026 07:27
Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Sagt er að hláturinn lengi lífið. Skotinn Michael Mcfeat mun hins vegar hugsa sig tvisvar um áður en hann segir brandara aftur. Lífið 19. febrúar 2026 07:00
Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tugir þjóðarleiðtoga og sendinefnda munu mæta á stofnfund Friðarráðs Donald Trump Bandaríkjaforseta í Washington í dag. Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Þýskalands verða hins vegar fjarri góðu gamni, þar sem ríkin hafa afþakkað boð um sæti í ráðinu. Erlent 19. febrúar 2026 06:53
„Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er líklegri en ekki til að hefja stríð gegn klerkastjórninni í Íran og slíkt stríð gæti hafist á næstunni. Árásir yrðu umfangsmiklar og stæðu líklega yfir í að minnsta kosti nokkrar vikur. Trump er sagður vera að missa þolinmæðina gagnvart klerkastjórninni. Erlent 18. febrúar 2026 15:25
Taka umsókn Moderna til skoðunar eftir allt saman Lyfjastofnun Bandaríkjanna segist nú ætla að taka umsókn lyfjafyrirtækisins Moderna um markaðsleyfi fyrir nýja flensusprautu til skoðunar eftir allt saman. Upphafleg ákvörðun stofnunarinnar um að neita að taka umsóknina fyrir olli fjaðrafoki. Viðskipti erlent 18. febrúar 2026 14:36
Handtekinn fyrir að sýna typpið Monty Lopez sem er hvað þekktastur fyrir að vera faðir poppstjörnunnar Addison Rae var handtekinn fyrir óviðeigandi nekt á almannafæri síðastliðið sumar. Lífið 18. febrúar 2026 12:30
Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Laufey hefur sagt skilið við bókunarskrifstofuna Wasserman. Gustað hefur um forstjórann Casey Wasserman vegna veru hans í Epstein-skjölunum og yfirgaf tónlistarkonan Chappell Roan fyrirtækið vegna þess. Tónlist 18. febrúar 2026 12:02