
Banninu verður ekki flýtt
Ráðherra orkumála segir að banni við nýskráningum á bílum sem ganga á jarðefnaeldsneyti verði ekki flýtt. Það sé þó mikilvægt fyrir Íslendinga að átta sig á því að hagkvæmast sé að keyra um á rafbílum.
Nýjustu fréttir, fróðleikur og skemmtileg myndbönd sem tengjast bílum.
Ráðherra orkumála segir að banni við nýskráningum á bílum sem ganga á jarðefnaeldsneyti verði ekki flýtt. Það sé þó mikilvægt fyrir Íslendinga að átta sig á því að hagkvæmast sé að keyra um á rafbílum.
Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir það óframkvæmanlegt að banna nýskráningu bíla sem ganga á jarðefnaeldsneyti eftir tæp fjögur ár. Vinsældir rafbíla hafa dvínað gríðarlega það sem af er árs.
Kanadísk hjón á ferð um landið lentu í hættu við akstur í rigningu á Vestfjörðum þegar bílaleigubíll sem þau höfðu leigt flaut upp og lét ekki að stjórn. Eyþór Eðvarðsson var staddur á sama hóteli og þau og heyrði þau útundan sér ræða bílavandræði sín. Í ljós kom að dekkin á bílnum voru handónýt og auk þess hafði bíllinn verið ekinn tæplega 250 þúsund kílómetra.
Erlend kona á ferð um landið lést í alvarlegu umferðarslysi á Snæfellsnesvegi norðan Hítarár þegar þegar annar erlendur ferðamaður sem ók Nissan-bifreið úr gagnstæðri átt sofnaði við akstur, ók yfir á rangan vegahelming og framan á húsbílinn.
Tesla Cybertruck verður til sýnis hér á landi um helgina, eftir að hafa flakkað um Evrópu síðustu vikur. Einn helsti Teslu-áhugamaður landsins segir bílinn uppfylla allar hans kröfur.
Vegagerðin stefnir að því að ljúka framkvæmdum við gatnamót Kringlumýrar- og Miklubrautar fyrir verslunarmannahelgi, þannig að umferð tefjist ekki lengur við þessi fjölförnustu gatnamót landsins.
Fólk sem verður staðið að svindli í ökuprófum má svipta réttinum til að þreyta ökuprófið að nýju í allt að hálft ár. Áður gátu viðkomandi mætt aftur í prófið viku síðar.
Tryggingafélagið Sjóvá hefur sent viðskiptavinum sínum, sem eiga bifreiðar af gerðinni Tesla, tölvupóst þar sem athygli er vakin á því að Teslum er ekið oftar á mannvirki en öðrum bílum.
Rúmlega þrjátíu nýir Toyota-bílar; aðallega Proace sendibílar en einnig fáeinir af gerðinni Land Cruiser, hefur verið eða verður fargað.
Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum þarf ekki að afhenda bíl, sem það lagði hald á í janúar á þessu ári, til eigandans. Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis.
Bergþóra Kristinsdóttir framkvæmdarstjóri þjónustusviðs segir fjárveitingar til viðhalds vega og malbikunar ekki hafa vaxið í hlutfalli við síaukið álag á vegakerfi landsins. Vegaklæðing sé notuð til að binda slitlag þegar malbikun væri æskilegri vegna umferðarálags. Bikblæðing á fjölförnum vegum getur valdið mikilli hálku.
Mótorhjólamaður segir að dæmi séu um að eigendur Tesla bíla slökkvi á skynjara í bílnum sem bjargaði lífi hans á dögunum. Litlu mátti muna að hann hafi fengið Teslu á sig á miklum hraða á gatnamótum Klettagarða og Sæbrautar og segir hann alveg ljóst að það hefði verið hans síðasta. Ekki er um að ræða fyrsta skiptið sem búnaðurinn kemst í fréttir hér á landi.
Á bílasýningu Akureyrar í dag, þjóðhátíðardaginn, 17. júní verða til sýnis þrír nýsmíðaðir torfærubílar, og eru það þrjár kynslóðir sem sýna hver sinn bíl. Bílarnir heita Léttfeti, Snáðinn og Snúðurinn.
Brimborg hefur náð samkomulagi við Volvo Cars um verðlækkun á Volvo EX30 rafbílnum, næst vinsælasta rafbílnum á Íslandi, sem meðal annars innifelur þriggja ára þjónustu og viðhald.
Brimborg frumsýnir glænýjan Peugeot E-3008 rafbíl með framúrskarandi drægni, góðum hleðsluhraða, nýju stórfenglegu Panoramic i-Cockpit innra rými, ríkulegum útbúnaði, snjallhleðslu og víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.
Í Bítinu á Bylgjunni, 12. júní sl. var Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, að tjá sig um vegakerfið. Þar lýgur hann að hlustendum mest allt viðtalið. Hann fullyrðir m.a. að „það fari meiri peningar til samgöngumála en voru lagðir á umferðina“.
Nýskráningar rafbíla á þessu ári hafa hrunið í samanburði við síðasta ár og Ísland er óðum að missa forystuhlutverk sitt í orkuskiptum samgagna.
Bílaumboðið Una ehf., systurfélag Bílaumboðsins Öskju, hefur skrifað undir samning við bílaframleiðandann XPENG og þannig tryggt sér sölu- og dreifingarrétt á Íslandi.
Brimborg og bílaframleiðandinn Polestar hafa komist að samkomulagi um verðlækkun á Polestar 2. Um takmarkað magn er að ræða.
Hentar ehf. hefur verið starfrækt í tvö ár og býður upp á rekstrarleigu á ökutækjum þar sem áhersla er lögð á nýja rafbíla með fjölbreyttu úrvali af ökutækjum sem Bílaumboðið Askja býður upp á.
Sumri verður fagnað hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota á laugardag, 8. júní. Þá verður efnt til sýningar þar sem sjá má alla Toyota línuna og söluráðgjafar verða að sjálfsögðu í sumarskapi og finna rétta bílinn sem hentar fyrir ferðalögin fram undan.
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur úrskurðað fyrirtæki sem annast þrif á bílum til þess að greiða einstaklingi rétttæpar 1,6 milljónir króna í skaðabætur vegna bíls sem fór illa úr þrifum hjá fyrirtækinu.
Mercedes-Benz á Íslandi býður gestum og gangandi einstakt tækifæri til þess að sjá þennan magnaða CLE 53 frá Mercedes-AMG á laugardag milli kl 12-16 . Tilvalið að koma við á leið á kjörstað og upplifa sportlegan og kraftlegan AMG bíl frá Mercedes-Benz.
Mannlaus rúta brann til kaldra kola á bílastæði í Sóltúni í Reykjavík skömmu eftir klukkan sjö í kvöld. Enginn annar skaði varð af völdum eldsins. Slökkvilið telur að rútan hafi verið númerslaus.
Umráðamaður bifreiðar náði að koma í veg fyrir að innbrotsþjófur kæmist burt eftir að hann greip þjófinn glóðvolgan. Þjófurinn var hálfur inni í bílnum þegar komið var að honum.
Notkun samfélagsmiðla við akstur er sívaxandi vandamál að mati lögreglu. Vel er fylgst með símanotkun ökumanna þessa dagana auk þess sem fjölmargir hafa að undanförnu fengið himinháa sekt vegna nagladekkja.
Eldur kviknaði í fólksbíl á gatnamótum Dalbrautar og Sæbrautar nú í kvöld. Slökkviliðsmenn réðu niðurlögum eldsins fljótt og engum sögum fer af því að ökumann bílsins hafi sakað.
Sala á nýjum bílum er að dragast skarpt saman þrátt fyrir hagvöxt, nokkuð sem hefur ekki gerst í liðlega hálfa öld, en á sama tíma er sala á notuðum bílum að ganga vel. Ýmis bílaumboð áttu umtalsvert af nýjum bílum um áramótin en sú staða hefur batnað eftir því sem leið á árið, að sögn viðmælanda Innherja. Bankamaður telur engin teikn á lofti hvað varðar getu bílaumboðanna við að standa í skilum en fjármagnskostnaður bílaumboða getur verið um tólf prósent.
Frá og með morgundeginum verða bókleg almenn ökupróf rafræn um allt land. Allir ökunemar munu því framvegis taka próf til B-réttinda í tölvu hjá prófamiðstöð Frumherja.
Bílastæðaþjónustan Base Parking á Keflavíkurflugvelli var úrskurðuð gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku. Vefsíðu hennar hefur verið lokað, rúmum tveimur vikum eftir að nafni félagsins var breytt í Siglt í strand ehf. Fyrirtækið hefur ítrekað ratað í fréttir vegna óánægju viðskiptavina með þjónustuna.