Myndaveisla: Ferðamenn trúa ekki eigin augum í Meradölum Þeir ferðamenn sem ljósmyndari okkar, Vilhelm Gunnarsson myndaði við gosstöðvarnar í Meradölum trúðu ekki sínum eigin augum þegar þeir sáu tilkomumikið sjónarspilið í dalnum í fyrsta sinn. Það er enda ekki á hverjum degi sem fólk víðs vegar að kemst í tæri við eldgos. Innlent 11. ágúst 2022 10:19
Engin breyting á gosinu og meinlaust veður fyrri hluta dags Engin breyting hefur orðið á eldgosinu í Meradölum og álitlegra veður verður á svæðinu í dag en hann rignir með kvöldinu. Innlent 11. ágúst 2022 07:05
Telur mörg þúsund hafa gengið að gosinu í dag Svæðið við gosstöðvarnar í Meradölum var opnað aftur í morgun eftir þriggja daga lokun. Fjöldi fólks lagði leið sína að gosstöðvunum og telur björgunarsveitarmaður að þúsundir hafi farið um svæðið í dag. Innlent 10. ágúst 2022 19:31
Gosmyndavél Vísis komin í loftið Vísir sýnir nú beint frá eldgosinu í Meradölum. Hægt er að fylgjast með gangi gossins á Vísi sem og á Stöð 2 Vísi í sjónvarpi. Innlent 10. ágúst 2022 14:36
Hraun við það að renna út úr Meradölum Lítið vantar upp á að hraun fari að flæða út úr Meradölum en hraunið hefur hækkað um sjö til átta metra þar sem skarðið er hvað lægst. Þetta sýna stikur sem settar voru upp austast í dölunum á föstudag, að sögn Magnúsar Tuma Guðmundssonar, prófessors í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. Innlent 10. ágúst 2022 14:11
Hátt í tvö þúsund fóru að gosstöðvunum þrátt fyrir lokanir Hátt í tvö þúsund manns fóru að gosstöðvunum síðustu þrjá daga, þrátt fyrir að lokað hafi verið fyrir aðgengi að þeim þessa daga. Lögreglan segir að erlendir ferðamenn hafi streymt inn á svæðið þrátt fyrir lokanir. Innlent 10. ágúst 2022 12:23
Opna fyrir aðgengi að gosstöðvunum á ný Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að opna aftur fyrir aðgengi almennings að gosstöðvunum í Meradölum. Innlent 10. ágúst 2022 09:37
Lögðu stikur í svartaþoku og snarvitlausu veðri Björgunarsveitin Þorbjörn lögðu stikur fyrir alla gönguleiðina að gosstöðvunum í Meradölum í svartaþoku og snarvitlausu veðri í gærkvöld. Ekki veitir af enda virðast ferðamenn enn hætta sér á gönguleiðina í vonskuveðri þvert á tilmæli björgunarsveita og lögreglu. Innlent 10. ágúst 2022 08:33
Stærri gígur að myndast á miðri sprungunni Nokkuð myndarlegur og stærri gígur virðist vera að myndast á miðri gossprungunni í Meradölum. Gígurinn sást vel á vefmyndavél frá Langhól í nótt og hleypir hann frá sér stórum gosstrókum. Innlent 10. ágúst 2022 07:28
„Utan frá séð lítur þetta út eins og einhver geðþóttaákvörðun“ Í morgun tók lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að gossvæðið yrði lokað fyrir alla umferð í dag, en tilkynnti jafnframt að ákvörðun hefði verið tekin um að heimila ekki umferð barna yngri en tólf ára um gosstöðvarnar, óháð veðurskilyrðum. Innlent 9. ágúst 2022 21:38
Mikilvægt að undirbúa sig undir að gosið standi yfir í langan tíma Á fundi Vísindaráðs almannavarna í morgun var farið yfir nýjustu gögn og mælingar um eldgosið í Meradölum. Gosvirknin hefur haldist nokkuð stöðug síðustu daga og er það mikilvægt að undirbúa sig undir að gosið gæti staðið yfir í nokkuð langan tíma. Innlent 9. ágúst 2022 17:21
Sum börn séu betur til þess fallin að ganga að gosinu en fullorðið fólk Í dag bárust fregnir af því að lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefði tekið þá ákvörðun að börn undir tólf ára aldri væru ekki velkomin að eldgosinu í Meradölum. Mikið ósætti virðist ríkja meðal fólks vegna ákvörðunarinnar en lögreglustjórinn, Úlfar Lúðvíksson segir að verið sé að „tryggja hagsmuni barna“ með þessari ákvörðun. Innlent 9. ágúst 2022 17:15
Hraunið nánast komið út í enda Meradala Lítið er að frétta af þróun eldgossins í Meradölum en ekki hefur verið hægt að fara í mælingarflug yfir svæðið frá því á fimmtudag vegna veðurs. Órói er nú stöðugur og hefur dregið úr skjálftavirkni. Innlent 9. ágúst 2022 14:20
Heimilt að sekta fólk sem ekki virðir lokanir á gosstöðvum Lögreglan á Suðurnesjum hefur heimildir til að sekta fólk sem virðir ekki lokanir lögreglu við gosstöðvarnar í Meradölum. Það er þó ekki til skoðunar sem stendur. Svæðið er lokað öllum í dag, vegna veðurs, og verður framvegis alfarið lokað börnum yngri en tólf ára. Innlent 9. ágúst 2022 11:52
Eldgosið bannað börnum yngri en tólf ára Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að meina börnum yngri en tólf ára aðgangi að eldgosinu í Meradölum. Öflugri gæsla verður á svæðinu í dag en í gær. Innlent 9. ágúst 2022 10:55
Gosstöðvarnar verða áfram lokaðar Tekin hefur verið ákvörðun um að áfram verði lokað inn á gosstöðvarnar í dag, þriðjudag, vegna veðuraðstæðna. Innlent 9. ágúst 2022 09:05
Gosstöðvar að öllum líkindum opnaðar aftur þrátt fyrir vonskuveður Gönguleiðir að gosstöðvunum verða opnaðar aftur klukkan tíu að öllu óbreyttu. Það verður þó mjög blautt og mælt með því að bíða með ferðir fram yfir hádegi, að minnsta kosti. Gosórói helst óbreyttur. Innlent 9. ágúst 2022 07:11
Gígar farnir að byggjast upp í Meradölum Við upphaf eldgossins í Meradölum opnaðist ein löng sprunga sem hraun vall upp úr. Nú virðist sem sprungan sé farin að skiljast að og gígar farnir að byggjast upp líkt og í eldgosinu í fyrra. Sérfræðingur segir gosið svipað því sem var í Geldingadölum í fyrra. Innlent 8. ágúst 2022 20:50
Um tíu manns bjargað úr Meradölum Tveimur hópum ferðamanna, sem töldu um tíu manns, var bjargað af björgunarsveitarfólki við gosstöðvurnar fyrr í kvöld. Að sögn björgunarsveitarfólks voru ferðamennirnir kaldir og hraktir. Innlent 8. ágúst 2022 18:55
Nokkrir hópar taldir villtir við gosstöðvarnar Búið er að kalla út nokkrar björgunarsveitir af suðvesturhorni vegna hópa fólks sem taldir eru vera villtir á svæðinu við gosstöðvarnar við Meradali. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg er vitað um minnst tvo hópa sem eru týndir og er vitað af fleirum á svæðinu. Innlent 8. ágúst 2022 16:32
Vill að tilmæli verði gefin út um göngu barna að gosinu Borgarfulltrúi Flokks fólksins mælist til þess að yfirvöld gefi út sérstök tilmæli til foreldra að þeir taki fyrirmælum um að fara ekki með ung börn sín að eldgosinu í Meradal alvarlega. Innlent 8. ágúst 2022 15:33
Flakkari á siglingu um hrauntjörnina Það kennir ýmissa grasa þegar eldgos eiga í hlut. Eitt af því eru fyrirbæri sem minnir á fljótandi borgarísjaka í hrauntjörninni og hefur fengið heitið flakkari hér á landi. Innlent 8. ágúst 2022 12:09
Björgunarsveitarmenn fái illt í hjartað þegar börn eru dregin að gosinu Svæðið við gosstöðvarnar verður áfram lokað í dag vegna veðuraðstæðna. Vegna lokunar verður tækifærið nýtt og gönguleið að gosstöðvunum lagfærð til að auðvelda aðkomu að þeim. Innlent 8. ágúst 2022 11:37
Gosstöðvarnar áfram lokaðar í dag Tekin hefur verið ákvörðun um að lokað verði inn á gosstöðvarnar í Meradölum í dag vegna veðuraðstæðna en útlit er fyrir slæmt veður á svæðinu. Innlent 8. ágúst 2022 09:23
Vinna við erfiðasta kaflann á vinsælustu gönguleiðinni hefst í dag Í dag er áætlað að unnið verði að því að lagfæra erfiðasta kaflann á svokallaðri A-gönguleið að eldgosinu í Meradölum. Innlent 8. ágúst 2022 09:14
Giftu sig degi of snemma Þýsku hjónin Julija og Michael Domaschke voru gefin saman við Skógafoss á þriðjudaginn í síðustu viku. Hjónin trúlofuðu sig einnig hér á landi og fór Michael á skeljarnar við eldgosið í Fagradalsfjalli í júlí á síðasta ári en þau eru bæði mjög áhugasöm um eldgos og eldfjöll. Daginn eftir að þau giftu sig hóf að gjósa í Meradölum. Lífið 7. ágúst 2022 23:00
Ekki útilokað að fleiri skjálftar verði Jarðeðlisfræðingur segir ekki útilokað að fleiri skjálftar, svipaðir þeim sem reið yfir í dag, verði á næstunni þó að spenna hafi að miklu leyti losnað á svæðinu. Innlent 7. ágúst 2022 19:01
Áfram lokað til morguns Lokað verður inn á gossvæðið áfram í kvöld vegna veðurs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Innlent 7. ágúst 2022 15:13
Ung börn örmögnuðust á leiðinni frá gosstöðvunum Erlendir ferðamenn fóru með tvö ung börn sín upp að gosstöðvunum í Meradölum í gærkvöldi. Á leiðinni niður örmögnuðust börnin í slæmum veðuraðstæðum. Leiðsögumaður sem var á svæðinu segir „firringu“ hafa átt sér stað í gærkvöldi. Innlent 7. ágúst 2022 14:45
Nokkrum ferðamönnum snúið við á gosstöðvunum í morgun Vonskuveður er við gosstöðvarnar í Meradölum í dag og svæðið lokað almenningi. Björgunarsveitir hafa þurft að snúa nokkrum erlendum ferðamönnum við, sem ætluðu að ganga upp að eldgosinu í morgun. Innlent 7. ágúst 2022 12:30