
Vettel 0.104 sekúndu á undan Webber
Sebastain Vettel var enn og aftur á undan liðsfélaga sínum Mark Webber á Red Bull á seinni æfingu keppnisliða á Interlagos brautinni í Brasilíu í dag.
Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.
Sebastain Vettel var enn og aftur á undan liðsfélaga sínum Mark Webber á Red Bull á seinni æfingu keppnisliða á Interlagos brautinni í Brasilíu í dag.
Renault liðið sem vörumerki gæti verið að hætta í Formúlu 1 samkvæmt frétt á autosport.com í dag, en liðið er í meirihlutaeigu sjálfstæðs fyrirtækis sem heitir Genii Capital. Renault virðist ætla útvega liðum vélar á næsta ári, en hætta með keppnislið undir eigin merkjum. Í fréttinni segir að möguleiki sé að Lotus bílaframleiðandinn breski verði styrktaraðili hjá liði sem myndi þá kallast Lotus Renault og nota Renault vélar eins og Red Bull og annað lið sem kallast í dag Lotus. Áhöld er um hvort það lið hefur rétt á notkun nafnsins, en það lið er í eigu malasíkra aðila og liðið kallast Lotus Racing. Þó hefur þetta lið samið við Renault um notkun á vélum fyrirtækisins á næsta ári og í tilkynningu frá Renault í dag, þá kallaði fyrirtækið þetta keppnislið 1 Malaysia Racing Team. Team Lotus var viðfrægt vörumerki í kappakstri á síðustu öld og ef marka má frétt autosport.com, þá virðist Lotus bílaframleiðandinn vilja endurreisa það nafn undir eigin formerkjum með samvinnu við Renault.
Sebastian Vettel á Red Bull var sneggstur um Interlagos brautina í Brasilíu í dag, en næst síðasta mót ársins fer fram á brautinni á sunnudaginn. Vettel varð tæplega hálfri sekúndu á undan Mark Webber á samskonar bíl.
Red Bull liðið tilkynnti formlega í dag að það hefur framlengt samning sinn við Renault vélaframleiðandann. Renault hefur séð liðinu fyrir vélum og gerir það áfram árið 2011 og 2012.
Christian Horner, yfirmaður Red Bull Formúlu 1 liðsins segir að Mark Webber og Sebastian Vettel hafi ekki verið mismunað hjá liðinu á keppnistímabilinu og báðir fái fullan stuðning liðsins. Horner segir að ummæli Mark Webber, ef rétt túlkuð í fjölmiðlum gætu sært menn innan liðsins, en Webber lét í veðri vaka í gær að Vettel væri í uppáhaldi hjá liðinu að sögn autosport.com.
Fernando Alonso er efstur í stigamóti Formúlu 1 ökumanna og getur tryggst sér meistaratitilinn í Brasilíu um helgina ef vel gengur. Hann telur þó líklegra að úrslitin ráðist ekki fyrr en í lokamótinu í Abu Dhabi um aðra helgi. Hann hefur haldið þessu fram í langan tíma og afstaða hans hefur ekkert breyst, þó hann sé nú 11 stigum a undan Mark Webber í stigamótinu og í efsta sæti stigamótsins.
Mark Webber hjá Red Bull vann mótið í fyrra á Interlagos brautinni í Brasilíu sem keppt er á um helgina og ef hann vinnur tvö síðustu mót ársins getur hann orðiði heimsmeistari ökumanna í fyrsta skipti á ferlinum.
Felipe Massa verður meðal fjögurra Brasilíumanna á heimavelli í Formúlu 1 mótinu á Interlagos brautinni í Brasilíu um helgina. Hann á ekki möguleika á meistaratitilinum og mun styðja við bakið á liðsfélaga sínum hjá Ferrari, Fernando Alonso í titilslagnum, komi sú staða upp í mótinu.
FIA staðfesti í dag að 20 Formúlu 1 mót verða árið 2011 í Formúlu 1. Fyrsta mótið verður í Barein, en það síðasta í Brasilíu. Í þremur tilfellum eru þrjú mót í mánuði.
Martin Whitmarsh yfirmaður McLaren segir að sú staðreynd að Ferrari beitti liðsskipunum í móti í Þýskalandi í sumar megi ekki skemma fyrir Formúlu 1, ef Fernando Alonso verður meistari.
Robert Kubica varð í öðru sæti í Formúlu 1 mótinu í Brasilíu í fyrra á Renault og hefur verið að blanda sér í toppbaráttuna annað slagið á þessu ári. Þar sem hörkuslagur verður um titilinn gæti Kubica haft áhrif á möguleika manna í stigaslagnum um næstu helgi.
Stefano Domenicali yfirmaður Ferrrari Formúlu 1 liðsins segir að Ferrari muni beita skynsemi í næstu keppni, þó Fernando Alonso eigi möguleika á að landa titlinum í Brasilíu um næstu helgi. Sjálfur telur Alonso að úrslitin muni ekki ráðast fyrr en í lokamótinu í Abu Dhabi um aðra helgi.
Bretinn Lewis Hamilton er einn af fimm sem á enn möguleika á meistaratitili í Formúlu 1, en hann er í þriðja sæti í stigakeppni ökumanna á eftir Fernando Alonso og Sebastian Vettel. Þeir keppa í Brasilíu um næstu helgi, þar sem hafa skipst á skin og skúrir hjá Hamilton.
Lokaspretturinn í meistaraslag Formúlu 1 er framundan, en keppt verður í Brasilíu um næstu helgi og í Abu Dhabi um aðra helgi. Fernando Alonso getur orðið meistari á sunnudaginn, en líklegra er að úrslitin ráðist í lokamótinu 14. nóvember, en fimm ökumenn eiga möguleika á titlinum.
Fernando Alonso er eini ökumaðurinn af þeim sem fimm eiga möguleika á meistaratitlinum sem getur orðið heimsmeistari í Formúlu 1 í næsta móti. Aðeins tvö mót eru eftir á keppnistímabilinu.
Umboðsmaður Kimi Raikkönen segir að hann keppi ekki í Formúlu 1 á næsta ári, en nokkur umræða hefur verið um að hann mætti í slaginn aftur. Um tíma var mikil umfjöllun um möguleika hans á sæti hjá Renault, en hann eyddi þeim hugmyndum fyrir nokkru.
Bernie Ecclestone sem oft virðist ráða öllu varðandi Formúlu 1 fagnar 80 ára afmæli sínu í dag, en hann er einn ríkasti maður Bretlands, eftir að hafa breytt Formúlu 1 í eitt vinsælasta sjónvarpsefni heims. Það besta við háan aldur segir Ecclestone að sé að hræðslan við lífstíðarfangelsi er ekki eins sterk og áður vegna aldurs, en hann er mikill húmoristi.
Christian Horner, yfirmaður Red Bull segir að liðsskipunum verði ekki beitt hjá liðinu til að hygla að Mark Webber umfram Sebastian Vettel í tveimur síðustu Formúlu 1 mótum ársins. Jafnvel þó Webber sé nær Fernando Alonso hjá Ferrari í stigamóti ökumanna og eigi þannig meiri möguleika á titllinum.
Ross Brawn, yfirmaður Mercedes Formúlu 1 liðsins telur að liði síni hafið vaxið ásmeginn að undanförnu, en Michael Schumacher náði fjórða sæti í tilþrifamikilli keppni í Suður Kóreu á sunnudaginn. Nico Rosberg, liðsfélagi Schumachers féll úr leik eftir að Mark Webber ók í veg fyrir hann eftir óhapp.
Mark Webber á Red Bull var efstur í stigamóti Formúlu 1 ökumanna fyrir kappaksturinn í Suður Kóreu á sunnudag, en er núna 11 stigum á eftir Fernando Alonso á Ferrari. Webber féll úr leik eftir akstursmistök þegar hann var í öðru sæti í kappakstrinum og tapaði af dýrmætum stigum í stigakeppni ökumanna.
Bernie Ecclestone sem stýrir gangi mála í Formúlu 1 á 80 ára afmæli 28 október, eftir tvo daga og í tilefni af því brugðu Red Bull menn á leik og gáfu honum göngugrind með væng og stýri þar sem hann á að geta valið um Viagra, auka kraft, hjúkrunarkonu, lögfræðing, bókhaldara og aðstoðarkonu sína.
Lewis Hamilton hjá McLaren hefur enn trú á því að hann geti orðið heimsmeistari í Formúlu 1, þó Fernando Alonso hjá Ferrari hafi náð forystu í stigamóti ökumanna með sigri í Suður Kóreu á sunnudaginn. Alonso er með 231 stig, Mark Webber hjá Red Bull 220, Hamilton 210 og Sebastian Vettel hjá Red Bull 206.
Vegna úrhellisrigningar í gær fór mótshald í Formúlu 1 mótinu í Suður Kóreu úr skorðum. Svo miklar urðu tafirnar að bein útsending frá Formúlu 1 að Stöð 2 Sport læstist á þá sem ekki hafa áskrift, þar sem ekki var gert ráð fyrir töfinni í læsingarrammanum.
Stefano Domenicali, yfirmaður Ferrari Formúlu 1 liðsins var ánægður með afraksturinn í mótinu í Suður Kóreu í gær. Hann segir í fréttatilkynningu frá Ferrari að menn verði að halda ró sinni og einbeitingu þrátt fyrir gott gengi. Tvö mót eru enn eftir í meistaramótinu og Fernando Alonso á Ferrari er efstur að stigum.
Sebastian Vettel hjá Red Bull er ekkert búinn að gefa titilvonir sínar upp á bátinn þó hann hafi misst af mögulegum sigri vegna vélarbilunnar í gær. Hann var í forystu í mótinu í Suður Kóreu þegar vélin gaf sig í 45 hring af 55.
Jenson Button komst ekki í stigasæti í Formúlu 1 mótinu í Suður Kóreu í dag og staða hans í stigamótinu er ekki vænleg, þó hann eigi enn möguleika á að verja meistaratitil sinn frá því í fyrra. Button varð tólfti í mótinu í dag.
Fernando Alonso var kampakátur með sigurinn í Formúlu 1 mótinu í Suður Kóreu í dag, en hann náði forystu í stigakeppni ökumanna á meðan tveir af helstu keppinautum hans féllu úr leik. Þeir Mark Webber og Sebastian Vettel náðu ekki að komast í endamark. Vélin bilaði hjá Vettel og Webber ók útaf
Fernando Alonso á Ferrari vann sigur í fyrsta Formúlu 1 mótinu í Suður Kóreu í nótt, eftir að þremur af fimm keppinautum hans um meistaratitilinn í Formúlu 1 fataðist flugið.
Þjóðverjinn Sebastian Vettel á Red Bull var fljótastur allra í tímatökum fyrir Formúlu 1 kappaksturinn í Suður Kóreu sem verður í nótt í fyrsta skipti. Vettel vann síðustu keppni og er jafn Fernando Alonso í stigamóti ökumanna, en þeir eru 14 stigum á eftir Mark Webber.
Michael Schumacher fékk áminningu frá dómurum Formúlu 1 mótsins í Suður Kóreu, eftir tímatöku í nótt. Rubens Barrichello taldi að Schumacher hefði hindrað hann í tímatökunni í annarri umferð af þremur