
Patrekur bætti Íslandsmet í Tókýó
Hlauparinn Patrekur Andrés Axelsson bætti eigið Íslandsmet í 400 metra hlaupi er hann keppti í flokki blindra á Ólympíumóti fatlaðra ásamt meðhlaupara sínum Helga Björnssyni.
Hlauparinn Patrekur Andrés Axelsson bætti eigið Íslandsmet í 400 metra hlaupi er hann keppti í flokki blindra á Ólympíumóti fatlaðra ásamt meðhlaupara sínum Helga Björnssyni.
Jamaíska spretthlaupakonan Shelly-Ann Fraser-Pryce hljóp í gær hundrað metra spretthlaup á þriðja besta tíma sögunnar á Demantamótaröðinni í frjálsum íþróttum þegar hún kom í mark á 10,60 sekúndum.
Elísabet Rut Rúnarsdóttir varð fjórða í sleggjukasti á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum fyrir 20 ára og yngri sem fram fer í Nairóbi í Kenýa. Hún var aðeins hálfum metra frá eigin Íslandsmeti.
Elísabet Rut Rúnarsdóttir tryggði sér í morgun sæti í úrslitum í sleggjukasti á heimsmeistaramóti tuttugu ára og yngri sem fer fram þessa dagana.
Bandaríska frjálsíþróttakonan Sha’Carri Richardson er farin að kynda vel upp fyrir athyglisvert spretthlaup sem fer fram um helgina.
Pólski spjótkastarinn Maria Andrejczyk vann silfur á Ólympíuleikunum í Tókýó á dögunum en hún var tilbúin að láta frá sér silfrið sitt aðeins nokkrum vikum síðar.
Heimurinn fékk ekki að sjá fljótustu bandarísku konuna hlaupa á Ólympíuleikunum í Tókýó en það verður bætt úr því á Prefontaine Classic mótinu.
Ásdís Hjálmsdóttir Annerud á að von á sín fyrsta barni þessa dagana en það kemur ekki í veg fyrir að hún taki alvöru æfingar í lyftingasalnum.
Ólympíumeistarinn Hansle Parchment frá Jamaíku lenti í miklum hrakförum á leið sinni á keppnisstaðinn á Ólympíuleikunum í Tókýó á dögunum og hann var mjög þakklátur konunni sem bjargaði honum fyrir horn.
Breski spretthlauparinn CJ Ujah hefur verið dæmdur í keppnisbann fyrir meinta lyfjamisnotkun. Ujah var hluti af breska liðinu sem vann til silfurverðlauna í 4x100 metra spretthlaupi á Ólympíuleikunum, en verðlaunin gætu nú verið í hættu.
Henti öllum vatnsflöskunum í jörðina og tók síðustu flöskuna sjálfur. Óheppni? Ekki að mati netverja sem hafa látið einn Ólympíufara heyra það.
FH varð í dag þrefaldur bikarmeistari í frjálsum íþróttum þegar liðið vann karlaflokk, kvennaflokk og samanlagða keppni. ÍR-ingar þurftu að sætta sig við annað sæti í öllum flokkum.
Indverjinn Neeraj Chopra varð í dag fyrsti Indverjinn í sögunni til að vinna til gullverðlauna í frjálsum íþróttum á Ólympíuleikum. Hann fagnaði sigri í spjótkasti karla eftir kast upp á 87,58 metra.
Hinn tvítugi Jakob Ingebrigtsen hlaut í dag gull í 1500 metra hlaupi karla á Ólympíuleikunum í Tókýó. Hann var aðeins tveimur sekúndum frá heimsmeti en bætti bæði Evrópu- og Ólympíumet með frábæru hlaupi.
Hlauparinn Hlynur Andrésson sló í gærkvöld eigið Íslandsmet í 3000 metra hlaupi í Jessheim í Noregi. Hlynur kom í mark á 7:54,72 mínútum.
Pólverjinn Dawid Tomala er líklega síðasti gullverðlaunahafi sögunnar í 50 kílómetra göngu á Ólympíuleikum en hann vann hana á leikunum í Tókýó í nótt. Antonella Palmisano frá Ítalíu vann 20 kílómetra göngu kvenna.
Shaunae Miller-Uibo frá Bahamaeyjum og Faith Kipyegon frá Kenía unnu báðar gullverðlaun á öðrum Ólympíuleikunum í röð á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag. Allyson Felix vann líka sín tíundu verðlaun á Ólympíuleikum sem er met.
Kanadamaðurinn Damian Warner varð Ólympíumeistari í tugþraut og Nafissatou Thiam frá Belgíu vann sjöþrautina þegar þrautirnar í frjálsíþróttakeppni Ólympíuleikanna í Tókýó kláruðust í dag.
Noah Lyles, sem vann brons í 200 metra hlaupi á Ólympíuleikunum í Tókýó, hefur glímt við þunglyndi og var sérstaklega illa haldinn í kórónuveirufaraldrinum.
Bandaríkjamaðurinn Ryan Crouser tryggði sér Ólympíugull í kúluvarpi karla með því að setja nýtta Ólympíumet. Hann fagnaði gullinu sínu líka með sérstökum hætti.
Bandaríkin komust ekki í úrslit í 4x100 boðhlaupi karla á Ólympíuleikunum í Tókýó. Ólympíugoðsögnin Carl Lewis sagði frammistöðu bandarísku sveitarinnar vandræðalega lélega.
Pólverjinn Wojciech Nowicki er Ólympíumeistari karla í sleggjukasti eftir að hafa bætt sinn besta árangur í greininni í dag. Norðmaðurinn Eivind Henriksen bætti sinn árangur umtalsvert og bætti Noregsmetið í greininni fjórum sinnum til að hljóta silfur.
Belgíski tugþrautakappinn Thomas Van der Plaetsen var fluttur burt af frjálsíþróttavellinum í Tókýó eftir að hafa orðið fyrir slæmum meiðslum.
Kanadamaðurinn Andre De Grasse vann sín fyrstu gullverðlaun á stórmótum í dag þegar hann vann 200 metra hlaup karla á Ólympíuleikunum í Tókyó.
Breska sjöþrautarkonan Katarina Johnson-Thompson er úr leik á Ólympíuleikunum í Tókýó eftir að hafa meiðst í 200 metra hlaupinu.
Peruth Chemutai frá Úganda varð í dag Ólympíumeistari í 3000 metra hindrunarhlaupi kvenna á Ólympíuleikunum í Tókýó.
Sydney McLaughlin frá Bandaríkjunum sló eigið heimsmet í 400 metra grindahlaupi í úrslitum á Ólympíuleikunum í Tókýó í nótt.
Svíinn Armand Duplantis er nýr Ólympíumeistari í stangarstökki karla eftir glæsilegan sigur í úrslitunum á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag.
Elaine Thompson-Herah frá Jamaíka er spretthlaupsdrottning Ólympíuleikanna í Tókýó eftir sigur í úrslitum 200 metra hlaupsins í dag. Ungar hlaupakonur voru að gera góða hluti í bæði 200 og 800 metrunum.
Anita Wlodarczyk frá Póllandi tryggði sér í dag sögulegan sigur í sleggjukasti kvenna.