Ísrael

Ísrael

Höfuðborg: Jerúsalem (yfirlýst höfuðborg Ísraela þó að fæst ríki heims viðurkenni það). Mannfjöldi: 9,9 milljónir (2025). Flatarmál: 22.145 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Fimm ríki for­dæma nýjar landtökubyggðir á Vestur­bakkanum

Ríkisstjórnir Bretlands, Frakklands, Þýskalands, Ítalíu og Kanada fordæma fyrirhugaðar landtökubyggðir Ísraelsmanna á hernumdum svæðum á Vesturbakkanum svokallaða, svæði sem tilheyrir Palestínu. Húsnæðismálaráðuneyti Ísraels gaf í fyrradag út útboðsgögn fyrir 1200 ný heimili á hernumdu svæði.

Erlent
Fréttamynd

Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru

Ítamar Ben-Gvir, þjóðaröryggisráðherra Ísraels, hefur vakið hörð viðbrögð, bæði heima fyrir og erlendis, eftir að hafa birt myndband af heimsókn sinni á byggingarsvæði gálga sem notaður verður til að hengja Palestínumenn sem dæmdir hafa verið fyrir hryðjuverk.

Erlent
Fréttamynd

Ísraels­her viður­kennir að hafa skotið fimm ára stúlku

Ísraelsher hefur í fyrsta sinn viðurkennt að hafa, árið 2024, hafið skotárás á bíl sem í var sex manna palestínsk fjölskylda, þar á meðal fimm ára gömul stúlka, Hind Rajab, sem lést seinna af sárum sínum. Ísarelsher greindi frá því í dag að hefja ætti rannsókn á atvikinu. 

Erlent
Fréttamynd

Vilja banna frjáls ferða­lög ísraelskra ferða­manna á Ís­landi

Sniðgönguhreyfingin fyrir Palestínu, BDS Ísland, skorar á stjórnvöld að innleiða skimanir við landamærin á ísraelskum ríkisborgurum á herskyldualdri og að þau banni frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi. Rúm 800 hafa skrifað undir áskorun þess efnis til stjórnvalda.

Innlent
Fréttamynd

Til­kynna refsi­að­gerðir gegn hátt­settum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur tilkynnt refsiaðgerðir gegn forseta og yfirlögfræðingi Alþjóðaglæpadómstólsins (ICC). Dómstóllinn í Haag var stofnaður árið 2002 til að sækja til saka stríðsglæpi, þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyni. Meðal þess sem felst í refsiaðgerðunum er að allar eignir sem einstaklingarnir kunna að eiga í Bandaríkjunum verði frystar.

Erlent
Fréttamynd

Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, ítrekaði þá afstöðu stjórnvalda á fundi með Jared Kusnher, tengdasyni Donald Trump, í gær að engar frekari friðarviðræður myndu eiga sér stað né myndu Ísraelsmenn yfirgefa Gasa fyrr en Hamas samtökin hefðu afvopnast að fullu.

Erlent
Fréttamynd

Ekkert út á Dorriti að setja en frá­sögn eig­enda ekki á rökum reist

Ísraelskir ferðamenn sem eru sagðir hafa ógnað starfsmanni kaffihússins og sætabrauðsverslunarinnar Lava Sweets og valdið þar tjóni segja frásögn palenstínskra eigenda staðarins ekki eiga við rök að styðjast. Þeir hafi til að mynda alls ekki farið inn á staðinn með það í huga að áreita eða ógna fólki. Dorrit Moussaieff var ein þeirra sem tjáðu sig um málið en mennirnir fjórir segja ekki við hana að sakast, hún hafi einfaldlega trúað því sem eigendurnir sögðu.

Innlent
Fréttamynd

Kushner mættur til Ísrael

Jared Kushner, sérlegur erindreki Donalds Trump og tengdasonur kom óvænt til Ísraels í morgun og er búist við því að hann hitti Benjamín Netanjahú á fundi síðar í dag. Kushner fundaði með leiðtogum Hamas samtakanna í gær um hvernig hægt verði að koma friðarferli af stað á svæðinu.

Erlent
Fréttamynd

Moroccanoil slítur sam­starfi við Euro­vision

Ísraelska hárvörufyrirtækið Moroccanoil hefur tekið ákvörðun um að framlengja ekki samning sinn við Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Samstarf keppninnar og ísraelska fyrirtækisins hefur verið umdeilt í gegnum tíðina, rétt eins og þátttaka Ísraels í keppninni. 

Tónlist
Fréttamynd

Netanjahú hafnar friðar­á­ætlun Trumps

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur hafnað að taka þátt í fimmtán punkta áætlun Bandaríkjaforseta um frið á Gasa. Friðarráð Trumps greindi frá því í síðustu viku að þegar hefði náðst samkomulag við Hamas-samtökin um afvopnun á svæðinu. 

Erlent
Fréttamynd

Hamasliðar sam­þykkja að afvopnast

Hamas-samtökin segjast ætla að byrja að afvopnast í samræmi við friðarsamkomulag sem Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í dag. Samkomulagið krefst þess einnig að Ísraelsher hætti árásum sínum á Gasa og fari af svæðinu.

Erlent
Fréttamynd

Hættur í Jesus Christ Superstar eftir út­gáfu lags til stuðnings Ísrael

Tónlistarmaðurinn Boy George hefur hætt við að leika Heródes í nýrri uppfærslu á Jesus Christ Superstar í Lundúnum aðeins nokkrum dögum eftir útgáfu hans á gervigreindarlaginu „We Will Dance Again“ sem hann samdi til stuðnings hernaði Ísraels í Palestínu. Umboðsmaður Boy George sagði að sýningarinnar vegna hefði hann ákveðið að söngvarinn yrði ekki með í henni.

Lífið
Fréttamynd

Ræddu Patriot-flaugar og friðar­við­ræður

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segist hafa átt góðan fund með kollega sínum Donald Trump í Hvíta húsinu í dag. Þeir hafi meðal annars talað um mögulega framleiðslu flugskeyta í Patriot-loftvarnarkerfi í Úkraínu, mögulegar friðarviðræður og hvernig þeir gætu varið líf Úkraínumanna.

Erlent
Fréttamynd

Kveiktu í tveimur moskum

Ísraelskir landtökumenn hafa kveikt í bílum, ræktarlandi og tveimur moskum á hernumda Vesturbakkanum, að sögn palestínskra embættismanna. Spenna heldur áfram að aukast á svæðinu. 

Erlent
Fréttamynd

Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hefur sakað Zohran Mamdani, borgarstjóra New York, um að „sá hatri“. Netanyahu hyggst enn sækja þing Sameinuðu þjóðanna í haust og segist ekki hafa áhyggjur af hótunum Mamdani um handtöku.

Erlent
Fréttamynd

Sádar verði að viður­kenna til­vist Ísrael

Donald Trump segir að samkomulag sem skrifað var undir í gær milli Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu, um að koma upp kjarnorku í síðarnefnda ríkinu, feli í sér að Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael. Þar að auki verði þeir að opna formlega á pólitísk samskipti ríkjanna á milli, með því að verða aðilar að Abraham-sáttmálunum svokölluðu.

Erlent
Fréttamynd

Utan­ríkis­ráð­herrann lýsir á­rásunum sem urðu Khamenei að bana

Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, segir upplýsingar sem Ísraelar höfðu um fundi ráðamanna í Íran daginn sem Ali Khamenei var ráðinn af dögum benda til öryggisbrests sem líklega sé enn til staðar. Araghchi var í sömu byggingu og Khamenei þegar Ísraelar létu til skarar skríða og var dreginn úr rústunum. Síðan þá hefur hann verið á stöðugri hreyfingu til að forðast að verða sjálfur myrtur.

Erlent
Fréttamynd

Minnst tólf létust í á­rásum Ísraelshers

Minnst tólf létust í þremur árásum Ísraelshers á Gasa í gærnótt og dag, að sögn heilbrigðisyfirvalda á svæðinu. Vopnahlé milli Ísraels og Hamas er enn í gildi en rúmlega þúsund Palestínumenn hafa látist í árásum Ísraelshers frá því það var undirritað í október síðastliðnum. 

Erlent
Fréttamynd

Hand­takan þyrfti að byggja á al­þjóða­lögum

Hvorki utanríkisráðherrar Íslands né Frakklands svöruðu því beint hvort þau myndu styðja hugsanlega handtöku Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þegar hann kæmi til New York í september. Utanríkisráðherra Íslands segir að allar slíkar aðgerðir þurfi að vera samkvæmt alþjóðalögum.

Erlent
Fréttamynd

Mamdani skoðar að láta hand­taka Netanjahú

Zohran Mamdani borgarstjóri skoðar ásamt lögfræðingum New York-borgar hvort mögulegt sé að handtaka Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, þegar hann sækir Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í september.

Erlent
Fréttamynd

Boðað til þing­kosninga í Ísrael þann 27. októ­ber

Boðað hefur verið til þingkosninga í Ísrael þann 27. október næstkomandi. Þá fá landsmenn í fyrsta sinn tækifæri til þess að leggja dóm á Benjamin Netanyahu og ríkisstjórn hans frá árásum Hamas á byggðir Ísraelsmanna þann 7. október árið 2023.

Erlent
Fréttamynd

Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og á­rásir enn nær dag­legt brauð

Minnst sex Palestínumenn fórust í árásum Ísraelshers á Gasa í dag, þar á meðal níu ára stúlka. Þá særðust yfir tólf aðrir, að sögn heilbrigðisyfirvalda á svæðinu. Drónaárás á járnsmiðju í Sabra-hverfinu í Gasaborg varð minnst fjórum Palestínumönnum að bana, að sögn fulltrúa Shifa-sjúkrahússins sem fórnarlömbin voru flutt á.

Erlent
Fréttamynd

Hamas byrjar að sleppa tökunum á Gasa

Starfsstjórn sem nýtur stuðnings Sameinuðu þjóðanna tekur við völdum á Gasa eftir að hryðjuverkasamtökin Hamas leystu upp stjórn sína þar í dag. Samtökin hafa þó ekki sagt hvort þau ætli að afvopnast eða leyfa alþjóðlegu friðargæsluliði að taka við öryggismálum þar.

Erlent