Íslendingar liggja á línunni til Egilsstaða Síminn hjá Hótel Eddu á Egilsstöðum hefur verið róðglóandi í veðurblíðunni síðustu daga, að sögn hótelstjóra. Hann segir að nær fullt sé á hótelinu nú um helgina og að bókanir í sumar séu orðnar á pari við það sem var fyrir heimsfaraldur. Innlent 9. júlí 2021 11:47
Sækja um að gefa þriðja skammtinn ári eftir seinni skammtinn Lyfjaframleiðandinn Pfizer hefur sótt eftir leyfi fyrir því að gefa þriðja skammtinn af Covid-19 bóluefni sínu. Pfizer segir að frumniðurstöður rannsókna bendi til að mótefni hjá fólki fimm- til tífaldist eftir þriðja skammtinn. Erlent 9. júlí 2021 07:48
Einn skammtur ekki nógu góð vörn gegn útbreiðslu delta afbrigðisins Ný rannsókn á delta afbrigði Nýju kórónuveirunnar sýnir fram á mikilvægi þess að fólk láti bólusetja sig að fullu og þá ógn sem stökkbreytingar skapa. Delta afbrigðið, sem greindist fyrst á Indlandi og er sagt smitast auðveldar manna á milli, hefur keyrt uppsveiflur í fjölda smitaðra víðsvegar um heiminn á undanförnum mánuðum. Erlent 8. júlí 2021 15:55
Kort Sóttvarnastofnunar Evrópu grænkar Fleiri ríki hafa bæst í hóp grænna ríkja á Covid-korti Sóttvarnastofnunar Evrópu. Ísland hefur lengi verið grænmerkt á kortinu en Eystrasaltsríkin þrjú, Frakkland, Þýskaland og Ítalía bætast við auk fleiri ríkja. Erlent 8. júlí 2021 15:30
Fjórtán greindust í Færeyjum í gær Fjórtán greindust með kórónuveiruna í Færeyjum í gær. Á síðunni korona.fo kemur fram að tíu hafi greinst innanlands og fjórir á landamærum. Erlent 8. júlí 2021 14:08
Engir áhorfendur á Ólympíuleikunum Skipuleggjendur Ólympíuleikanna sem hefjast síðar í mánuðinum hafa tilkynnt að engir áhorfendur verða á leikunum. Stóð til að heimamenn gætu séð leikana með eigin augum en nú hefur verið tekið fyrir það. Sport 8. júlí 2021 13:45
Barnahópur kominn í sóttkví eftir íþróttaæfingu Hópur ellefu og tólf ára barna á höfuðborgarsvæðinu er nú kominn í sóttkví, eftir að barn sem hafði verið með hópnum á íþróttaæfingu greindist með kórónuveiruna í gær. Ekkert bóluefni hefur fengið markaðsleyfi fyrir börn undir tólf ára aldri. Innlent 8. júlí 2021 12:53
Engin bóluefni í Norður-Kóreu, þrátt fyrir ítrekuð boð Rússar hafa boðist til að senda skammta af bóluefninu Spútnik 5 til Norður-Kóreu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slíkt boð berst til Norður-Kóreu en Rússar hafa til að mynda boðið einræðisríkinu bóluefni áður. Erlent 8. júlí 2021 11:01
Þrír greinst með veiruna innanlands síðan á mánudag Þrír hafa greinst með kórónuveiruna innanlands síðustu þrjá sólarhringa – tveir á mánudag og einn í gær, miðvikudag. Þeir sem greindust á mánudag voru í sóttkví, en sá sem greindist í gær var utan sóttkvíar. Innlent 8. júlí 2021 10:45
Lýsa yfir neyðarástandi í Tókýó fram yfir Ólympíuleikana Stjórnvöld í Japan hafa lýst yfir neyðarástandi í höfuðborginni Tókýó fram yfir Ólympíuleikana sem fram fara í borginni dagana 23. júlí til 8. ágúst. Þetta staðfesti forsætisráðherrann Yoshihide Suga í dag. Erlent 8. júlí 2021 09:14
Fjórar milljónir dánar: Yfirmaður WHO skýtur fast á ríkari þjóðir heims Skráð dauðsföll vegna Covid-19 eru nú komin yfir fjórar milljónir. Rúmt eitt og hálft ár er síðan faraldur nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19, hófst í Kína. Þessi áfangi, ef svo má kalla, náðist í gær en yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og sérfræðingar segja raunverulegu töluna vera hærri. Erlent 8. júlí 2021 09:04
Tilfellum fjölgar enn þrátt fyrir útgöngubann Þrátt fyrir að útgöngubann hafi verið í gildi í Sydney í Ástralíu í tvær vikur vegna aukinnar útbreiðslu kórónuveirunnar halda tilfellinn áfram að hrannast upp og í gær voru fleiri greindir smitaðir á einum sólarhring en í fjórtán mánuði þar á undan. Erlent 8. júlí 2021 07:11
Fólk búið að sleppa fram af sér beislinu Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur að vel gangi að halda kórónuveirufaraldrinum í skefjum innanlands en leggur áherslu á að veirulausa ástandið sem nú ríki sé nýtilkomið. Innlent 8. júlí 2021 07:01
Íslenskt efnahagskerfi sterkt þrátt fyrir samdrátt Íslenskt efnahagskerfi stendur sterkari fótum en aðrar þjóðir eftir þann mikla samdrátt sem varð í kórónuveirufaraldrinum. Fjármálaráðherra segir viðsnúning fram undan en að breyta þurfi áherslum í ferðaþjónustu og menntakerfinu. Innlent 7. júlí 2021 21:31
Börn geta smitast í útlöndum: Mælir gegn fjölskylduferðum með óbólusett börn Sóttvarnalæknir mælir með því að Íslendingar fari ekki óbólusettir til útlanda og gilda þau tilmæli einnig um börn. Þar með er í raun mælt gegn fjölskylduferðum með óbólusett börn. Innlent 7. júlí 2021 14:03
Þórólfur neitar að taka við brekkusöngnum Eftir að brekkusöng Ingólfs Þórarinssonar var aflýst á Þjóðhátíð í vikunni upphófst nokkur umræða um það hver ætti að hlaupa í skarðið. Á meðal tillagna sem kom fram var að sjálfur sóttvarnalæknir tæki við brekkusöngnum, enda bæði Eyjamaður og lunkinn gítarleikari. Lífið 7. júlí 2021 12:01
Víðir bólusettur: „Þetta er meiriháttar“ „Þetta er meiriháttar,“ sagði Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, eftir að hann var bólusettur með bóluefni Janssen í Laugardalshöllinni klukkan 11 í morgun. Innlent 7. júlí 2021 11:48
Milljón bóluefnaskammtar óhreyfðir í dönskum kælum Yfir ein milljón bóluefnaskammta frá Janssen og AstraZeneca standa óhreyfð í kælum Sóttvarnastofnunar Danmerkur, þrátt fyrir að ekki sé reiknað með að bólusett verði með skömmtunum í landinu. Erlent 7. júlí 2021 10:03
Viðsnúningur fram undan í efnahagslífinu Þrátt fyrir að hafa orðið fyrir miklu áfalli í kjölfar heimsfaraldurs er reiknað með öflugum viðsnúningi í efnahagslífinu með kröftugum vexti útflutnings, sérstaklega ferðaþjónustu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um Ísland sem birt var í dag. Innlent 7. júlí 2021 09:41
Framlengja útgöngubann í Sydney Yfirvöld í Nýju-Suður Wales í Ástralíu hafa ákveðið að framlengja útgöngubann í stórborginni Sydney um viku til viðbótar, eða til 16. júlí. Útgöngubanninu var komið á fyrir rúmum tveimur vikum í tilraun til að hefta útbreiðslu delta-afbrigðis kórónuveirunnar. Erlent 7. júlí 2021 07:43
„Opið hús og allir velkomnir“ í Janssen í dag Bólusett verður með bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni í Laugardalshöll klukkan 10 til 13 í dag. Um er að ræða opinn bólusetningardag - „opið hús og allir velkomnir,“ segir á vef heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Innlent 7. júlí 2021 06:21
„Ætla má að helmingur hunda sé óskráður“ Þrátt fyrir mikla aukningu á hundahaldi víða á landinu undanfarin misseri hefur skráning þeirra lítið aukist hjá sveitarfélögum. Deildarstjóri hjá Fjölskyldu-og húsdýragarðinum telur að um helmingur hunda sé óskráður í Reykjavík. Talsvert er um að fólk tilkynni um vanrækslu. Innlent 6. júlí 2021 18:22
Níu greindust með veiruna í Færeyjum í gær Alls greindust níu manns með kórónuveiruna í Færeyjum í gær. Um var að ræða fjögur smit sem tengjast landamærunum og svo fimm innanlandssmit. Erlent 6. júlí 2021 14:33
Vara við því að óbólusett börn ferðist til útlanda Margir Íslendingar stefna á ferðalög í sumar, bæði innanlands og utan, og er fólk farið að flykkjast út á Keflavíkurflugvöll til að halda í frí til útlanda. Einhverjir hafa þó velt fyrir sér ágæti þess að taka börnin með í frí en börn undir 16 ára aldri hafa flest hver ekki verið bólusett þó svo að fullorðna fólkið hafi nær allt verið það. Innlent 6. júlí 2021 10:45
Segja virkni bóluefnis Pfizer minnka Ísraelar segjast hafa mælt samdrátt í virkni bóluefnis Pfizer gegn Covid-19. Sérstaklega varðandi það að koma í veg fyrir smit og að smitaðir sýni einkenni. Bóluefnið komi þó áfram vel í veg fyrir alvarleg veikindi. Erlent 6. júlí 2021 10:45
Bólusett með Pfizer í dag en opið hús í Janssen á morgun Bólusett verður í Laugardalshöll í dag með bóluefninu frá Pfizer. Aðeins er um að ræða seinni skammt. Þeir sem hafa fengið einn skammt af AstraZeneca og kjósa að fá seinni skammtinn frá Pfizer eru velkomnir. Innlent 6. júlí 2021 06:41
„Verðum að læra að lifa með vírusnum“ Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í dag nýja áætlun ríkisstjórnar hans um það að „lifa með Covid-19“ en sú áætlun snýr að því að fella niður sóttvarnaaðgerðir og félagsforðun á Englandi. Niðurfellingarnar munu hefjast þann 19. júlí. Erlent 5. júlí 2021 16:49
Langtímsamningur UNICEF við Janssen fyrir hönd COVAX Samningur UNICEF tryggir allt að 200 milljónir skammta af bóluefni frá Janssen á árinu 2021. Heimsmarkmiðin 5. júlí 2021 13:08
Norðmenn fresta tilslökunum af ótta við delta Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, tilkynnti í dag að fyrirhuguðum tilslökunum á sóttvarnaaðgerðum verði frestað til mánaðamóta að minnsta kosti. Ástæðan er áhyggjur af því að svonefnt delta-afbrigði kórónuveirunnar gæti hrundið af stað nýrri bylgju faraldursins. Erlent 5. júlí 2021 11:45
Þúsundir „bólusettar“ með saltvatnslausn Þúsundir Indverja féllu fyrir umfangsmikilli svikamyllu þar sem einstaklingum var seld bólusetning við Covid-19 en raunverulega sprautað með saltlausn. Læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn eru meðal þeirra sem hafa verið handteknir. Erlent 5. júlí 2021 11:43