
Færaveisla í Búdapest og Liverpool áfram
Það vantaði ekki færin í síðari leik Leipzig og Liverpool í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Liverpool vann leikinn 2-0 og eru því komnir áfram í átta liða úrslitin, samanlagt 4-0.
Keppni hinna bestu í Evrópu.
Það vantaði ekki færin í síðari leik Leipzig og Liverpool í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Liverpool vann leikinn 2-0 og eru því komnir áfram í átta liða úrslitin, samanlagt 4-0.
Glódís Perla Viggósdóttir og Rosengård eru komnar í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir 2-0 sigur á St. Polten í Austurríki.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og stöllur hennar í Bayern Munchen eru örugglega komnar áfram í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar.
Stuðningsmaður PSG ætlaði sér að vera sniðugur í gærkvöldi en það endaði ekki betur en svo að hann gisti fangageymslu í nótt.
Framlengja þurfti leik Juventus og Porto í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær. Blaðamannafundur knattspyrnustjóra Porto, Sérgio Conceicao, tók hins vegar enga stund. Bókstaflega.
Guðmundur Benediktsson var með Hjörvar Hafliðason og Reynir Leósson með sér í Meistaradeildarmessunni í gær. Þeir ræddu meðal annars hvað Cristiano Ronaldo var að gera í varnarveggnum í aukaspyrnumarkinu sem kom Porto áfram í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar.
Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar í franska liðinu Lyon lentu undir í byrjun seinni leik sextán liða úrslita Meistaradeildarinnar en snéru við leiknum og komust örugglega áfram.
Erling Haaland, veit ekki hvað hann öskraði á Bono, markvörð Sevilla, eftir að hann skoraði úr vítaspyrnu fyrir Borussia Dortmund í leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær.
Cristiano Ronaldo þakkar örugglega fyrir það að Pepe hefur oftast verið með honum í liði inn á fótboltavellinum.
Liverpool er í góðri stöðu fyrir seinni leikinn gegn RB Leipzig í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Þjóðverjarnir sjá þó eflaust tækifæri til að koma höggi á ensku meistarana sem hefur gengið bölvanlega að undanförnu.
Ekki vantaði dramatíkina í leiki gærkvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Níu mörk voru skoruð í þeim, eitt rautt spjald fór á loft og myndbandsdómgæslan kom mikið við sögu.
Cristiano Ronaldo var harðlega gagnrýndur fyrir tilburði sína í öðru marki Porto gegn Juventus í Meistaradeild Evrópu í gær. Fabio Capello sagði að varnarleikur Ronaldos hafi verið ófyrirgefanlegur.
Erling Braut Håland varð í gær fljótasti leikmaður í sögu Meistaradeildar Evrópu til að skora tuttugu mörk í keppninni. Það í aðeins fjórtán leikjum.
Juventus er dottið úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir ótrúlegt 3-2 tap í framlengdum leik gegn Porto á heimavelli. Porto vann fyrri leik liðanna 2-1 og fer því áfram þökk sé fleiri mörkum skoruðum á útivelli.
Borussia Dortmund er komið í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 2-2 jafntefli gegn Sevilla í kvöld. Dortmund fyrri leik liðanna 3-2 og þar með eingívið samtals 5-3.
Riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handbolta lauk nýverið og nú er búið að draga í 16-liða úrslit keppninnar. Þar verða þrír íslenskir landsliðsmenn í eldlínunni ásamt tveimur fyrrum landsliðsmönnum sem starfa nú sem þjálfarar.
Ljóst er að Brasilíumaðurinn Neymar verður ekki með Paris Saint-Germain gegn hans gömlu félögum í Barcelona í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu annað kvöld.
Í kvöld munu fyrstu tvö liðin tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í ár en þá fara seinni leikirnir fram í tveimur einvígum sextán liða úrslitanna.
Sebastian Coltescu, sem var fjórði dómari í frægum leik Paris Saint-Germain og Istanbul Basaksehir í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu, fær ekki að dæma meira á þessu tímabili vegna óviðeigandi framkomu í umræddum leik.
Andrea Pirlo, stjóri Juventus, segir að stórstjarnan Cristiano Ronaldo sé klár í slaginn fyrir leikinn gegn Porto í síðari leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar, annað kvöld.
UEFA nálgast það að klára fyrirkomulag með 36 liða Meistaradeild Evrópu. Þetta sagði Andrea Agnelli, forseti Juventus sem og yfirmaður hjá ECA — sem eru samtök liða í Evrópuboltanum.
Mauricio Pochettino, stjóri franska liðsin Paris Saint-Germain, segir að brasilíska stórstjarnan Neymar gæti verið búinn að ná sér af meiðslum þegar liðið mætir Barcelona í Meistaradeild Evrópu. Liðin mætast í París næstkomandi miðvikudag, en Neymar hefur verið frá síðan 10. febrúar.
Sara Björk Gunnarsdóttir spilaði seinasta hálftíman í 2-0 sigri Lyon gegn Brøndby í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Lyon var mun sterkari aðilinn og sigurinn verðskuldaður.
Seinni leikur Liverpool og RB Leipzig í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu fer fram á Puskás leikvanginum í Búdapest líkt og fyrri leikur liðanna.
Íslenska landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði í sínum fyrsta leik með Bayern München og það í Meistaradeildinni.
Al Arabi er komið í undanúrslitaleikinn í Crown Prince bikarnum í Katar eftir 4-1 sigur á Al Sailiya í átta liða úrslitunum í dag.
Pep Guardiola, fyrrverandi knattspyrnustjóri Barcelona og núverandi stjóri Manchester City, segist fylgjast með því sem er að gerast hjá Barcelona.
Það gekk mikið á hjá Barcelona í morgun aðeins nokkrum dögum áður en félagið kýs sér nýjan forseta.
Guðmundur Benediktsson, knattspyrnulýsandi og -spekingur, segir að yfirburðir Manchester City gegn Borussia Mönchengladbach í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar fyrr í vikunni hafi verið rosalegir.
Manchester City vann öruggan 2-0 sigur á Borussia Mönchengladbach í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á miðvikudagskvöld. Sigurinn sýndi og sannaði að Pep Guardiola virðist vera kominn með lausn á þeim vandræðum sem hafa hrjáð hann í keppninni undanfarin ár.