
RAX Augnablik: Gos í Grímsvötnum og Gjálp
Mikið er fjallað um Grímsvötn þessa dagana og möguleikana á gosi. Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson hefur myndað mörg eldgos á ferlinum, þar á meðal í Grímsvötnum árið 2011.
Sviðslistir, bókmenntir, sagnfræði, tónlist, myndlist og aðrar listasýningar.
Mikið er fjallað um Grímsvötn þessa dagana og möguleikana á gosi. Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson hefur myndað mörg eldgos á ferlinum, þar á meðal í Grímsvötnum árið 2011.
The Power of the Dog er „art house“-kvikmynd sem ekki er sýnd í neinu kvikmyndahúsi, hvorki listrænu né öðru, heldur er hún aðeins á Netflix. Óskarverðlaunapískrið umlykur hana þessa dagana en undirritaður var hálf ringlaður eftir áhorfið.
Fyrsta stiklan fyrir þættina Verbúðina, úr smiðju Vesturports, hefur verið sýnd. Þættirnir verða frumsýndir á RÚV á öðrum degi jóla og eru átta í heildina. Leikstjóri þáttanna segir þá óð til níunda áratugarins.
Fulltrúi Kvikmyndamiðstöðvar Íslands segir misskilnings gæta í umræðunni um uppbyggingu streymisveitu á vegum ríkisins sem fulltrúar fjarskiptafyrirtækja hafa gagnrýnt undanfarna daga.
Eva Björg Ægisdóttir er næsta stórstjarna á sviði íslenskrar glæpasagnagerðar. Nýr krimmi hennar, Þú sérð mig ekki, er glæsilega ofinn og nýstárleg saga innan þess ramma sem skilgreinir glæpasöguna.
Birkir Blær Óðinsson komst í kvöld áfram í undanúrslitaþætti sænska Idol. Hann keppir því til úrslita í keppninni á föstudaginn.
Íbúar dreifbýlis, Íslendingar sem hafa gefist upp og flutt af landi brott, félagsfælnir, ungbarna foreldrar, sóttkvíar fólk og aðrir sem vegna óviðráðanlegra aðstæðna komast ekki í Háskólabíó. Bið ykkar er á enda, nú getiði upplifað Jülevenner 2021 með stafrænum hætti í gegnum streymi NovaTV.
Listakonan Júlíanna Ósk Hafberg opnar listasýningu í Gallerí Heima laugardaginn 4. desember og er þetta fyrsti viðburður í áhugaverðu ferli listakonunnar.
Ragnar Axelsson ljósmyndari var verðlaunaður fyrir bók sína Hetjur norðurslóða af franska tímaritinu Le Monde de la Photo. Bókin var valin besta ljósmyndabókin, það besta sem í boði er þetta árið.
Í hádeginu á laugardag opnar jólasýningin „Svona eru jólin“ í Ásmundarsal. Um er að ræða sölusýningu með verkum frá hátt í 200 listamönnum.
Það er óhætt að segja að Sigga Beinteins sé ein ástsælasta söngkona landsins og eru jólatónleikar hennar, Á hátíðlegum nótum, orðnir að hefð hjá mörgum í aðdraganda jólanna. Tónleikarnir í ár fara fram í Eldborgarsal Hörpu dagana 3. og 4. desember, þar sem Sigga mun syngja inn jólin ásamt stórskotaliði söngvara. Hér ætlum við hins vegar að komast að því hvað það er sem kemur sjálfri Siggu Beinteins í jólaskapið.
Ríkið mun fjárfesta að óþörfu og skapa varanlegan kostnað ef áform þess um þróun á streymisveitu verða að veruleika. Innlendar streymisveitur, sem geta tekið að sér að dreifa íslenskum kvikmyndum og þáttaröðum, eru nú þegar til staðar og ríkið þyrfti að eyða miklu púðri í að halda streymisveitunni í takt við tímann. Þetta segir Magnús Árnason, framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar hjá Nova.
Desember er loksins runninn upp. Á sjónvarps- og útvarpsvef Vísis má finna fjölmörg hugljúf jólalög sem margir af okkar fremstu listamönnum hafa tekið í gegnum tíðina.
Elísabet Ormslev og Stefanía Svavarsdóttir stigu á svið í kvöld í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð. Með söngkonunum á sviðinu var hljómsveitin Albatross en þeir hófust stundvíslega klukkan 20 á Bylgjunni og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi.
Í dag kemur út fyrsta tónlistarmyndband Salóme Katrínar, við lagið Water sem kom út á samnefndri stuttskífu fyrir rúmu ári síðan.
Kvikmyndin King Richard fjallar um fyrstu skref Williams-systranna Venus og Serenu í tennisheiminum, en hún sýnd í Sambíóunum og Háskólabíói þessa dagana. Faðir þeirra Richard Williams er þó aðalpersóna myndarinnar og dregur Williams-vagninn, líkt og í upphafi ferils systranna.
Ekki virðist hafa tekist nógu vel til við að endurheimta ásýnd svæðisins við Hjörleifshöfða þar sem sandspyrnukeppni á vegum breska bílaþáttarins Top Gear fór fram, þrátt fyrir tilraunir til að lagfæra ummerkin. Tíminn og náttúruöflin munu þurfa að klára verkið, en óvíst er hveru langan tíma það mun taka.
Glæpasagnakóngurinn hefur komið sér makindalega fyrir á toppi bóksölulistans þó ekki sé það reifari sem hann sendir frá sér núna.
Söngkonan Jóhanna Guðrún birti í gær fallega mynd sem virðist hafa verið tekin fyrir eða eftir útgáfutónleika hennar í Háskólabíói á sunnudag.
Það er óhætt að fullyrða að hver einasti Íslendingur hafi einhvern tímann sungið með jólalaginu Ég hlakka svo til. Lag sem sungið var af hinni ellefu ára gömlu Svölu Björgvins í þættinum Jólaboð afa árið 1998. Í dag er hún ein skærasta stjarna okkar Íslendinga. Svala segist vera mikið jólabarn en fyrir henni snúast jólin frekar um að gefa en þiggja.
Jólabókaflóðið er í fullum gangi nú þegar rétt rúmar þrjár vikur eru til aðfangadags. Aldrei hafa fleiri konur verið tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna en þar eru 17 konur á móti fimm körlum.
Íslandsþáttur breska bílaþáttanna ofurvinsælu Top Gear, sem tekinn var upp hér á landi í sumar var sýndur um liðna helgi í Bretlandi. Í þættinum má meðal annars sjá umdeildan utanvegaakstur á Hjörleifshöfða, auk þess sem að þátturinn fjallar að stórum hluta um æsilegan kappakstur um óbyggðir Íslands sem endar á barmi Rauðuskálar.
Fyrsti desember er loksins runninn upp. Á sjónvarps- og útvarpsvef Vísis má finna fjölmörg hugljúf jólalög sem margir af okkar fremstu listamönnum hafa tekið í gegnum tíðina.
Hallgrímur Helgason og Þórunn Jarla hljóta sína 6. tilnefningu hvort til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Kraumsverðlaunin verða afhent í fjórtánda sinn síðar í þessum mánuði þar sem verðlaun verða veitt fyrir þær íslensku hljómplötur sem þykja hafa skarað fram úr á árinu hvað varðar gæði, metnað og frumleika.
Dagur íslenskrar tónlistar var haldinn hátíðlegur víða um land í dag með ýmsum hætti en í Iðnó við tjörnina var haldin stutt hátíðarsamkoma að þessu tilefni þar sem veittar voru viðurkenningar tileinkaðar deginum og heiðursverðlaun dagsins, kennd við Lítinn fugl.
Tuttugua ára afmælistónleikar Sign plötunnar Vindar & Breytingar voru haldnir í Iðnó á laugaradag. Tónleikarnir voru haldnir í samstarfi við Xið og eins og kom fram á Vísi, þá seldist upp á níutíu mínútum.
Nýr kafli í Sex and the City ævintýrinu hefst fljótlega, þegar HBO Max byrjar að sýna „spin-off“ þættina And Just Like That. Sautján ár eru síðan þættirnir hættu í sýningu og ellefu ár eru síðan seinni Sex and the City kvikmyndin kom út.
Ríkisstjórnin hyggst veita fé til þróunar nýrrar innlendrar streymisveitu á næsta ári sem er ætlað að auðvelda og einfalda aðgengi að íslenskum kvikmyndaarfi.
Söngkonan og áhrifavaldurinn Camilla Rut, betur þekkt sem Camy, er mikið jólabarn. Hún og eiginmaður hennar, Rafn Hlíðkvist, hafa haldið vinsæla jólatónleika síðustu ár en árið 2019 fylltu þau Gamla bíó. Camilla segir jólin fyrst og fremst snúast um að skapa minningar með börnunum og finnst henni fátt dýrmætara en að upplifa jólin í gegnum drengina sína tvo.