
Dæmdur til dauða fyrir fjöldamorð í anime myndveri
Japanskur karlmaður hefur verið dæmdur til dauða fyrir að hafa myrt 36 þegar hann kveikti í anime myndveri í borginni Kyoto árið 2019.
Sviðslistir, bókmenntir, sagnfræði, tónlist, myndlist og aðrar listasýningar.
Japanskur karlmaður hefur verið dæmdur til dauða fyrir að hafa myrt 36 þegar hann kveikti í anime myndveri í borginni Kyoto árið 2019.
Kvikmyndin Fullt hús verður frumsýnd 26. janúar. Fullt hús er í leikstjórn Sigurjóns Kjartanssonar en um er að ræða gamanmynd um kammerhljómsveit í fjárhagskröggum.
Bandaríska söngkonan Melanie Safka, sem er betur þekkt sem einungis Melanie, er látin 76 ára að aldri. Hún er hvað þekktust fyrir að hafa sungið lögin Brand New Key, What Have They Done to My Song Ma, og Lay Down (Candles in the Rain), sem og ábreiðu á Rolling Stones-slagaranum Ruby Tuesday.
Þriðji þáttur útsláttarkeppni Idol fer fram annað kvöld í beinni útsendingu frá Idolhöllinni að Fossaleyni. Aðeins sex keppendur standa eftir og keppast um það að verða næsta Idolstjarna Íslands
Skaðinn er skeður, menn og vélar mættar á staðinn, fjarlægja styttu, fjarlægja tjöld. En fátt er svo með öllu illt. Nú vantar nýtt minnismerki í staðinn.
Palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad mun keppa í Söngvakeppni sjónvarpsins. Murad er landsmönnum kunnugur en hann gaf út lag með hljómsveitinni Hatara, eftir Eurovision ævintýri sveitarinnar í Tel Aviv árið 2019.
Dagur B. Eggertsson hélt kveðjupartý í Borgarleikhúsinu síðastliðinn laugardag með glæsibrag. Fjöldi fólks mætti og fagnaði tímamótunum í lífi Dags.
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, vill sjá minnisvarða um MeToo rísa í Reykjavík. Tillaga Lífar um að farið verði í samkeppni um slíkan minnisvarða fyrir þolendur kynferðislegs ofbeldis, áreitni og nauðgana, hefur verið vísað til meðferðar í mannréttinda- og ofbeldisvarnarráði borgarinnar.
Tónlistarkonuna Ágústu Evu Erlendsdóttur grunar að palestínskur tónlistarmaður taki þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins í ár. Það sé ástæða þess að Ríkisútvarpið ætli ekki að taka ákvörðun um þátttöku í Eurovision fyrr en niðurstöður Söngvakeppninnar liggja fyrir. Palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad hefur verið nefndur sem keppandi.
Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu Live, segist aðeins þrisvar sinnum hafa séð aðrar eins mótttökur og í morgun þegar miðar á aukatónleika Laufeyjar kláruðust á einni mínútu eftir að miðasala opnaði. Hann segir marga fokreiða út í Senu vegna málsins.
Starfsmenn borgarinnar eru í þessum skrifuðu orðum að fella séra Friðrik Friðriksson af stalli sínum.
Gríðarleg ánægja er með hvernig til tókst með þáttaröðina True Detective og hefur HBO boðið öllum aðstandendum á sérstaka hátíðarsýningu sem verður í Smárabíói á laugardaginn.
Undirritaður var farinn að halda að allar myndirnar sem líklegar eru til að berjast um Óskarsstyttuna í ár væru hálfgerðar luðrur. Kemur svo ekki Grikkinn Jorgos Lanthimos (How to Kill a Scared Deer og The Favourite) og bjargar deginum með kvikmynd sinni Poor Things, en hún hlaut ellefur tilnefningar til Óskarsverðlauna í gær.
Kanadíski leikarinn Ryan Gosling segist vera vonsvikinn og sársvekktur vegna þess að Greta Gerwig, leikstjóri Barbie og Margot Robbie, aðalleikkona myndarinnar, hafi ekki verið tilnefndar til Óskarsverðlauna líkt og hann sjálfur.
„Ég held að ég leyfi mér hér að vera enn berskjaldaðri en áður,“ segir tónlistarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson um nýja tónlist sem hann var að gefa út. Tæplega fimmtán ár eru liðin frá því að hann sendi frá sér sitt fyrsta lag, Hlið við hlið, og hefur honum tekist að syngja sig aftur og aftur inn í hjörtu þjóðarinnar.
Anders Sandberg, sem lengi var söngvari sænsku hljómsveitarinnar Rednex, er látinn. Sandberg var 55 ára.
Stjórnarmaður í Ríkisútvarpinu segir að stjórnendur stofnunarinnar hafi varpað allri ábyrgð á þátttöku Íslendinga í Eurovision yfir á listafólkið sem tekur þátt í Söngvakeppninni. Það hafi verið gert alfarið á aðkomu stjórnar hlutafélagsins opinbera.
„Ég eyði deginum í að tala um kynlíf,“ segir Áslaug Kristjánsdóttir kynfræðingur og kynlífsráðgjafi í samtali við Marín Möndu Magnúsdóttur í nýjasta hlaðvarpsþætti Spegilmyndarinnar.
Framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna, Volaða land í leikstjórn Hlyns Pálmasonar, er ekki á meðal þeirra erlendu mynda sem tilnefndar eru til Óskarsverðlauna í ár.
Annar þáttur af Idol var sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 síðastliðinn föstudag. Sjö keppendur stigu þar á svið en aðeins sex komust áfram í lok kvölds.
Óskarsverðlaunahátíðin verður haldin með pomp og prakt 10. mars næstkomandi þar sem helstu stjörnur leiklistarheimsins keppast um gullstyttuna eftirsóttu. Tilnefningarnar verða tilkynntar á eftir í beinu streymi, hér á Vísi og Stöð 2 Vísi.
Kanadíski leikstjórinn og framleiðandinn Norman Jewison er látinn, 97 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir að hafa leikstýrt myndum á borð við Moonstruck, In The Heat Of The Night og Fiðlaranum á þakinu.
Sextán ára stelpa á Selfossi kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að því að mála andlitsmyndir af fólki því hún hefur náð svo flottum árangri með myndirnar sína.
Franska kvikmyndahátíðin opnaði með pompi og prakt í Bíó Paradís á fimmtudagskvöldið og fjöldi fólks lagði leið sína á Hverfisgötuna til að horfa á kvikmyndina L’Innocent (Hinn Saklausi) eftir Louis Garrell.
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir áföll í æsku hafa litað líf hans að miklu leyti. Faðir hans var mikill drykkjumaður sem átti það til að breytast í skrímsli en frá móður sinni fékk hann ást og umhyggju.
Það var líf og fjör í Borgarleikhúsinu síðastliðinn föstudaginn þegar sýningin Lúna var frumsýnd fyrir fullu húsi.
Tónlist er eins og tímavél. Ótrúlegt er hve lag sem maður hlustaði á á ákveðnu skeiði, og heyrir svo aftur að einhverjum tíma liðnum, getur kallað fram sterkar tilfinningar sem tengjast þessu tímabili. Það er eins og ormagöng opnist og sogi mann aftur í tímann.
Bandaríski leikarinn David Gail, sem var þekktastur fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Beverly Hills, 90210 og Port Charles, er látinn 58 ára að aldri. Ekki er vitað hvernig andlát hans bar að.
Vala Hauksdóttir hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör árið 2024 fyrir ljóðið Verk að finna. Ljóðstafurinn var veittur við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi í dag.
Fallegustu bækur í heimi eru nú til sýnis á Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ. Grafískur hönnuður segir að í bókverkunum sé hugsað út í minnstu smáatriði, allt frá staðsetningu blaðsíðutalsins og því hvernig titlar séu settir upp.