
RGIII verður lengi frá
Robert Griffin þriðji, leikstjórnandi Washington Redskins, fór í aðgerð í dag vegna hnémeiðsla. Líklegt er að hann muni missa af upphafi næsta tímabils.
Fréttir og úrslit úr bandarísku NFL ruðningsdeildinni.
Robert Griffin þriðji, leikstjórnandi Washington Redskins, fór í aðgerð í dag vegna hnémeiðsla. Líklegt er að hann muni missa af upphafi næsta tímabils.
Robert Griffin þriðji, leikstjórnandi NFL-liðsins Washington Redskins, þarf að fara til sérfræðings í dag vegna hnémeiðsla.
Fyrsta umferð úrslitakeppni NFL-deildarinnar fór fram um helgina en þá fóru svokallaðir Wild Card-leikir fram.
Green Bay Packers og Houston Texans eru komin áfram í aðra umferð úrslitakeppni ameríska fótboltans eftir góða heimasigra í nótt en þessir leikir voru hluti af svokallaðari "Wild-card"-helgi. Hinir tveir leikir helgarinnar fara síðan fram í kvöld.
Úrslitakeppni ameríska fótboltans fer af stað um helgina og verða fyrstu leikirnir spilaði í kvöld og nótt en eins verða leikir annað kvöld. Það er hægt að sjá þessa leiki í beinni útsendingu á ESPN America sem er á rás 43 í Fjölvarpinu.
Maðurinn sem þeir kalla Megatron, Calvin Johnson leikmaður Detroit Lions, sló eitt af glæsilegri metum NFL-deildarinnar á laugardag. Það met átti goðsögnin Jerry Rice.
Tímabilið hefur verið erfitt fyrir undrabarnið og Guðsmanninn Tim Tebow. Hann var fenginn til NY Jets fyrir tímabilið en hefur nánast ekkert verið notaður þó svo aðalleikstjórnandi liðsins, Mark Sanchez, hafi ekkert getað.
Línur eru heldur betur farnar að skýrast í NFL-deildinni enda er aðeins ein umferð eftir af deildarkeppninni. Úrslitakeppnin hefst svo á nýju ári.
Það hefur mikið gengið á hjá Indianapolis Colts í vetur en mesta áfallið kom snemma er þjálfarinn, Chuck Pagano, greindist með hvítblæði og varð að yfirgefa liðið.
Það er ekki nóg að vera hæfileikaríkur hlaupari til þess að ná árangri í NFL. Þú þarft líka að fá góða aðstoð frá stóru strákunum í sóknarlínunni til þess að komast í gegnum holur.
Hinn sex ára gamli Jack Pinto er eitt af fórnarlömbum skotárásrinnar í Newtown á föstudag. Útherji NY Giants, Victor Cruz, var hans uppáhaldsíþróttamaður og Cruz heimsótti fjölskyldu Pinto í gær.
Danny Amendola, leikmaður St. Louis Rams, fagnaði snertimarki með látum um helgina. Ekkert var óeðlilegt við fagnið sem slíkt en hann hefði mátt gæta betur að sér.
Leikstjórnandinn Robert Griffin III, eða RG3 eins og hann er kallaður, hefur heldur betur slegið í gegn í NFL-deildinni á nýliðaári sínu með Washington Redskins.
Leikstjórnandinn Peyton Manning hefur verið ein skærasta stjarna bandarískra íþrótta frá því hann kom inn í deildina árið 1998. Hann spilaði fjórtán tímabil með Indianapolis Colts en var látinn fara frá félaginu fyrir yfirstandandi tímabil.
Forráðamenn NFL-deildarinnar eru frekar íhaldssamir og ekki viljað breyta miklu. Það hefur þó ýmislegt breyst á síðustu árum með leikjum í Evrópu og á fimmtudögum.
Ruðningsleikmaðurinn Jovan Belcher, 25 ára leikmaður Kansas City Chiefs í NFL-deildinni, framdi sjálfsmorð fyrir framan þjálfarann sinn og framkvæmdastjóra fyrir rúmri viku. Hann var þá nýbúinn að myrða barnsmóður sína.
Áföllin halda áfram að dynja á NFL-deildinni. Um síðustu helgi framdi leikmaður deildarinnar sjálfsmorð eftir að hafa myrt unnustu sína. Í gær dó einn leikmaður Dallas Cowboys í bílslysi.
Undrabarnið Robert Griffin III, eða RG3, hjá Washington Redskins átti enn einn stórleikinn á nýliðaári sínu í nótt er hann var aðalmaðurinn á bak við sigur Washington Redksins á meisturum NY Giants.
Frestanir koma helst ekki til greina í NFL og leikmenn Kansas City þurftu að bíta á jaxlinn og spila í gær þó svo einn liðsfélagi þeirra hefði svipt sig lífi á æfingasvæði félagsins á laugardag. Sá hét Jovan Belcher og hann svipti sig lífi eftir að hafa myrt barnsmóður sína.
Hinn eitilharði varnarmaður Detroit Lions, Ndamukong Suh, hefur síðustu tvö ár verið valinn óvinsælasti leikmaður NFL-deildarinnar og það ekki að ástæðulausu. Hann er ákaflega harður í horn að taka og á það til að vera með óþverraskap á vellinum.
Það varð nokkuð ljóst í nótt að New Orleans Saints mun ekki spila Super Bowl-leik á heimavelli sínum á þessu tímabili. Saints tapaði, 23-13, gegn Atlanta Falcons og vonir liðsins um sæti í úrslitakeppninni eru nánast orðnar að engu.
Ólögleg lyfjanotkun í NFL-deildinni er engin nýlunda en leikmenn deildarinnar eru farnir að ganga ansi langt í því að bæta árangur sinn á vellinum.
Níu ára stúlka, Sam Gordon, hefur slegið í gegn í Bandaríkjunum eftir að myndband af afrekum hennar í ruðningsíþróttinni fór um internetið eins og eldur um sinu.
Ray Lewis, varnarmaðurinn öflugi í NFL-liði Baltimore Ravens, hefur ekki sagt sitt síðasta.
Ágúst Jóhannsson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, tilkynnti í dag hvaða sextán leikmenn fara á Evrópumeistaramótið í Serbíu sem hefst í næsta mánuði.
Eli Manning sýndi allar sínar bestu hliðar þegar að NFL-meistararnir í New York Giants unnu afar sannfærandi sigur á sterku liði Green Bay Packers.
Það var greint frá því í gær að Tim Tebow, leikstjórnandi NY Jets, væri með tvo brotin rifbein og að hann hefði rifbeinsbrotnað í leik gegn Seattle fyrir tveim vikum síðan.
Í dag er Þakkargjörðarhátíðin í Bandaríkjunum og eins og ávallt þá fær ameríski fótboltinn sviðsljósið á þessum degi. Þrír leikir fara fram í kvöld og nótt og það er hægt að sjá þá alla á ESPN America á rás 43 á Fjölvarpinu.
Það eru mikil meiðsli í herbúðum NFL-liðsins, Pittsburgh Steelers, þessa dagana og liðið hefur nú samið við gamla brýnið Plaxico Burress.
Harmleikur átti sér stað í Buffalo eftir leik Bills gegn Miami Dolphins. Áhorfanda sem var vísað af vellinum í hálfleik fannst látinn eftir leikinn.