

Olís-deild karla
Leikirnir

Arnar og Hafþór til Aftureldingar
Nýliðar Aftureldingar í N1-deild karla hafa fengið fínan liðsstyrk en tveir leikmenn gengu í raðir félagsins í dag.

Stefán með slitna hásin: Ég er ekki óheppnasti handboltamaðurinn
Hinn lunkni hornamaður Fram, Stefán Baldvin Stefánsson, verður væntanlega ekkert með Frömurum í vetur eftir að hafa slitið hásin á æfingu í vikunni.

Sveinbjörn aftur norður til Akureyrar
Sveinbjörn Pétursson mun spila með Akureyri á næstu leiktíð. Hann skrifar að nýju undir samning á morgun þegar hann kemur aftur norður en Akureyri þarf að borga HK fyrir leikmanninn.

Íslenska U20 liðið endaði í áttunda sæti
Spánn vann Ísland í kvöld 34-32 í leik um sjöunda sætið á Evrópumeistaramóti U20 liða í Slóvakíu.

Strákarnir mæta Frökkum á morgun
Það er frídagur á Evrópumeistaramóti U20 liða í Slóvakíu. Á morgun hefst keppni í milliriðli og mun íslenska liðið etja kappi við Frakka á morgun og Danmörku á miðvikudag.

Níu marka sigur á Ísrael
Strákarnir okkar unnu öruggan sigur á Ísrael á Evrópumóti U20 sem fram fer í Slóvakíu. Ísland vann 40-31.

Dregið í Evrópukeppnum í handbolta - Haukar mæta Íslandsvinum
Íslandsmeistarar Hauka fara til Ítalíu í Evrópukeppni félagsliða í handbolta og mæta þar Conversano í haust. Dregið var í morgun en fjögur íslensk lið voru í pottinum.

Sveinbjörn Pétursson aftur til Akureyrar?
Markmaðurinn Sveinbjörn Pétursson gæti verið á leiðinni aftur til Akureyrar. Hann hefur spilað með HK undanfarin ár en hefur hug á því að spila með sínu gamla félagi á næsta tímabili.

Daníel Einarsson semur við Akureyri
Daníel Einarsson mun í dag skrifa undir samning við Akureyri Handboltafélag. Daníel kemur frá Stjörnunni og mun hann gera eins árs samning við félagið.

Guðjón Drengsson semur við Selfoss
Guðjón Drengsson, hinn eldfljóti hornamaður, er genginn í raðir nýliða Selfoss í N1-deild karla. Guðjón fer til liðsins frá Fram en þetta kom fram í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Valdimar: Valur mjög spennandi kostur
Besti leikmaður N1-deildar karla á síðustu leiktíð, Valdimar Fannar Þórsson, skrifaði undir samning við Val í dag. Hann kemur til félagsins frá HK.

Bjarni skrifaði undir við Akureyri í slopp - Nautakjöt að launum
Akureyri Handboltafélag hélt blaðamannafund um helgina á heldur óvenjulegum stað, í úrbeiningarsal Norðlenska. Þar skrifaði Bjarni Fritzson meðal annars undir samning við félagið.

Tveir efnilegir á námskeið í Svíþjóð
Tveir efnilegustu markverðir landsins, Aron Rafn Eðvarðsson og Arnór Freyr Stefánsson, eru staddir í Svíþjóð þessa dagana.

Bjarni Fritzson til Akureyrar: Ætla að taka þetta alla leið
Markahæsti leikmaður N1-deildarinnar á síðustu leiktíð, Bjarni Fritzson mun flytja búferlum til Akureyrar í sumar. Hann mun á morgun skrifa undir eins árs samning við Akureyri Handboltafélag sem hafði samband við hann strax eftir síðasta tímabil þegar Bjarni lék með FH. Hann hefur spilað 39 landsleiki.

Bjarni Fritzson fer frá FH og semur við Akureyri
Bjarni Fritzson hefur ákveðið að semja við Akureyri og spilar því með félaginu á næstu leiktíð. Bjarni fer því frá FH en hann var markahæsti leikmaður N1-deildarinnar á síðasta tímabili og var fyrir vikið valinn í lið mótsins.

Elvar á leið til Danmerkur
Handknattleikslið Vals heldur áfram að missa leikmenn en stórskyttan Elvar Friðriksson hefur samið við danska úrvalsdeildarliðið Lemvig. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Anton og Kristín semja við Val
Handknattleiksdeild Vals hefur gert nýjan tveggja ára samning við Anton Rúnarsson og eins árs samning við Kristínu Guðmundsdóttur.

Kristján kominn heim til Gróttu
Grótta hefur staðfest að Kristján Halldórsson verði aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu. Geir Sveinsson verður væntanlega áfram með liðið sem féll úr N1-deildinni á síðasta tímabili.

Logi Geirsson: Ekki verið 100% heill í 15 mánuði
Logi Geirsson vinnur nú hörðum höndum að því að gera sig 100% leikfæran fyrir komandi tímabil með FH. Logi hefur lengi átt við meiðsli að stríða og er staðráðinn í því að eiga gott tímabil í heimahögunum.

Sturla: Tel að ég geti bætt mig í íslensku deildinni
Sturla Ásgeirsson gerði í gær eins árs samning við Val og leikur því með félaginu í N1-deild karla á næstu leiktíð. Sturla lék síðast með Düsseldorf í þýsku úrvalsdeildinni og þar áður með Árósum í Danmörku.

Sturla til liðs við Val
Landsliðsmaðurinn Sturla Ásgeirsson mun leika með Val í N1-deild karla á næstu leiktíð en hann hefur gert eins árs samning við félagið.

Snorri Steinn: Vill sjá miklu fleiri áhorfendur á morgun
Ísland og Danmörk gerðu 33-33 jafntefli í fyrri vináttulandsleik þjóðanna í kvöld. Seinni leikurinn verður annað kvöld.

Ísland í riðli með heimsmeisturunum
Dregið var í riðla í dag fyrir Evrópumeistaramót í handbolta kvenna sem fer fram í Danmörku og Noregi í desember næstkomandi.

Bestu leikmenn Íslands flytja út
N1-deild karla í handbolta verður í heild sinni fyrir mikilli blóðtöku í sumar. Margir bestu leikmenn deildarinnar yfirgefa landsteinana og reyna fyrir sér erlendis. Sumir fara í atvinnumennsku, aðrir ætla að spila með vinnu eða námi og enn aðrir eru enn að leita sér að félögum en ætla út.

Jóhann Gunnar aftur heim í Fram
Jóhann Gunnar Einarsson er genginn aftur í raðir Framara. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við sitt gamla félag en hann hefur leikið í Þýskalandi síðasta árið.

Sigfús Sigurðsson ekki áfram hjá Val en gæti spilað áfram
Sigfús Sigurðsson mun ekki spila með Val á næstu leiktíð. Silfurdrengurinn ætlar að sjá til hvort hann spili áfram en honum var tilkynnt af Júlíusi Jónassyni, þjálfara liðsins, að krafta hans yrði ekki óskað.

Liðin sem börðust um titilinn mætast í 1. umferð
Valur og Haukar mætast í 1. umferð N1-deildar karla á næsta tímabili og Fram og Valur í kvennaflokki, en liðin mættust innbyrðis í rimmunum um Íslandsmeistaratitilana á tímabilinu sem var að ljúka.

Elvar framlengir við Val
Stórskyttan Elvar Friðriksson gerði nýjan samning við Val til tveggja ára. Elvar er 24 ára og er uppalinn hjá Val.

Ólafur Guðmundsson samdi við AG
Handknattleiksmaðurinn Ólafur Guðmundsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við danska úrvalsdeildarfélagið AG Kaupmannahöfn.

Tvis Holstebro vill skoða Valdimar Fannar Þórsson
Valdimar Fannar Þórsson er undir smásjá danska úrvalsdeildarfélagsins Team Tvis Holstebro, samkvæmt heimildum fréttastofu.