

Skóla- og menntamál
Fréttir af skóla- og menntamálum á Íslandi.

Fékk nóg af typpafýlunni þegar hún var tekin af sviði rétt fyrir úrslitakeppni
Morfíslið fullskipað Verzlóstrákum að mæla staðfastlega gegn því í ræðukeppni að spilling þrífist á Íslandi. Þetta er pæling sem gengur alls ekki upp að mati Ilmar Maríu Arnarsdóttur, sem var svipt æskudraumnum í júní þegar henni var skipt út af sviðinu rétt fyrir úrslit Morfís.

Veruleikinn í skóla án aðgreiningar
Í fjórðu grein heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna segir: „Tryggja skal jafnan aðgang allra að góðri menntun og stuðla að tækifærum allra til náms alla ævi.“Þetta markmið ætti alltaf að vera til hliðsjónar þegar unnið er að öflugu menntakerfi.

Vonar að stjórnvöld endurtaki ekki leikinn
Styrkir sem stjórnvöld veittu háskólum til að bjóða upp á sumarnámskeið á síðasta ári fólu ekki í sér ólögmæta ríkisaðstoð að sögn Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Félag atvinnurekenda (FA) er ósammála niðurstöðunni og segir hana vera vonbrigði.

Tækniskólinn í Hafnarfjörð
Framtíðarlausn á húsnæðisvanda Tækniskólans hefur verið fundin og hafa allir sem koma að málinu sammælst um hana. Hún er í formi nýs húsnæðis við Suðurhöfnina í Hafnarfirði.

Bannaður á böllum í Borgó og MR myndi aldrei ráða hann
Nemendafélag Borgarholtsskóla hefur í átta ár haft fyrir reglu að ráða tónlistarmanninn Ingólf Þórarinsson ekki á ball. Inspector scholae í Menntaskólanum í Reykjavík segir hegðun tónlistarmannsins hafa verið lengi í umræðunni og hann yrði aldrei ráðinn á skemmtun í skólanum.

Vilja sjá Odda rísa á ný sem menningar- og fræðasetur
Áform um endurreisn Odda á Rangárvöllum með byggingu Sæmundarstofu, nýrrar kirkju og tónlistarhúss voru kynnt á Oddahátíð um helgina samtímis því sem Sinfónuhljómsveit Suðurlands kom fram á sínum fyrstu opinberu tónleikum.

„Þetta er í fyrsta skipti sem mér finnst gaman í málfræðitíma“
Um fimmtíu börn hafa lokið japönskunámskeiði á síðustu vikum. Eitt barnanna segist aldrei hafa skemmt sér jafn vel í málfræðitíma þó tungumálið sé afar erfitt.

Hafnar gagnrýni og stendur með verkefninu „þótt það kosti vissulega sitt“
Ástand atvinnuhúsnæðis sem Reykjavíkurborg keypti undir nýjan leikskóla við Kleppsveg reyndist nokkuð verra en upphaflega var talið. Stefnir því í að framkvæmdir verði mun kostnaðarsamari en gert var ráð fyrir.

Skemmtun skólafélags í Þrastalundi fór „algerlega úr böndunum“
Lögregla á Suðurlandi var kölluð út þegar skemmtun skólafélags í Þrastalundi í Grímsnesi var „algerlega komin úr böndunum“ síðasta laugardagskvöld.

Fasteignafélag stofnað utan um húsnæði Háskóla Íslands
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, gengu í gær formlega frá stofnun sérstaks fasteignafélags um eignarhald og umsjá fasteigna sem nýttar eru í starfsemi skólans.

Undirbúa íslenskunám barna í leikskóla
Breytingar hafa verið gerðar á aðalnámskrá leikskóla landsins og eiga þær að miða að því að mæta betur þörfum barna með annað móðurmál en íslensku og fjöltyngdum börnum í leikskólum. Leikskólarnir munu framvegis þurfa að leggja grunn að íslenskunámi barna.

EFLA mælir ekki með niðurrifi Fossvogsskóla
Skýrsla um ástand Fossvogsskóla kom nýverið út. Rakaástand og innivist var efni rannsóknarinnar og niðurstaðan var ekki góð. Þó telur verkfræðistofan EFLA að unnt sé að nýta útveggi skólans.

Ólafía fékk inngöngu í starfsnám eftir tveggja ára baráttu
Ólafía Kristín Norðfjörð hefur fengið inngöngu í starfsnám í lögreglufræðum hjá Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglunnar. Það er eftir tæplega tveggja ára baráttu gegn því að notkun lyfseðilsskyldra lyfja sé útilokandi þáttur við inntöku.

Háskólinn tekur að sér kennslu fyrir Neyðarlínuna
Háskóli Íslands (HÍ) mun halda námskeið í svokallaðri neyðarsvörun á vormisserum 2022 og 2023. Það er hugsað til að undirbúa fólk fyrir störf hjá Neyðarlínunni.

Lærði í fjórtán tíma á dag og er núna dúxinn í Bónus
Dúxar landsins raða sér inn á síður blaðanna þessa dagana og hvert Íslandsmetið rekur næsta. Fæstir dúxarnir stæra sig samt af því að hafa samhliða náminu unnið baki brotnu í áfyllingum í Bónus, eins og Trausti Lúkas Adamsson.

Um sundkennslu
Umboðsmaður barna, Salvör Nordal, hefur með bréfi til menntamálaráðuneytisins hvatt til þess að námskrá í sundkennslu verði endurskoðuð. Er sú afstaða byggð á fjölda samtala við börn og ungmenni sem hafa efasemdir um sundkennslu í þeirri mynd sem nú er.

Til skoðunar að auka framboð náms fyrir fatlaða í HÍ
Rektor Háskóla Íslands segir til skoðunar að auka námsframboð í skólanum fyrir fólk með fötlun. Einhverf kona segir ósanngjarnt að henni standi bara starfstengt diplómanám til boða.

Vill endurskoða fyrirkomulag skólasunds vegna vanlíðanar barna
Salvör Nordal, umboðsmaður barna hefur sent mennta- og menningarmálaráðuneyti bréf þar sem hún hvetur til þess að fyrirkomulag sundkennslu í grunnskólum verði endurskoðað. Hún telur ákveðinn hóp upplifa óöryggi og vanlíðan í sundtímum.

Þjáningarþríburar fylgdust að á öllum skólastigum
Þríburarnir Jón Friðrik, Kristján og Þór Guðjónssynir útskrifuðust um helgina með BS-gráðu í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands. Bræðurnir hafa fylgst að í gegn um öll skólastig en Jón Friðrik segir þá bræður aldrei hafa ákveðið það saman hvaða skóli eða nám yrði fyrir valinu.

Fengu að vita hvaða skóla þau komust inn í vegna tæknilegrar villu
Hópur nýútskrifaðra grunnskólanema fékk fyrir slysni forskot á sæluna á dögunum þegar tæknileg villa olli því að hægt var að sjá inni á island.is í hvaða framhaldsskóla maður hafði komist inn í.

Útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn sem gefin hefur verið í lögfræðinni
Guðrún Sólveig Pöpperl gerði sér lítið fyrir og útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn á BA-prófi í lögfræði sögu Háskóla Íslands.

Móttökuáætlanir skóla og félagsleg einangrun nemenda með erlendan bakgrunn
Fjölbreytnin í íslensku samfélagi hefur aukist mikið undanfarin ár. Samkvæmt tölum Hagstofunar hefur innflytjendum fjölgað úr 8.0% árið 2012 í 15.2% árið 2020. Skólakerfið hefur þurft að þróast til að koma til móts við þann hóp og er sú vinna enn í fullum gangi.

Tilkynnti rangan sigurvegara í Morfís: „Mér líður ömurlega“
Bæði keppnislið á úrslitakvöldi MORFÍS í gær komust í sigurvímu og bæði upplifðu hræðilega vonbrigðatilfinningu þess sem tapar í úrslitakeppni. Sigurgleði Flensborgarskólans entist þó skemur en Verslunarskólans því oddadómari keppninnar tilkynnti þar ranglega að Flensborg hefði unnið áður en hann leiðrétti sig nokkru síðar.

„Að vera í hljómsveit er eins og að vera í mjög eldfimu ástarsambandi“
„Þetta er búið að vera tvö til þrjú ár í fæðingu. Það er ekkert svona til og mér fannst þetta 100% vanta,“ segir Steinar Orri Fjeldsted, eða Steini í Quarashi eins og hann er oft nefndur.

Hryllingssögur í boði íslenska skólakerfisins
„Með fullri virðingu fyrir MeToo byltingunni, hvers vegna er engin slík bylting í gangi fyrir börn?“ Þetta var athugasemd hópmeðlims á fésbókarsíðunni „Sagan okkar“.

Brautskráning úr Háskólagrunni HR
Sextíu nemendur brautskráðust úr Háskólagrunni Háskólans í Reykjavík við hátíðlega athöfn í gær.

Hvernig getum við stutt betur börn með námserfiðleika í grunnskólum?
Farsæl skólaganga getur skipt sköpum fyrir framtíð barna. Ábyrgð skóla er því mikil og ekki síst hvað varðar stuðning við börn sem eiga í hvað mestum erfiðleikum. Samhliða nýrri og breyttri skólastefnu um skóla án aðgreiningar hefur félagsmótunarhlutverk skóla aukist.

Framhaldsskólinn og nemendur í ólgusjó COVID
Nemendur sem útskrifuðust í vor úr íslenskum framhaldsskólum urðu fyrir barðinu á COVID síðustu þrjár annir skólagöngunnar. Óværan COVID setti miklar takmarkanir á skólastarfið og jafnt nemendur sem starfsfólk og kennarar þurftu reglulega að laga sig að nýjum aðstæðum.

Hátt í tíu þúsund umsóknir bárust Háskóla Íslands
Tæplega tíu þúsund umsóknir bárust Háskóla Íslands í grunn- og framhaldsnám fyrir komandi skólaár. Umsóknir um nám við skólann hafa aldrei verið fleiri, ef frá er talið síðasta skólaár.

„Ekki bara einhver djöfulskapur hjá ungmennum að vaka fram eftir“
Nýtt tilraunaverkefni mun fara af stað hjá Reykjavíkurborg í haust þar sem nokkrum grunnskólar munu seinka skóladeginum. Vonir eru um að verkefnið mun skila sér í bættri líðan, bættum námsárangri og aukinni einbeitingu hjá börnum og ungmennum.