Einar segir stöðuna galopna og hefur áhuga á borgarstjórastólnum Oddviti Framsóknarflokksins vill ræða við oddvita allra flokka í Reykjavík í dag. Hann segist hafa áhuga á stóli borgarstjóra og telur stöðuna galopna. Þrátt fyrir það virðast fáir valkostir í myndun meirihluta á borðinu eins og staðan er núna. Innlent 16. maí 2022 11:54
Jón Páll áfram bæjarstjóri þrátt fyrir valdaskiptin Jón Páll Hreinsson verður endurráðinn bæjarstjóri í Bolungarvík þrátt fyrir að Sjálfstæðismenn hafi misst meirihlutann í bæjarstjórn. K-listi Máttar meyja og manna bættu við sig manni og náðu inn fjórum mönnum af sjö í bæjarstjórn í kosningunum um helgina. Innlent 16. maí 2022 11:52
Þorgeir sneri aftur til Strandabyggðar og vann sigur T-listi Strandabandalagsins vann sigur í sveitarstjórnarkosningum í Strandabyggð á laugardaginn. Oddviti listans er Þorgeir Pálsson, fyrrverandi sveitarstjóri Standabyggðar, sem var sagt upp í apríl 2020. Innlent 16. maí 2022 11:24
Sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins er í Ölfusi Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, fagnar niðurstöðunum í sveitarstjórnarkosningunum um helgina. Elliði hefur lagst yfir tölurnar og fundið út úr því að fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur aldrei mælst hærra í sveitarfélaginu. Innlent 16. maí 2022 11:18
Segir ljóst að ekkert breytist verði Framsókn varahjól undir bíl fallins meirihluta Óformlegar viðræður eiga sér nú stað í Reykjavík. Oddviti Sjálfstæðisflokksins segir ljóst að lítið verði um breytingar ákveði Framsókn að vera „varahjól“ undir föllnum meirihluta. Hildur mun eiga fundi með nokkrum oddvitum í dag en vill lítið gefa upp um hverja hún hittir. Innlent 16. maí 2022 10:27
Eins og búið sé að taka pólitík úr stjórnmálunum Kjörsókn var ljómandi framan af í gær en þegar líða fór á dagin dró úr henni. Í tíu stærstu sveitarfélögum landsins var kjörsókn rétt um og yfir sextíu prósent. Prófessor í stjórnmálafræði telur rólega kosningabaráttu og breytt kosningalög skýra dræma kjörsókn. Innlent 16. maí 2022 09:00
„Við fórum yfir stöðuna og ákváðum að halda saman“ Þórdís Lóa Þórhallsdóttir oddviti Viðreisnar í borgarstjórn segir að oddvitar meirihlutaflokkanna hafi á fundi í gær ákveðið að „halda saman“. Miklar vangaveltur eru uppi um hvaða flokkar muni mynda meirihluta í borgarstjórn en meirihlutinn féll í sveitarstjórnarkosningum á laugardag. Innlent 16. maí 2022 08:35
Mun byrja á því að ræða við Rósu Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknar í Hafnarfirði, segir að Framsóknarmenn muni fyrst eiga viðræður við Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra Hafnarfjarðar og oddvita Sjálfstæðismanna, í vikunni um hvort grundvöllur sé fyrir áframhaldandi meirihlutasamstafi flokkanna í bæjarstjórn. Innlent 16. maí 2022 08:11
Hefja meirihlutaviðræður á Akureyri Bæjarlisti Akureyrar, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur munu hefja formlegar viðræður um myndun meirihluta í sveitarstjórn bæjarins. Innlent 16. maí 2022 07:46
Hvað gerðist í kosningunum Hafnarfirði? Þrátt fyrir að meirihlutinn hafi haldið í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru kosningar helgarinnar um margt sögulegar. Meðal annars vegna þess að hlutfall kosningabærra Hafnfirðinga á bak við hvern bæjarfulltrúa er sögulega lágt. Skoðun 16. maí 2022 00:01
Guðmundur Árni óskar eftir formlegum meirihlutaviðræðum við Framsókn Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, hefur óskað eftir því við oddvita Framsóknar í bænum, Valdimar Víðisson, að flokkarnir tveir hefji viðræður um myndun nýs bæjarstjórnarmeirihluta. Innlent 15. maí 2022 22:49
Tafirnar skýrast af glænýrri reglugerð sem kjörstjórnin skilur ekkert í Margir pirruðu sig á mikilli seinkun sem varð á fyrstu tölum úr Reykjavík eftir kosningar í gær. Formaður yfirkjörstjórnar gagnrýnir nýjar og strangari reglur um talningu og sér ekki tilganginn með þeim. Innlent 15. maí 2022 22:00
Segir engar viðræður hafnar en útilokar ekki samstarfið Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir engar viðræður hafnar milli flokks síns og Framsóknarflokksins. Hún telji þó raunhæfan möguleika að starfa með Framsókn, Viðreisn og Flokki fólksins Innlent 15. maí 2022 20:51
Líf útilokar þátttöku í meirihlutasamstarfi Líf Magneudóttir, oddviti og eini borgarfulltrúi Vinstri grænna í Reykjavík, hefur tjáð samstarfsfélögum sínum í fráfarandi meirihluta að Vinstri græn muni ekki sækjast efir því að taka þátt í viðræðum um meirihlutasamstarf. Innlent 15. maí 2022 20:21
Einar kannast ekki við fullyrðingar síns gamla vinnustaðar Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, segir engar óformlegar viðræður um myndun meirihluta hafnar af sinni hálfu. Hvorki við Sjálfstæðisflokk né aðra. Innlent 15. maí 2022 19:37
Aðeins einn raunhæfur möguleiki á þriggja flokka meirihluta í borginni Möguleikar eru á myndun að minnsta kosti níu samsetningum að meirihlutum í borgarstjórn að loknum kosningunum í gær. Aðeins væri hægt að mynda tvo þriggja flokka meirihluta þótt annar þeirra verði að teljast ólíklegur. Innlent 15. maí 2022 19:20
Konurnar sem skráðu sig á spjöld sögunnar í nótt Tímamót urðu á að minnsta kosti tveimur vígstöðvum eftir að talið var upp úr kjörkössunum í nótt. Yngsti borgarfulltrúi sögunnar náði kjöri í Reykjavík og gamalreyndur bæjarfulltrúi verður fyrst kvenna bæjarstjóri á Ísafirði. Þær eru spenntar fyrir komandi verkefnum. Innlent 15. maí 2022 17:28
Kosningavaktin 2022: Samfylkingin óskar eftir viðræðum við Framsókn í Hafnarfirði Kosningar til sveitarstjórna fóru fram í sveitarfélögum landsins í gær. Fréttastofa fylgist grannt með gangi mála alla helgina. Innlent 15. maí 2022 17:00
Fjóla og Bragi bæjarstjórar í Árborg? Sjálfstæðismenn í Árborg hafa náð völdum sínum á ný því þeir náðu hreinum meirihluta með sex menn í bæjarstjórn í sveitarstjórnarkosningunum. Oddviti Samfylkingarinnar segir aldrei gott að hafa hreinan meirihluta. Oddviti Miðflokksins segir gott að fá frí frá pólitíkinni og geta sinnt börnum sínum meira. Innlent 15. maí 2022 15:30
Pawel segir Viðreisn vilja í starfhæfan meirihluta Pawel Bartoszek datt út úr borgarstjórn í nýafloknum sveitarstjórnarkosningum. Hann var annar maður á lista Viðreisnar sem náði einungis einum manni inn. Hann segir að ekki fyrirfinnist sá stjórnmálamaður sem er sáttur við að fá minna fylgi en síðast. Innlent 15. maí 2022 15:26
Afar dræm kosningaþátttaka áhyggjefni: Máni Péturs vann kosningarnar Tæplega 40 prósent atkvæðabærra borgarbúa létu ekki sjá sig á kjörstað í borginni. Margrét Lilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknum- og greiningu og lýðheilsufræðingur, segir þetta verulegt áhyggjuefni og ætti að vera hverjum þeim sem á annað borð lætur sér annt um lýðræðislegt samfélag. Innlent 15. maí 2022 13:36
Telja rétt að fráfarandi meirihlutaflokkar stilli saman strengi fyrst Oddvitar stærstu stjórnmálaframboðanna í Reykjavík segja fátt um mögulegt meirihlutasamstarf eftir að meirihlutinn féll í kosningunum í gær. Borgarstjóri og oddviti Pírata eru sammála um að réttast sé að fráfarandi meirihlutaflokkar ræði fyrst saman. Innlent 15. maí 2022 12:37
„Sjálfstæðisflokkurinn er lang stærsti flokkurinn á sveitarstjórnarstiginu“ Í mörgum stærstu sveitarfélögunum blasti tap Sjálfstæðisflokksins við, þeir töpuðu bæjarfulltrúum fyrir borð vinstri hægri eins og í Reykjavík, töpuðu manni í Hafnarfirði, Kópavogi … en það breytir ekki þeirri staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn er eftir sem áður stærsti flokkurinn á sveitarstjórnarstiginu. Innlent 15. maí 2022 12:02
Afturhvarf til bílisma í Reykjavík yrðu hryllileg tíðindi Hik í uppbyggingu í samgöngumálum og afturhvarf til bílisma í Reykjavík yrðu hryllileg tíðindi fyrir metnað Íslendinga í loftslagsmálum, að sögn Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar. Ráðherra Sjálfstæðisflokks segir úrslitin í Reykjavík kröfu um breytingar. Innlent 15. maí 2022 11:35
Pólitíkin gefandi, skemmtileg, skemmandi og ljót Karen Elísabet Halldórsdóttir, sem leiddi Miðflokkinn í Kópavogi í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum, kveður pólitíkina í Kópavogi. Hún segist nú frjáls. Innlent 15. maí 2022 11:01
Framsókn sigurvegari á landsvísu Framsóknarflokkur vann stórsigur í kosningum í gær víða um land, sérstaklega í kringum höfuðborgarsvæðið. Flokkurinn er í lykilstöðu þegar kemur að stjórnarmyndun í borginni eftir fall síðasta meirihluta. Innlent 15. maí 2022 11:00
Bein útsending: Aukafréttatími eftir æsilega kosninganótt Framsóknarflokkurinn vann ótrúlegan sigur í borgarstjórnarkosningunum í ár og er í lykilstöðu við myndum nýs meirihluta í borginni. Dramatíkin var víða í sveitarstjórnum landsins. Innlent 15. maí 2022 11:00
Mikil endurnýjun á Akureyri og margar leiðir að meirihluta í boði Á Akureyri hefur frá 2020 verið svokölluð samstjórn í bæjarstjórn. Það er að bæjarfulltrúar allra flokka sem náðu inn manni í kosningunum 2018 hafa haldið sameiginlega um stjórn þessa höfuðbóls manna á Norðurlandi. Innlent 15. maí 2022 09:55
Björg áfram bæjarstjóri í Grundarfirði eftir sigur D-lista D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra vann sigur og hélt meirihluta sínum í sveitarstjórn í Grundarfirði í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru í gær. Innlent 15. maí 2022 09:39
Jakob Björgvin áfram bæjarstjóri eftir sigur H-lista H-listi Framfarasinna vann sigur í kosningum til sveitarstjórnar í sameinuðu sveitarfélagi Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar í gær. Innlent 15. maí 2022 09:18