

Subway-deild karla
Leikirnir

KR-sigur eftir svakalega sigurkörfu - myndir
KR-ingar héldu sigurgöngu sinni áfram í úrslitakeppninni með því að vinna Þór úr Þorlákshöfn 82-79 í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í körfubolta. KR-ingar hafa þar með unnið alla þrjá leiki sína í úrslitakeppninni í ár auk þess að vinna tvo síðustu leiki sína í úrslitakeppninni í fyrra.

Benedikt Guðmundsson: Við stefnum á Íslandsmeistaratitillinn
Benedikt Guðmundsson, þjálfari nýliða Þórs úr Þorlákshöfn, þurfti að sætta sig við naumt tap í fyrsta leik undanúrslitaeinvígisins á móti hans gömlu félögum í KR. KR vann 82-79 og er komið í 1-0 en það þarf að vinna þrjá leiki til þess að komast í lokaúrslitin.

Umfjöllun og viðtöl: KR - Þór Þorl. 82-79 | KR komið í 1-0
Joshua Brown skoraði þriggja stiga körfu í blálokin og tryggði KR þriggja stiga sigur á Þór frá Þorlákshöfn í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla í körfubolta. Leikurinn var jafn frá upphafi til enda og þurfti stórkostlega körfu frá Brown til að skilja liðin að.

Annað einvígi þjálfara úr 1972-árgangi KR hefst í kvöld
KR og Þór Þorlákshöfn spila í kvöld fyrsta leikinn sinn í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í körfubolta og hefst leikurinn klukkan 19.15 í DHL-höllinni í Frostskjóli.

Þór mætir KR | Stjarnan mætir Grindavík
Eftir sigur í dramatískum oddaleikjum sínum í átta liða úrslitum Iceland Express-deildar karla í gærkvöldi er ljóst að Þór mætir KR í undanúrslitum en Stjarnan mætir deildarmeisturum Grindavíkur.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Keflavík 94-87
Stjarnan vann í kvöld sigur á Keflavík í mögnuðum oddaleik liðanna í 8-liða úrslitum Iceland Express-deildarinnar. Leikurinn fór í framlengingu þar sem heimamenn kláruðu dæmið.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þorlákshöfn - Snæfell 72-65
Nýliðar Þórs frá Þorlákshöfn eru komnir í undanúrslit Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik eftir 72-65 sigur í dramatískum oddaleik gegn Snæfell í Þorlákshöfn.

Montrétturinn er líka undir hjá þeim í kvöld
Það skýrist í kvöld hver tvö síðustu liðin verða í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla þegar oddaleikir átta liða úrslitanna fara fram. Stjarnan tekur á móti Keflavík í Ásgarði í Garðabæ og Þór fær Snæfell í heimsókn í Icelandic Glacial-höllina í Þorlákshöfn.

Magnús missir ekki af oddaleiknum - kæru Stjörnunnar hafnað
Aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleikssambands Íslands hefur komið saman og tekið fyrir kæru sem barst eftir viðureign tvö milli Keflavíkur og Stjörnunnar í úrslitakeppni Iceland Express deild karla en leikurinn fór fram mánudaginn 2. apríl. Stjörnumenn kærðu meint viljandi olnbogaskot Magnúsar Þórs Gunnarssonar, fyrirliða Keflavíkur.

Benedikt í KR-treyju: Ekki sá sterkasti í þvottahúsinu
Það vakti athygli að Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs frá Þorlákshöfn, var ekki í Þórs-hettupeysunni á bekknum að þessu sinni heldur var hann kominn í gamla KR-treyju. Blaðamanni lék forvitni á að vita hvernig stæði á þessu.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 88-82
Keflvíkingar knúðu fram oddaleik í rimmu sinni gegn Stjörnunni í 8-liða úrslitum úrslitakeppni Iceland Express-deildar karla í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Snæfell - Þór Þorlákshöfn 94-84
Snæfell og Þór Þorlákshöfn þurfa að mætast í oddaleik í Þorlákshöfn á fimmtudag. Það varð ljóst í kvöld er Snæfell lagði Þór í öðrum leik liðanna og jafnaði þar með einvígið í átta liða úrslitum.

KR sökkti Stólunum í Síkinu
KR-ingar eru komnir í undaúrslit Iceland Express-deildar karla eftir sannfærandi sigur, 81-89, á Tindastóli í Síkinu í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Grindavík - 76-87
Grindavík tryggði sæti sitt í undanúrslitum Iceland-Express deild karla í körfubolta þegar liðið vann Njarðvík, 87-76, í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum. Jafnræði var á með liðunum fyrstu þrjá leikhlutana en í þeim fjórða stungu Grindvíkingar af.

Ingi Þór: Þetta var stór dómur sem fór með leikinn
"Við gerðum algjörlega í buxurnar síðustu fimm mínúturnar,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, eftir tapið í kvöld.

Stjörnumenn sterkari á lokasprettinum - myndir
Stjarnan vann í kvöld sinn þriðja sigur í röð á Keflavík og komst í 1-0 í einvígi liðanna í átta liða úrslitum Iceland Express deild karla.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Keflavík 95-87 | Stjarnan er 1-0 yfir
Stjarnan og Keflavík léku í kvöld fyrsta leik sinn í átta liða úrslitum Iceland Express deildar karla í körfubolta en það lið sem fyrr vinnur tvo leiki kemst áfram í undanúrslit. Stjarnan hafði betur og þarf einn sigur til viðbótar til þess að komast í undanúrslit. Lokatölur, 95-87.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þorl. - Snæfell - 82-77
Þór Þorlákshöfn vann í kvöld frábæran sigur á Snæfell, 82-77, í 8-liða úrslitum Iceland-Express deild karla í körfubolta. Snæfell hafði yfirhöndina nánast allan leikinn en heimamenn gáfust aldrei upp. Í fjórða leikhlutanum komu Þórsarar tvíefldir til leiks og náðu að innbyrða magnaðan sigur.

Upptaka úr Boltanum | Körfuboltaspjall
Þeir Baldur Beck og Jón Björn Ólafsson voru í heimsókn í Boltanum á X-inu í dag og ræddu um úrslitakeppnina í Iceland Express-deild karla í körfubolta.

Körfuboltinn í brennidepli í Boltanum
Körfuboltinn verður í aðalhlutverki í Boltanum á X-inu 977 milli 11 og 12 í dag. Úrslitakeppni Iceland Express-deildarinnar hófst í gær og það verður spáð í spilin með körfuboltagúrúunum Baldri Beck og Jóni Birni Ólafssyni.

Einvígi góðkunningjanna
Sigurður Ingimundarson og Teitur Örlygsson eru ekki að mætast í fyrsta sinn í úrslitakeppni en það eru æskuvinirnir Benedikt Guðmundsson og Ingi Þór Steinþórsson að gera. Tvö einvígi í átta liða úrslitunum fara af stað í kvöld.

Hjalti tekur við Fjölni - Gunnar ekki áfram með ÍR
Hjalti Þór Vilhjálmsson mun taka við þjálfun Fjölnisliðsins í Iceland Express deild karla í körfubolta en þetta kemur fram á karfan.is í kvöld. Fjölnir lét Örvar Þór Kristjánsson fara á dögunum. Karfan.is segir einnig frá því að Gunnar Sverrisson muni ekki þjálfa áfram lið ÍR.

KR-ingar öflugir á lokasprettinum - myndir
KR-ingar eru komnir í 1-0 á móti Tindastól í einvígi liðanna í átta liða úrslitum Iceland Express deildar karla eftir sextán stiga sigur í DHL-höllinni í kvöld, 84-68.

Umfjöllun og viðtöl: KR - Tindastóll 84-68
KR er komið með yfirhöndina í fjórðungsúrslitaeinvíginu gegn Tindastóli eftir 84-68 sigur í Vesturbænum í kvöld. Aðeins munaði þremur stigum fyrir lokaleikhlutann en KR-ingar völtuðu yfir gestina í lokafjórðungnum og unnu sanngjarnan sigur.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Njarðvík 94-67
Grindavík tók 1-0 forystu í einvígi sínu gegn Njarðvík í fjórðungsúrslitum úrslitakeppni Iceland Express-deildar karla með öruggum sigri í Röstinni í kvöld.

Pressan er á Grindavík og KR
Grindavík og KR hefja leik í úrslitakeppni Iceland Express-deildar karla í kvöld. Bæði lið keppa við söguna, KR hefur ekki varið Íslandsmeistaratitil í 33 ár og Grindavík hefur aldrei orðið deildarmeistari og Íslandsmeistari á sama ári.

Örvari sagt upp hjá Fjölni
Stjórn körfuknattleiksdeildar Fjölnis ákvað að segja upp samningi Örvars Þórs Kristjánssonar þjálfara liðsins á síðustu leiktíð. Fjölnir missti naumlega af sæti í úrslitakeppninni á dögunum.

Umfjöllun og viðtöl: Skallagrímur aftur upp í úrvalsdeild
Skallagrímsmenn tryggðu sér sæti í Iceland Express deild karla með öruggum 22 stiga sigri á nágrönnum sínum í ÍA, 89-67, í oddaleik um sæti úrvalsdeildinni en leikurinn fór fram fyrir troðfullu húsi í Borganesi í kvöld.

Bullock og Benedikt stóðu sig best í seinni hlutanum
J'Nathan Bullock leikmaður Grindavíkur og Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þór úr Þorlákshöfn voru kosnir bestir í seinni hluta Iceland Express deildar karla í körfubolta en tilkynnt var um valið á blaðamannafundi fyrir komandi úrslitakeppni karla. Það er sérstök valnefnd á vegum KKÍ sem kýs.

Skallagrímur hafði betur í stútfullu Fjósinu
Skallagrímur er kominn með forystu í einvíginu gegn ÍA um laust sæti í efstu deild karla í körfuknattleik. Borgnesingar lögðu Skagamenn 91-82 í fyrsta leik liðanna í Borgarnesi í gærkvöldi.