
Sér hvað listamenn sem hún vinnur með eru ástríðufullir
Esther Þorvaldsdóttir hefur í gegn um tíðina starfað á flestum sviðum tónlistarbransans en ferill hennar hófst sem aðstoðarmaður hjá menningarstjórnunarfyrirtækinu Aura. Á þeim áratugi sem liðinn er hefur hún keypt fyrirtækið og fært út kvíarnar.