
Forsætisráðherra mætir í Víglínuna
Víglínan hefst kl. 12:20 og er í opinni dagskrá og beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi.
Þjóðmálaþáttur á vegum fréttastofu Stöðvar 2 þar sem fjallað er um það helsta sem er í umræðunni hverju sinni.
Víglínan hefst kl. 12:20 og er í opinni dagskrá og beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi.
Helga Vala Helgadóttir og Sigríður Á. Andersen tókust á um skipun dómara við héraðsdóm á dögunum og voru ósammála um fordæmisgildi Hæstaréttar varðandi Landsdómsmálið. Þær voru gestir Heimis Más Péturssonar í Víglínunni á Stöð 2.
Víglínan snýr aftur á nýju ári.
Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra segir að það sé misskilningur að fjármögnun vegaframkvæmda með vegtollum muni flýta fyrir slíkum framkvæmdum
Alþingi lauk fyrstu umræðu um fyrsta fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur í gærkvöldi og þar með er ríkisstjórnin komin skrefinu lengra en síðasta ríkisstjórn.
Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, gagnrýnir meirihlutann í borgarstjórn fyrir að hafa ekki sýnt nægilegt aðhald í rekstrinum á kjörtímabilinu sem er að líða og segir hann Reykjavíkurborg vera með skuldugustu sveitarfélögum á Íslandi.
Oddný G. Harðardóttir var gestur Heimis Más Pétursson í Víglínunni á Stöð 2 í dag ásamt Birgi Ármannssyni, formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Halldór Halldórsson, fráfarandi oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, eru meðal gesta í Víglínunni hjá Heimi Má Péturssyniklukkan 12:20 í dag.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata telur að í stjórnarsáttmálanum nýja sé að finna misskilning varðandi vímuefnastefnu sem í gildi er hérlendis. Hún leggur til betrunarstefnu en ekki refsistefnu.
Tveir ráðherrar nýrrar ríkisstjórnar sem og Logi Einarsson og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir eru gestir Heimis Más í Víglínunni á Stöð 2 í dag.
Hún sagðist bjartsýn á að flokkarnir næðu saman um myndun ríkisstjórnar en það yrði þó knappt.
Nú lítur út fyrir að Katrín Jakobsdóttir formaður VG og Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins séu að leiða flokkana saman í ríkisstjórn með Framsóknarflokknum. Katrín verður gestur Heimis Más Péturssonar í Víglínunni í dag.
Þorsteinn Víglundsson þingmaður Viðreisnar var gestur í Víglínunni í dag. Þar sagði hann að hann telji að möguleg ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna hafi verið í bígerð mun lengur en raun ber vitni.
Rósa Björg Brynjólfsdóttir þingmaður Vinstri grænna segist efast um að það sé nægilegt traust á milli flokkanna sem standa í stjórnarmyndnarviðræðum.
Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar segir að ekki sé hægt að kalla S, C og P flokka bandalag þó flokkarnir þrír hafa lýst yfir vilja til að mynda stjórn með V og B flokkum.
Sigmundur segir að mögulega ríkisstjórn VG, B og D muni skipta með sér ráðherrastólum og halda völdum, þrátt fyrir að hafa tapað.
Þau Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata mæta í Víglínuna.
Pólitískur órói í Katalóníu og þingkosningar á Íslandi verða til umræðu í Víglínunni hjá Heimi Má Péturssyni fréttamanni að loknum sjónvarpsfréttum Stöðvar 2 í hádeginu.
Andrés Jónsson, almannatengill, segir það vel geta gerst að Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, muni veita Katrínu Jakobsdóttur, formanni Vinstri Grænna, umboð til stjórnarmyndunar jafnvel þó að Sjálfstæðisflokkurinn fái meira fylgi í komandi Alþingiskosningum.
Víglínan er í opinni dagskrá á Stöð 2 og á Vísi klukkan 12.20.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra og nýkjörinn formaður Viðreisnar, var annar gesta Heimis Más Péturssonar í Víglínunni á Stöð 2 í hádeginu í dag og ræddi þar stöðu landbúnaðarmála.
Víglínan er í opinni dagskrá og beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi klukkan 12:20.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson og Margrét Tryggvadóttir eru í hópi gesta Víglínunnar á Stöð 2 klukkan 12:20.
Þau Inga Sæland, Þorsteinn Víglundsson og Rósa Björg Brynjólfsdóttir ræddu komandi kosningar í Víglínunni.
Víglínan er í opinni dagskrá og í beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi klukkan 12:20.
Birgitta og Svandís segja að líta verði á fjárlagafrumvarp fráfarandi ríkisstjórnar sem stefnuyfirlýsingu í komandi þingkosningum.
Svandís Svavarsdóttir, þingmaður VG og varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, telur það fráleitt að halda því fram að Sjálfstæðisflokkurinn sé handhafi stöðugleika í íslenskum stjórnmálum.
Óvissan í landsmálunum verður aðalumræðuefnið í Víglínunni undir stjórn Heimis Más Péturssonar fréttamanns í opinni dagskrá og beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi klukkan 12:20.
Gestir Víglínunnar næsta laugardag verða Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna, Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra og Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar.
Lilja Alfreðsdóttir, þingmaður og varaformaður Framsóknarflokksins, segir ríkisstjórnina hafa viljað afgreiða tillögu um skipan dómara við Landsrétt í skóli nætur. Að hennar mati hafi málið þurft meiri tíma.