
Birtist í Fréttablaðinu

Vilja að völlurinn á Höfn verði millilandaflugvöllur
Birta ætti upplýsingar um flugveðurskilyrði á ensku sem og notkunarleiðbeiningar fyrir flugmenn á vefsíðu Veðurstofunnar. Einnig ætti að gera flugvöllinn á Höfn að millilandaflugvelli. Þessar tillögur birti Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) í skýrslu um atvik sem átti sér stað þann 4. júlí 2014 á Austurlandi.

Hrekkjavakning
Hópefli elur á hatri og sundrungu og er skýrasta dæmið um að vegurinn til vítis er frá fyrsta skrefi varðaður góðum áformum.

Laun í öðrum gjaldmiðli?
„Það er glapræði að taka lán í annarri mynt en þeirri sem þú hefur tekjur í.“ Þessi orð heyrðust oft í kjölfar efnahagshrunsins þegar margir sáu lán sín tvöfaldast við hrun krónunnar.

Tekið rúm þrjú ár að afgreiða tillögur innri endurskoðunar
Innri endurskoðun borgarinnar skilaði úttekt um skrifstofu eigna og atvinnuþróunar fyrir rúmum þremur árum. Þrjátíu ábendingar um úrbætur var þar að finna. Áfangaskýrslu starfshóps sem vinnur úr ábendingunum var skilað í sumar.

Dökkar horfur hjá Snapchat
Snap, fyrirtækið sem rekur Snapchat, stendur illa vegna sífellt harðnandi samkeppni við Instagram og WhatsApp.

Ákærði tjáði oftsinnis hatur sitt á gyðingum
Bowers hafði áður margsinnis tjáð andúð sína á gyðingum á veraldarvefnum.

Segir tillögur Svandísar svívirðilegar
Formaður Flokks fólksins er hissa á fyrirhuguðu frumvarpi um að leyfa þungunarrof fram að 22. viku meðgöngu og gildi þá einu hvaða ástæður liggja að baki. Ljósmæður og fæðingarlæknar meðal þeirra sem gefa umsögn og telja rétt að leyfa þungunarrof fram að 22. viku

Spilltir umboðsmenn eru að eyðileggja belgískan fótbolta
Eins og víðar í knattspyrnusamfélögum í heiminum hafa umboðsmenn knattspyrnumanna og þjálfara verið til vandræða í belgískum fótbolta undanfarið. Vafasamar greiðslur sem þeir hafa tekið við á síðustu árum hafa leitt til lögr

Án Ronaldo og Messi í fyrsta sinn síðan 2007
Í fyrsta sinn í ellefu ár, eða síðan í desember 2007, verða Lionel Messi og Cristiano Ronaldo ekki með þegar Barcelona og Real Madrid mætast

Fyrsti leikurinn gegn Tyrkjum
Íslenska karlalandsliðið mætir því tyrkneska í öðrum leik sínum í undankeppni EM 2020 í dag. Leikurinn fer fram í Ankara, höfuðborg Tyrklands, og hefst klukkan 13.00 að íslenskum tíma. Þetta er í fyrsta sinn sem karlalandslið Íslands og Tyrklands mætast.

Kom af fjöllum en gat ekki sagt nei
Jón Þór Hauksson var ráðinn þjálfari kvennalandsliðsins í vikunni. Leikmannsferill Skagamannsins náði litlu flugi en þjálfun hefur átt hug hans allan síðasta áratuginn. Hann dreymir um að koma Íslandi á HM.

Mömmur þurfa oft að vera leiðinlegar
Silja Hauksdóttir, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir og Rannveig Jónsdóttir ræða efni nýrrar kvikmyndar sem ber vinnutitilinn Hey hó Agnes Cho og er í tökum þessa dagana á Akranesi.

Afhöfðanir
Í Bjarnar sögu Hítdælakappa er sagt frá ástar- og afbrýðisemiþríhyrningi hans sjálfs, Oddnýjar eykindils og eiginmanns hennar, Þórðar Kolbeinssonar. Eftir mikil átök drepur hinn kokkálaði Þórður Björn eljara sinn.

Hefnist fyrir heiðarleika
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir vill hjálpa börnum í vanda og stofnaði fyrirtæki til þess. Þar hefur fólk aðgang að sérfræðingum í gegnum netið. Sjálfstæðisflokkurinn var ekki klár í byltinguna sem hún vildi gera í menntamálum. Hún sér ekki eftir að hafa hætt í pólitík.

Forsætisráðherra hitar upp fyrir Airwaves
Katrín Jakobsdóttir er mikill aðdáandi Airwaves-hátíðarinnar og hlóð því í sérstakan lagalista til upphitunar fyrir hátíðina sem fer fram dagana 7.–10. nóvember. Katrín segir andrúmsloftið rafmagnað á Airwaves.

Léttir börnum með krabbamein lífið
Dóttir Elínar Berglindar Skúladóttur greindist fjögurra ára gömul með bráðahvítblæði og lýkur meðferð 2020. Elín Berglind gefur út bók sem auðveldar börnum með krabbamein að skilja veruleika sinn.

Uppljómun um helvíti
Einar Thoroddsen læknir var nær áratug í ígripum að vinna að þýðingu sinni á Víti eftir Dante Alighieri. Það var bróðir hans Jón sem kallaði hann til verksins. Nú er vegleg og falleg bók komin út með teikningu Ragnars Kjartanssonar sem dregur þar upp sínar eigin myndir af helvíti. Jón er ritstjóri verksins og skrifar jafnframt inngang.

Frá hæsta fjalli niður í dýpstu djúp
Baltasar Kormákur er orðaður við leikstjórastól kvikmyndarinnar Deeper. Myndin á að fjalla um fyrrverandi geimfara sem ráðinn er til að sigla kafbát á dýpsta svæði hafsins þar sem yfirnáttúrulegir hlutir gerast. Ef af myndinni verður mun Baltasar því hafa leikstýrt Everest sem gerist á hæsta fjalli heims og farið niður í dýpstu djúp

Drífa segir stuð og baráttu fram undan
Ný forysta ASÍ var kjörin á þingi sambandsins í gær. Drífa Snædal sem var kjörin forseti segir verkefnin fram undan stór en spennandi. Vilhjálmur Birgisson var kjörinn 1. varaforseti.

Konan sem hvarf
Laugardaginn 23. mars árið 1918 flæktist þýsk kona, Annie Riethof að nafni, óvænt inn í sögu Íslands þegar hún talaði í fyrsta skipti við strák sem hún var skotin í.

Oflék stundum strákahlutverkið
Ísfirðingurinn Veiga Grétarsdóttir hefur breyst úr gæja í gellu eftir kynleiðréttingaraðgerð og er sátt við lífið og tilveruna í dag. En hún þekkir svartnætti og angist og hyggst róa kajak umhverfis landið næsta sumar.

Gripið í tómt í fjársjóðsskipinu
Advanced Marine Services segist engin verðmæti hafa fundið í flaki SS Minden sem liggur undan Íslandi. Umhverfisstofnun telur Landhelgisgæsluna hafa staðfest þetta en Gæslan kveðst ekkert geta fullyrt um það.

Óttast um líf sitt eftir morð Khashoggi
Tveir sádiarabískir stjórnarandstæðingar, sem eru á flótta utan heimalandsins, fordæma stjórnarhætti krónprinsins harðlega í viðtali við Fréttablaðið. Andstæðingar prinsins óttast um líf sitt eftir morðið á Jamal Khashoggi.

Blaðsíða sex
Landsréttur hefur sýknað alla sakborninga í Aurum-málinu. Ákærur voru fyrst birtar 2012. Tíu ár eru frá hruni. Tíu ár er langur tími og umtalsverður hluti af starfsævi fólks. Síðan hefur hagkerfið gengið gegnum djúpa lægð, jafnað sig á ný, og uppsveiflu sem nú virðist á enda. Í réttarsölum virðist tíminn hins vegar hafa staðið í stað.

Breuer hitaði upp fyrir Metallica og áhorfendur komust í stuð
Breuer öskraði Yeah oft og lengi og áhorfendur voru komnir í gríðarlegt stuð þegar stórsveitin steig á svið.

Dómaramálið fær flýtimeðferð
Um er að ræða kæru fjögurra umsækjenda sem dómsmálaráðherra skipaði ekki í Landsrétt þótt þeir hefðu verið á fimmtán manna lista hæfisnefndar yfir umsækjendur.

Innblásinn af Áslaugu
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sakar Þorstein Víglundsson um stuld á frumvarpi um stimpilgjöld. Hann bætir um betur og játar þjófnað á áfengisfrumvarpinu.

Dæmdur fyrir að káfa á leigubílstjóra
Áreitti kvenkyns leigubílstjóra á Þjóðhátíð í Eyjum 2015.

Þverpólitísk skilaboð um bólusetningar
22 þingmenn vilja að starfshópur skoði leiðir til að auka hlutfall bólusetninga barna. Sóttvarnalæknir segir framtakið jákvætt en að vinna sé þegar í gangi.

Með teknó-ið djúpt í blóðinu
Rapparinn Elli Grill úr Shades of Reykjavík hefur vakið athygli fyrir einstakan lífsstíl, áhugaverð tónlistarmyndbönd og óhefðbundið rapp. Í nóvember er von á annarri sólóplötu hans, Pottþétt Elli.