Skotárásir í Bandaríkjunum

Hélt að árásarmaðurinn væri góð manneskja
Árásarmaðurinn sem skaut tólf til bana á föstudag hafði unnið fyrir borgaryfirvöld um árabil.

Ódæðismaður með hljóðdeyfi martröðin sem byssuandstæðingar höfðu varað við
Starfsfólkið sem komst lífs af hefur lýst fyrstu augnablikum árásarinnar sem algjörri ringulreið. Það hafi í fyrstu ekki áttað sig almennilega á því sem væri í gangi og hvers vegna skelfing hafði skyndilega gripið um sig í þjónustumiðstöðunni.

Hátt í sex þúsund látið lífið af völdum skotvopna í Bandaríkjunum í ár
Alls hafa 5.822 manns látið lífið af völdum skotvopna í Bandaríkjunum það sem af er árinu 2019 en skotárásin í Virgina Beach í gær var sú 150. í ár.

Nöfn þeirra sem létust í árásinni í Virginia Beach gerð opinber
Ellefu borgarstarfsmenn og einn verktaki létust í árásinni.

Tólf létu lífið í skotárásinni í Virginia Beach: Vettvangi árásarinnar „best lýst sem stríðsátökum“
Tólf létu lífið í árásinni.

Ellefu manns myrtir í skotárás í Virginia Beach
Að minnsta kosti ellefu manns voru myrtir og sex særðust í skotárás í borginni Virginia Beach í Bandaríkjunum í dag.

Einn eftirlifenda Columbine-fjöldamorðanna látinn
Austin Eubanks fannst látinn að heimili sínu í gær, 37 ára að aldri.

Unglingar sem skutu skólafélaga í Colorado ákærðir
Dómarinn í máli tveggja unglinga sem skutu samnemendur í Highlands Ranch ákvað að réttað yrði á bak við luktar dyr og að leynd myndi hvíla yfir gögnum málsins.

Fundu rúmlega þúsund byssur í glæsihýsi í Los Angeles
Það tók þrjátíu lögregluþjóna minnst tólf tíma að finna allar byssurnar og fjarlægja þær.

Einn nemandi látinn eftir skotárásina í Colorado
Tveir ungir menn sem eru taldir nemendur við Highlands Ranch-skólann voru handteknir vegna árásarinnar. Einn er látinn og sjö eru sagðir særðir.

Einn látinn eftir skotárásina í Colorado
Einn er látinn og átta eru særðir eftir að tveir nemendur í menntaskóla í Colorado skutu á samnemendur sína í gær.

Minnst sjö skotnir í skóla í Colorado
Minnst sjö eru særðir eftir að tveir aðilar hleyptu af skotum í skóla í úthverfi Denver fyrr í kvöld.

Skaut táning sem var að leika sér með loftbyssur með vinum sínum
Fjölskylda fjórtán ára drengs sem skotinn var af lögregluþjóni í Oklahoma í mars, undirbýr nú lögsókn gegn lögreglunni vegna árásarinnar. Lögsóknin byggir á myndbandi úr vestismyndavél lögregluþjóna sem kallaðir voru til vegna unglinga sem voru að leika sér með loftbyssur í yfirgefnu húsi.

Allir kennarar Flórída geta nú borið vopn
Þing ríkisins samþykkti í gær lög þess eðlis og er þeim ætlað að koma í veg fyrir eða draga úr mannskæðum skotárásum í skólum Flórída.

Íslenskur nemandi segir árásarmanninn hafa verið ósáttan við kennara í skólanum
Tveir létust og nokkrir særðust í skotárás á svæði háskóla Norður Karólínu í Charlotte í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Íslenskur námsmaður í skólanum segir ofsahræðslu hafa gripið um sig. Árásarmaðurinn hafi verið ósáttur við kennara í skólanum.


Konan sem lést sögð hafa kastað sér fyrir kúlnahríðina
Konan sem lést í skotárásinni í bænahúsi gyðinga í Kaliforníu í Bandaríkjunum í gær er sögð hafa kastað sér fyrir kúlnahríð árásarmannsins í von um að bjarga rabbína bænahússins.

Morðinginn í Kaliforníu sagður innblásinn af fyrri hryðjuverkum
Kona er látin og þrír aðrir eru særðir eftir skotárás manns sem virðist hafa lýst sér sem gyðingahatara og hvítum þjóðernissinna.

Forseti NRA segir sér bolað burt
Fyrrverandi undirofurstinn Oliver North segist neyddur til að draga framboð sitt til áframhaldandi forsetastarfa fyrir bandarísku skotvopnasamtökin, NRA, til baka.

Einn látinn eftir skotárás í Kaliforníu
Karlmaður er í haldi lögreglu eftir að tilkynningar bárust um skothvelli skammt frá sýnagógu, bænahúsi gyðinga, í borginni Poway, skammt frá San Diego í Kaliforníu.

Kona heltekin af fjöldamorðinu í Columbine-skólanum fannst látin
Bandaríska alríkislögreglan FBI hafði konuna grunaða um að ætla sér að líkja eftir fjöldamorðið í Columbine-framhaldsskólanum í Colorado.

Viðbúnaður í Columbine-skólanum vegna ógnar tuttugu árum eftir fjöldamorðið
Alríkislögreglan er sögð leita átján ára gamallar stúlku sem hafi sent inn hótanir sem beindust að skólanum sem var vettvangur fjöldamorðs fyrir tuttugu árum.

Allar ákærur felldar niður vegna blóðbaðsins í Waco
Saksóknarar eru sagðir hafa klúðrað rannsókn málsins með alvarlegum hætti.

Nafngreina grunaðan morðingja Nipsey Hussle
Lögregla í Los Angeles hefur lýst eftir manni að nafni Eric Holder í tengslum við málið.

Rapparinn Nipsey Hussle skotinn til bana
Lögreglan í Los Angeles segir að rapparinn Nipsey Hussle, sem tilnefndur var til Grammy verðlauna á árinu, hafi verið skotinn til bana í suðurhluta borgarinnar.

Maður vopnaður sverði skotinn í kirkju Vísindakirkjunnar
Lögregluþjónar skutu mann til bana sem gekk vopnaður stóru sverði inn í kirkju Vísindakirkjunnar í Inglewood í Kaliforníu í Bandaríkjunum.

Einu skrefi nær því að höfða mál gegn Remington vegna Sandy Hook
Hæstiréttur Connecticut hefur komist að þeirri niðurstöður að fjölskyldur fórnarlamba skotárásarinnar í Sandy Hook mega höfða mál gegn skotvopnaframleiðendanum Remington.

Bæjarstjóri skaut að lögregluþjónum í Flórída
Lögregluþjónar ætluðu að handtaka Massad fyrir að stunda lækningar, þar á meðal skurðaðgerð, án réttinda.

Fimm létu lífið og margir særðust í skotárás í Illinois
Fimm létu lífið í árásinni í Illinois í kvöld.

Engin sérstök ástæða að baki skotárásinni mannskæðu í Las Vegas
Það er niðurstaða bandarísku Alríkislögreglunnar FBI að engin ein sérstök ástæða hafi búið að baki skotárásinni í Las Vegas í Bandaríkjunum árið 2017 þar sem 58 létust er Stephen Paddock lét kúlunum rigna yfir tónleikagesti á Route 91 Harvest tónleikahátíðinni.