Ólympíuleikar

Það er vel hægt að eignast börn og vinna til verðlauna á ÓL
Franska móðirin Marie Martinod vann til silfurverðlauna á ÓL í nótt og vildi með því senda skýr skilaboð til annarra kvenna.

Besti og lélegasti keppandinn á Vetrarólympíuleikunum
Hin bandaríska Elizabeth Swaney er ein af óvæntu stjörnunum á Vetrarólympíuleikunum. Ástæðan er sú að hún gerði nákvæmlega ekki neitt í sinni grein sem þó gengur út á að sýna alls konar listir.

Allir steinarnir í krullukeppni ÓL koma frá einni lítilli eyju
Keppni í krullu hefur staðið yfir alla Ólympíuleikanna í PyeongChang og vakið athygli margra eins og oft áður á vetrarleikunum.

Tvö lið fengu gullverðlaun í sömu greininni
Mjög óvenjulegur atburður átti sér stað í PyeongChang í Suður Kóreu í dag þegar keppni í tveggja manna bobbsleðakeppni karla fór fram. Tvö bestu liðin þurftu að deila gullverðlaununum þar sem ekki var hægt að gera upp á milli þeirra.

Keppti í fötum af bróður sínum sem lést í október
Bandaríski skíðakappinn Jonathon Lillis keppti í úrslitum í skíðafimi á Vetrarólympíuleikunum í PyeongChang í gær í fötum af bróður hans sem féll frá í október.

Hjónin unnu ÓL-brons saman en eiginmaðurinn féll síðan á lyfjaprófi
Rússneskur bronsverðlaunahafi á Ólympíuleikunum í Pyeongchang féll á lyfjaprófi en Alþjóðaíþróttadómstóllinn hefur kært hann vegna ólöglegrar lyfjanotkunnar. Þetta er fyrsti verðlaunahafi leikanna sem fellur á lyfjaprófi.

Versta martröð skautakonu er geirvartan skaust út úr kjólnum
Það er búið að vera talsvert kjólavesen í listdansinum á skautum á Vetrarólympíuleikunum í PyeongChang og geirvarta franskrar skautakonu var í brennidepli í nótt.

Kærasti Shiffrin sendur heim frá Vetrarólympíuleikunum
Franski skíðakappinn Mathieu Faivre, sem er kærasti skíðadrottningarinnar Mikaela Shiffrin, missti sig eftir stórsvigskeppni ÓL í gær þar sem hann varð í sjöunda sæti.

Sturla náði ekki að ljúka keppni
Sturla Snær Snorrason komst ekki í mark á Ólympíuleikunum í Pyeongchang í nótt þegar hann keppti í stórsvigi. Marcel Hirscher stóð uppi sem sigurvegari.

Tékknesk snjóbrettastjarna skrifar ótrúlega sögu á Vetrarólympíuleikunum
Hin tékkneska Ester Ledecká hefur skráð sig á spjöld sögunnar á Vetrarólympíuleikunum sem fram fara í PyeongChang þessa dagana.

Snjóbrettakona sem hélt að tímataflan væri biluð tók gullið í risasvigi
Ester Ledecka, frá Tékklandi, kom öllum að óvörum og vann til gullverðlauna á vetrarólympíuleikunum í risasvigi kvenna, en hún hirti gullið af verðlaunahafanu frá 2014, Önnu Veith frá Austurríki, sem þurfti að sætta sig við silfrið.

Bjørgen jafnaði Ole Einar Bjørndalen
Marit Bjørgen gerði sér lítið fyrir og jafnaði medalíufjölda goðsagnarinnar Ole Einar Bjørndalen þegar norska kvennaboðsveitin kom fyrst í marki á vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang.

Beri Tonga-maðurinn varð ekki í síðasta sæti
Íslandsvinurinn Pita Taufatofua náði öllum markmiðum sínum á Vetrarólympíuleikunum í PyeongChang.

Íþróttamennirnir borða nokkur tonn af mat á dag | Myndband
Það er ekki lítið mál að halda úti matartjaldinu á Vetrarólympíuleikunum þar sem íþróttamennirnir flestir borða á hverjum degi.

Hálsbrotnaði eftir fall á ÓL en kláraði samt ferðina
Austurríkismaðurinn Markus Schairer er á heimleið frá Ólympíuleikunum í Pyeongchang en getur talist við lukkunnar pamfíll þrátt fyrir að hann hafi ekki komist upp úr átta manna úrslitum snjóbrettaatsins.

Svisslendingurinn í rúllustiganum kominn með nóróveiruna
Svisslendingurinn Fabian Bösch hefur nælt sér í mikla athygli á Vetrarólympíuleikunum eftir að hann fór upp rúllustiga á stórkostlegan hátt. Hann er kominn í fréttirnar fyrir annað núna.

„Iron Man“ vann Ólympíugull fyrir heimamenn í nótt
Suður-Kóreumenn unnu í nótt sitt annað gull á Ólympíuleikunum í Pyeongchang en það þurfti sannkallaða ofurhetju til að landa því.

Snorri hafnaði í 54. sæti
Snorri Einarsson varð í 54. sæti í 15 km skíðagöngu í morgun

Freydís Halla í 41. sæti í svigi
Freydís Halla Einarsdóttir kláraði báðar ferðirnar í sviginu í PyeungChang.

Tók bronsið af heimakonu og fékk yfir sig þúsundir líflátshótana
Suður-Kóreumenn standa þétt við bakið á sínu fólki á Vetrarólympíuleikunum og þeir voru allt annað en sáttir er brons var tekið af heimakonu.

Geta séð hvor þeirra var á undan en báðar fá samt bronsið
Marit Björgen frá Noregi og Krista Pärmäkoski frá Finnlandi urðu nótt fyrstu keppendur í einstaklingskeppni Ólympíuleikanna í Pyeongchang til að deila verðlaunum á þessum leikum.

Tjáði sig dólgslega um hina 17 ára Chloe Kim og missti útvarpsþáttinn sinn
"Ég bið alla afsökunar á því að hafa verið algjört fífl,“ sagði útvarpsmaðurinn Patrick Connor í afsökunarbeiðni sinni á Twitter. Hann breytti því þó ekki að ummæli hans um hina sautján ára Chloe Kim kostuðu hann útvarpsþáttinn hans.

Hvað eru þessar plöntur að flækjast fyrir í skíðastökkinu?
Þeir sem fylgjast með skíðastökkinu á Vetrarólympíuleikunum hafa örugglega spurt sjálfan sig að því af hverju í fjandanum það séu plöntur að koma upp úr snjónum?

Elsa kom 78. í mark í skíðagöngu í PyeungChang
Elsa Guðrún Jónsdóttir varð fyrsta íslenska konan sem keppir í skíðagöngu á Vetrarólympíuleikunum.

Freydís féll í seinni ferðinni
Freydís Halla Einarsdóttir náði ekki að klára keppni í stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum.

Líkt við Angelinu Jolie, datt á rassinn en nældi samt í brons
Rússneska krullustjarnan Anastasia Bryzgalova hefur komið með hitann á Vetrarólympíuleikana í Suður-Kóreu enda hefur útlit hennar gert hana að stjörnu.

Skrifar íslenska íþróttasögu
Elsa Guðrún Jónsdóttir verður fyrsta íslenska konan sem keppir í göngu á Vetrarólympíuleikum þegar hún verður á meðal keppenda í 10km göngu í fyrramálið.

Stenmark sendi Lindsey Vonn kveðju til Suður-Kóreu
Það styttist í að skíðastjarnan Lindsey Vonn hefji keppni á Vetrarólympíuleikunum í PeyongChang en hún fékk senda flotta kveðju þangað.

Sjáðu sturlaða lokaferð Rauða tómatsins sem tryggði honum þriðja Ólympíugullið
Shaun White sannaði að enginn er betri í hálfpípunni en hann.

„Cool runnings“ ævintýrið að breytast í martröð hjá bobsleðastelpum Jamaíku
Bobsleðastrákarnir frá Jamaíka áttu eftirminnilega innkomu á vetrarólympíuleikunum í Calgary fyrir þrjátíu árum og á Ólympíuleikunum í Pyeongchang ætluðu boðsleðastelpurnar frá Jamaíka að sýna sig og sanna.