
EM 2020 í fótbolta

Grealish gaf ungum stuðningsmanni skóna sína eftir úrslitaleikinn
Þrátt fyrir að Jack Grealish vilji eflaust gleyma tapinu fyrir Ítalíu í úrslitaleik EM sem fyrst gerði hann leikdaginn ógleymanlegan fyrir ungan stuðningsmann Englands.

Vissi ekki að hann hafði tryggt Ítölum titilinn þegar hann varði frá Saka
Athygli vakti að Gianluigi Donnarumma fagnaði ekki strax eftir að hann tryggði Ítalíu Evrópumeistaratitilinn með því að verja vítaspyrnu Bukayos Saka í leiknum gegn Englandi. Ástæðan er nokkuð skondin.

Úrvalslið EM: Donnarumma, Bonucci, Ronaldo og fleiri góðir
EM í knattspyrnu lauk í gærkvöld þegar Ítalía lagði England eftir vítaspyrnukeppni þar sem staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu.

Segir að Southgate hafi frosið í úrslitaleiknum
Rio Ferdinand, fyrrverandi landsliðsmaður Englands, segir að Gareth Southgate hafi farið illa að ráði sínu í úrslitaleik EM og hreinlega frosið.

Landsliðsmaður Englands tekur innanríkisráðherrann til bæna
Enski landsliðsmaðurinn Tyrone Mings segir holan hljóm í gagnrýni Priti Patel, innanríkisráðherra Bretlands, á kynþáttaníð sem samherjar hans, Jadon Sancho, Marcus Rashford og Bukayo Saka, urðu fyrir eftir úrslitaleik EM.

Formúlu 1 ökuþór rændur eftir úrslitaleik EM og rándýru úri hans stolið
Formúlu 1 ökuþórinn Lando Norris var rændur eftir úrslitaleik EM á Wembley í fyrradag.

Biðst afsökunar á vítinu
Marcus Rashford hefur þurft að þola mikið kynþáttaníð eftir að hafa klúðrað víti í úrslitaleik Englands og Ítalíu á EM í knattspyrnu.

Sendi dæmigerða Zlatans-kveðju til hetju Ítala
Zlatan Ibrahimovic óskaði „sínu öðru heimalandi“ til hamingju með Evrópumeistaratitilinn eftir að Ítalía vann England í úrslitaleik EM í fótbolta.

Maður mótsins aldrei tapað í vítaspyrnukeppni
Þegar ljóst var að úrslit Evrópumótsins í fótbolta yrðu útkljáð með vítaspyrnukeppni hefur eflaust farið um margan leikmanninn. Reikna má með að Gianluigi Donnarumma, markvörður Ítalíu, hafi hins vegar verið sá rólegasti.

Stuðningsmenn hylja skemmdarverk á mynd af Rashford
Stuðningsmenn fótboltakappans Marcus Rashford hafa tekið sig til og hulið andstyggileg skilaboð, sem máluð voru á veggmynd af honum, með fallegum skilaboðum.

Tugir handteknir, slasaðir lögreglumenn og rasísku níði rignir
Rasískum skilaboðum hefur ringt yfir þá þrjá ensku landsliðsmenn í knattspyrnu sem brenndu af vítaspyrnum sínum í úrslitaleik EM karla í gærkvöldi. Forsætisráðherra Bretlands fordæmir hatursorðræðuna en sætir sjálfur gagnrýni. Nítján lögreglumenn slösuðust í átökum við fótboltabullur og voru 49 handteknir.

„Byrjuðu að öskra nafnið hans og hvað þeir elskuðu hann“
„Ég hef aldrei upplifað svona stemningu. Maður komst varla heim og sá bara ekki fyrir sér að fagnaðarlætin myndu taka nokkurn enda,“ segir Andri Már Rúnarsson sem var svo heppinn að vera staddur á Dómkirkjutorginu í Mílanó þegar Ítalir fögnuðu Evrópumeistaratitlinum í fótbolta.

Konungurinn Chiellini mætti með bikarinn heim til Rómar
Svo virðist sem ítalska landsliðið í fótbolta hafi stokkið upp í flugvél um leið og liðið var búið að fagna Evrópumeistaratitlinum sem það vann á Wembley í Lundúnum í gærkvöld.

Jones úr Sex Pistols syrgir tapið með tilfinningaþrungnum blús
Steve Jones, gítarleikari pönksveitarinnar Sex Pistols, syrgði tap Englendinga gegn Ítalíu á EM í gær eins og margir samlandar hans hafa líklega gert. Jones birti myndband á Facebook-síðu sinni þar sem hann spilar tilfinningaþrunginn blús á gítarinn inni á baðherbergi heima hjá sér.

Grealish svarar Keane fullum hálsi: „Ég sagðist vilja taka víti!!!!“
Jack Grealish segir Roy Keane fara með staðlausa stafi og segist hafa viljað taka víti í vítakeppninni í úrslitaleik EM í gær.

Gáfu Saka tíu í einkunn fyrir frammistöðuna í úrslitaleiknum
Sky Sports sýndi Bukayo Saka stuðning með táknrænum hætti eftir tap Englands fyrir Ítalíu í úrslitaleik EM í gær.

Utan vallar: Southgate gjörsamlega í bullinu, eða hvað?
Þeir voru ekki lengi að snúast gegn honum. Gareth Southgate. Landsliðseinvaldinum sem setti mikla ábyrgð á herðar ungstirna enska landsliðsins í vítaspyrnukeppninni gegn Ítalíu í gær. Þjálfari með allt niðrum sig. Glórulaus ákvörðun. Reka manninn!

Mourinho skilur ekki af hverju Saka tók síðustu spyrnuna: „Hvar voru Sterling, Stones og Shaw?
José Mourinho, knattspyrnustjóri Roma, skilur ekki af hverju Bukayo Saka tók síðustu spyrnu Englands í vítakeppninni gegn Ítalíu í úrslitaleik EM en ekki einhver reynslumeiri leikmaður.

Forsíður ensku blaðanna eftir tapið í úrslitaleik EM: Svekkelski, tár fyrir hetjurnar og stolt ljónanna
Tapið sára fyrir Ítalíu var að sjálfsögðu áberandi á forsíðum ensku blaðanna í morgun.

Fyrsta þjóðin sem vinnur EM karla og Eurovision á sama árinu
Eftir að ítalska fótboltalandsliðið vann EM í gær er Ítalía nú handhafi tveggja stærstu titlanna í íþróttum og listum í Evrópu.

Southgate tekur tapið á sig og segist hafa ákveðið röðina á vítaskyttunum sjálfur
Gareth Southgate tók tap Englands gegn Ítalíu í úrslitaleik EM í gær á sig. Hann sagðist hafa ákveðið röðina á vítaskyttum Englendinga sjálfur.

Strípalingur á Wembley: „Þyrftum eiginlega að hafa Óla Kristjáns á teikniborðinu“
Strípalingur komst inn á völlinn á Wembley í gærkvöld á meðan úrslitaleikur Englands og Ítalíu stóð yfir og sá gat hlaupið töluvert um áður en öryggisverðir sneru hann niður. Farið var yfir atvikið í EM í dag eftir leik gærkvöldsins sem Ítalir unnu eftir vítakeppni.

Sjáðu mörkin, vítakeppnina og bikarinn á loft
Ítalía varð í kvöld Evrópumeistari karla í fótbolta í annað sinn eftir 3-2 sigur á Englandi í vítaspyrnukeppni eftir 1-1 jafntefli liðanna á Wembley í Lundúnum. Mikil dramatík var í leiknum.

„Ég hef engin orð yfir þennan hóp“
Roberto Mancini stýrði Ítalíu til Evrópumeistaratitils á sínu fyrsta stórmóti sem þjálfari. Ítalía vann England 3-2 í vítakeppni eftir 1-1 jafntefli liðanna í úrslitaleik EM á Wembley í Lundúnum í kvöld.

„Verður sárt það sem eftir lifir ferilsins“
Harry Kane, fyrirliði enska karlalandsliðsins í fótbolta, var að vonum niðurbrotinn eftir tap Englands í vítaspyrnukeppni fyrir Ítalíu í úrslitum Evrópumótsins á Wembley í Lundúnum.

„Hann kemur til Rómar“
Leonardo Bonucci var valinn maður leiksins í úrslitaleik Evrópumóts karla í fótbolta milli Ítalíu og Englands á Wembley í Lundúnum í kvöld. Hann var að vonum hamingjusamur eftir 3-2 sigur Ítala í vítaspyrnukeppni.

Hetja Ítala valinn besti leikmaður mótsins
Markvörðurinn Gianluigi Donnarumma var verðlaunaður eftir úrslitaleik Englands og Ítalíu í kvöld. Hann var valinn leikmaður mótsins á nýafstöðnu Evrópumóti.

Dýrkeyptar skiptingar Southgate
Gareth Southgate, þjálfari enska karlalandsliðsins í fótbolta, gerði tvær dýrkeyptar skiptingar undir lok framlengingar í úrslitaleik Evrópumótsins gegn Ítölum í kvöld. Ítalir unnu 3-2 eftir vítaspyrnukeppni þar sem varamenn Southgate klikkuðu.

Ítalir Evrópumeistarar eftir ótrúlega vítaspyrnukeppni
Ítalía er Evrópumeistari karla í fótbolta eftir 3-2 sigur á Englandi í vítaspyrnukeppni á Wembley í Lundúnum, eftir 1-1 jafntefli í venjulegum leiktíma og framlengingu. Gianluigi Donnarumma, markvörður Ítala, var hetjan.

Aldrei verið skorað eins snemma
Luke Shaw, vinstri bakvörður Manchester United og enska landsliðsins, kom þeim ensku yfir í úrslitum Evrópumótsins snemma leiks. England leiðir 1-0 í hálfleik á Wembley í Lundúnum.