Fiskeldi

Gróðahyggjan má ekki ráða öllu
Takk fyrir VG í Múlaþingi að styðja okkur, sem erum andvíg laxeldi í Seyðisfirði. Þingmaður VG í kjördæminu er á sömu skoðun. Nú þurfum við formann VG og forsætisráðherra líka í liðið. Við getum ekki látið fólk standa á Austurvelli út af öllum málum, sem eru afgreidd í bakherbergjum í skjóli nætur.

„Firðinum er vonandi ekki mikil hætta búin“
Frambjóðandi VG í Múlaþingi telur andstöðu Seyðfirðinga við fyrirhugað fiskeldi fordæmalausa á landsvísu. Þá hafi bæjarbúar sýnt að þeir séu færir um atvinnusköpun með öðrum leiðum. Heimastjórnarmaður telur andstöðuna ofmetna og segir eldið ómissandi fyrir uppbyggingu.

Tekjur Arnarlax meira en tvöfölduðust á fyrstu þremur mánuðum ársins
Rekstrartekjur Icelandic Salmon, móðurfélag Arnarlax sem er stærsta fiskeldisfyrirtæki landsins, námu 37,1 milljónum evra, jafnvirði um 5,2 milljarða íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi þessa árs og jukust um 114 prósent frá sama tímabili á árinu 2021. Rekstrarhagnaður félagsins (EBIT) var 9,5 milljónir evra borið saman við 400 þúsund evrur á sama fjórðungi í fyrra.

Hlutafé fiskeldisfélags Samherja aukið um þrjá og hálfan milljarð
Um þriggja og hálfs milljarðs króna hlutafjáraukning Samherja fiskeldis ehf. er sögð verða nýtt til að byggja upp tilraunaverkefni í Öxarfirði og framkvæmdir við Reykjanesvirkjun. Fyrrverandi forstjóri stærsta fiskeldisfyrirtækis heims er á meðal fjárfesta og tekur sæti í stjórn.

Laxeldi í Seyðisfirði má hindra!
Nýverið, sjö árum eftir upphaf laxeldisáforma í Seyðisfirði héldu forsvarsmenn eldisins loks upplýsingafund um sín áform. Þá voru 15 mánuðir síðan sveitarstjóri Múlaþings tók við undirskriftum 55% Seyðfirðinga sem mótmæltu laxeldinu afdráttarlaust.

Andri og Birgir með helmingshlut í félagi sem fjárfestir í fiskeldi
Eignarhaldsfélagið ÍV SIF Equity Farming (ÍSEF), sem var stofnað í fyrra og hefur það meginmarkmiði að byggja upp eignasafn í fiskeldi og tengdri starfsemi, sótti sér samtals 1.450 milljónir króna frá innlendum fjárfestum til að fjármagna fyrstu tvær fjárfestingar félagsins á árinu 2021.

Hvar er íbúalýðræðið í Múlaþingi?
Það var sorglegt að hlusta á svör núverandi meirihlutaflokka í Sveitarstjórna Múlaþings, við spurningu á framboðsfundi um stuðning við laxeldi í Seyðisfirði.

Með sterkar skoðanir fyrir kosningar: „Laxeldi í bæinn og ekkert múður með það“
Karlarnir á bensínstöðinni vilja fiskeldi og atvinnutækifæri en konurnar á hjúkrunarheimilinu vilja búa í snyrtilegasta og fallegasta bæ á Vestfjörðum. Við kíktum til Bolungarvíkur og tókum púlsinn á bæjarbúum fyrir kosningar.

Þurfa að tæma innanverðan Reyðarfjörð af laxi vegna blóðþorrans
Laxar Fiskeldi í samvinnu við Matvælastofnun hafa virkjað aðgerðaráætlun með tilliti til slátrunar og tæmingu allra kvía í innanverðum Reyðarfirði eftir að blóðþorri (ISA-veira) greindist í einum eldislaxi í kví félagsins.

Falleinkunn fyrirhugaðs fiskeldis
Ég get ekki á mér setið eftir að hafa lesið ýmis skrif um fiskeldi. Nei, fiskeldi er svo sannarlega engin töfralausn fyrir Seyðisfjörð og alls ekki tækifæri, því það stefnir í hættu atvinnuuppbyggingu íbúanna síðustu áratugina.

Um hænsaeldi í loftbelgjum
Í sveitarfélagi nokkru stendur til að setja upp 39 staðbundna loftbelgi af stærstu gerð, alvöru zeppelinför. Tilgangurinn með uppsetningunni er að rækta hænsni á prikum inni í þeim. Lífmassi fiðurfésins er allt að 10.000 tonn og verða tekjur fyrirtækisins sem stendur fyrir framtakinu umtalsverðar enda er fast sótt á leyfisveitingar á landsvísu.

Íbúalýðræði og stórlaxar á Austurlandi
Heil 55% Seyðfirðinga mótmæltu áformum um laxeldi í opnum sjókvíum í Seyðisfirði. Sumir kjörnir fulltrúar Múlaþings tjáðu auðmýkt sína gagnvart þeirri virku lýðræðistilraun með því að véfengja að undirritendur væru allir Seyðfirðingar og svo langt var gengið að vara við því að hlusta á mótmælendur, fyrrnefndan hreinan meirihluta, umfram hina.

Hvar eru þingmenn Norðausturlands?
Fréttir síðustu daga og vikna af laxeldi á Austurlandi eru miður skemmtilegar. Varðandi Stöðvarfjörð eru gróðahyggjumenn að ráðast inn í samfélagið í annað sinn. Kambaröstin var seld ónefndum aðila, sem fór á endanum með allt í burtu. Skipið var síðar selt til Namibíu. Allir vita framhaldið.

Fiskeldi í Seyðisfirði – töfralausn eða tímaskekkja?
Ég held að það sé rétt að byrja á að fara yfir nokkrar staðreyndir um fiskeldi í Seyðisfirði. Þetta eldi sem nú um ræðir er ekki nýtt af nálinni. Ferlið hefur verið langt og strangt

Sauðfjárbóndinn segir snilld að hafa kost á annarri vinnu
Stærstu hús sem sést hafa í Kelduhverfi eru risin á jörðinni Lóni vestast í sveitinni. Þar er fyrirtækið Rifós að byggja upp seiðaeldisstöð sem orðin er stærsti vinnustaður sveitarinnar og veitir meðal annars sauðfjárbændum kærkomna búbót meðfram búskapnum.

Segir það illa nýtta fjárfestingu að hafa Dettifossveg lokaðan
Hinn nýi Dettifossvegur nýtist atvinnulífi á Norðausturlandi ekki sem skyldi þar sem hann er ekki mokaður á veturna. Fulltrúi fiskeldisfyrirtækis í Öxarfirði, sem þarf að koma afurðum í skip á Austfjörðum í hverri viku, segir það illa nýtta fjárfestingu að hafa veginn lokaðan.

Brýn nauðsyn að Kópasker byggist upp sem samfélag en ekki verbúðir
„Já, nú er uppgangur. Fiskeldisstöðvar að rísa. Það er bara frábært,“ segir Björn Guðmundur Björnsson, kaupmaður á Kópaskeri. „Já, þetta er afar jákvætt. Þetta er afar mikilvæg stoð fyrir þetta þorp hérna. Þetta er bara hrein viðbót,“ segir Björn Víkingur Björnsson, framkvæmdastjóri Fjallalambs á Kópaskeri.

Stórslys í laxeldi engum að kenna
Hvað þarf eiginlega að gerast til að MAST telji að ekki sé allt með felldu?

Laxadauða í Dýrafirði megi rekja til ýmissa utanaðkomandi þátta
Dauða meira en 2.400 tonna af laxi laxeldisins Arctic Sea Farm í Dýrafirði má rekja til ýmissa utanaðkomandi þátta, þar á meðal stærðar fiskanna, krónískrar hjarta- og vöðvabólgu og lágs sjávarhita.

Íslenskir firðir eru að verða nýlendur norskra stórfyrirtækja
Við lygnan fjörð í djúpum dal lúrir lítill en litríkur bær austur á fjörðum. Bær þessi sker sig úr að mörgu leyti fyrir sakir fjölbreytts menningarlífs og frjósams jarðvegs til listsköpunar, sem hefur laðað að sér innlenda og erlenda ferðamenn ár hvert.

Kaffikarlar fyrir vestan segja tafir stofnanafólks óeðlilegar
„Það er alveg sama hvað við ætlum að reyna að fá. Við fáum aldrei neitt. Sérðu með laxeldið. Það eru bara einhverjir sportveiðimenn sem ráða því. Við viljum bara fá laxeldið í Djúpið,“ segir Pétur Runólfsson, einn karlanna sem við hittum að skrafi í Olís-búðinni í Bolungarvík.

Þrjúþúsund milljón ástæður
Þrátt fyrir falleinkun Skipulagsstofnunar og einarða andstöðu afgerandi meirihluta heimafólks á Seyðisfirði halda forsvarsmenn Fiskeldis Austfjarða ótrauðir áfram að reyna að þröngva í gegn áformum sínum um tíu þúsund tonna sjókvíaeldi á laxi í Seyðisfirði.

Nýtt ráðuneyti – ný vinnubrögð
Með gagnsæjum vinnubrögðum munum við auka samfélagslega sátt. Matvælaráðuneyti tók til starfa 1. febrúar. Ráðuneytið byggir á grunni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis auk þess sem málefni landgræðslu og skógræktar hafa bæst við. Ráðuneyti matvæla byggir á grunni málaflokka sem lengi hefur verið deilt um í íslensku samfélagi.

Eignarhald í laxeldi á Íslandi
Fiskeldi á Íslandi er ung atvinnugrein í örum vexti en mikill uppgangur hefur verið í fiskeldi á heimsvísu undanfarna áratugi. Gríðarleg framþróun hefur einnig orðið í laxeldi í nágrannalöndum okkar í Norður-Atlantshafi; laxeldi er til að mynda umfangsmeira í hagkerfi Noregs en hefðbundinn sjávarútvegur.

Mjófirðingar kalla eftir laxeldi og jarðgöngum til að treysta byggð
Tvísýnt er um framtíð byggðar í Mjóafirði eftir að skólahald lagðist þar af fyrir fjórum árum. Þegar Mjófirðingar eru spurðir hvað sé til bjargar er svarið skýrt: Jarðgöng og laxeldi.

Segja mikilvægt að huga að vatnsbúskap við byggingu risa fiskeldisstöðvar Samherja
Samherji Fiskeldi ehf. áformar að byggja og reka landeldisstöð með 40 þúsund tonna ársframleiðslugetu í Auðlindagarði Orku við Garð á Reykjanesi undir nafninu Eldisgarður.

Fiskeldisiðnaðurinn hafi vafið sig inn í stjórnmálin með lævíslegum hætti
Hátt í tvö þúsund tonn af laxi hafa drepist í tveimur sjókvíum Arctic Fish í Dýrafirði það sem af er ári. Talsmaður náttúruverndarsamtaka segir reglur um leyfileg afföll á Íslandi galnar og telur hagsmuni stjórnmálamanna þar spila inn í.

15 til 20 prósent eldislax í kvíum Arctic Fish drepist
Fimmtán hundruð til tvö þúsund tonn af eldislaxi hafa drepist í tveimur sjókvíum Arctic Fish í Dýrafirði það sem af er þessu ári. Um er að ræða 15 til 20 prósent af lífmassa kvíanna en alls eru um tíu þúsund tonn af laxi í þeim.

Laxeldisfyrirtæki á netaveiðum
Í gær birtust fréttir af því að enginn lax hefði veiðst í net í Reyðarfirði eftir að gat kom á sjókví þar. Í hvert skipti sem slysaslepping á sér stað er kastað út neti í stóran fjörð, látið liggja í dag eða tvo og þar með er viðbragðsáætlun lokið.

Gat á sjókví í Reyðarfirði
Gat var á nótarpoka einnar sjókvíar Laxa fiskeldis við Vattarnes í Reyðarfirði. Fyrirtækið tilkynnti Matvælastofnun um þetta í dag en gatið uppgötvaðist við reglubundið eftirlit með kvíum á stöðinni.