Börn og uppeldi

Námskeið fyrir foreldra barna með ADHD
Fjölmargir einstaklingar glíma við ofvirkni og athyglisbrest, sem oft er kallað ADHD (e. Attention Deficit Hyperactivity Disorder) í daglegu tali. Einkenni ADHD skjóta almennt upp kollinum snemma á æviskeiði einstaklings, þ.e. kringum 7 ára aldur, og getur haft áhrif á alla fasa lífsins t.d. í námi, í vinnu og í félagslegum samskiptum.

„Amma, maturinn stingur“
Kona sem lenti í því að þriggja ára barnabarn hennar fann teiknibólur í morgunkorninu sínu segir upplifunina hafa verið hræðilega. Verið er að skoða hvernig þetta gat gerst og en það er undir Matvælastofnun komið að innkalla vöruna.

Sláandi munur á færni leikskólabarna
Börn af annarri kynslóð innflytjenda ná mun verri tökum á íslensku en áður var talið. Þetta sýnir ný rannsókn á vegum Háskóla Íslands en vísindamennirnir segja stöðuna grafalvarlega og kalla eftir íslenskukennslu í leikskólum.

„Þau hafa ekki fengið þá aðstoð sem þau þurfa“
Vel rúmlega 1100 börn bíða eftir að komast að hjá fagfólki Skólaþjónustu Reykjavíkurborgar. Borgarfulltrúi segir ástandið stjórnlaust. Það sé hættulegt að láta börn í andlegri vanlíðan bíða eftir sálfræðiþjónustu.

Tónlistarnám í Reykjavík allt að tvöfalt dýrara
Skólagjöld tónlistarskóla í Reykjavík eru þau dýrustu á landinu en borgin, ólíkt flestum öðrum sveitarfélögum, rekur ekki tónlistarskóla á eigin vegum. Veturinn í tónlistarskóla getur kostað rúmlega tvö hundruð þúsund krónur.

„Það má næstum kalla þetta bara dauðagildru“
Gatnamót tengja Vogabyggð við Langholtshverfi líkjast dauðagildru að sögn íbúa. Margir óttist að senda börnin sín yfir Sæbraut þar sem umferðin sé þung og bílstjórar sýni lítið tillit til gangandi vegfarenda. Innviðir og samgöngur í hverfinu séu ekki í takt við þau loforð sem kaupendur hafi fengið á sínum tíma.

Tryggvi Helgason hlaut Míuverðlaunin: „Falinn gimsteinn barnalæknanna“
Míuverðlaunin voru afhent í þriðja sinn við hátíðlega athöfn á Spritz Venue Reykjavík í gær. Tíu heilbrigðisstarfsmenn sem vinna með langveikum börnum voru heiðraðir á viðburðinum.

Ekkert barn þarf að sitja eftir
Á þeim sex árum sem liðið hafa frá því lesfimipróf Menntamálstofnunar fór fyrst í almenna notkun hafa litlar breytingar orðið á niðurstöðum prófsins á landsvísu og hlutfall nemenda sem útskrifast úr grunnskóla undir lágmarksviðmiði í lesfimi enn um 30%.

Krakkarnir segi hinum fullorðnu hvað þeir vilji lesa
Samtal, lýðræði og opin skoðanaskipti verða í aðalhlutverki á Fundi fólksins sem stendur yfir í dag og á morgun. Nú í hádeginu ætla krakkarnir sjálfir að segja hinum fullorðnu hvað þeir vilja lesa og af hverju áhuginn virðist dvína á unglingastigi.

618 börn bíða eftir sálfræðiþjónustu hjá HH
Þessa stundina bíða 618 börn eftir sálfræðiþjónustu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þetta kemur fram í nýrri samantekt sem Umboðsmaður barna hefur ráðist í um bið barna eftir nauðsynlegri þjónustu. Ráðist var í sams konar samantekt í árslok 2021 og síðan voru nýjustu upplýsingar birtar í gær frá sömu aðilum en auk þeirra voru birtar upplýsingar frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Heilsuskóla barnaspítalans og þjónustu talmeinafræðinga.

Eignaðist sitt níunda barn og tvö önnur á leiðinni
Bandaríski þáttastjórnandinn Nick Cannon hefur nú eignast sitt níunda barn. Þetta er hans annað barn á árinu og á hann von á tveimur börnum síðar á árinu.

Léttir að lesa greinargerðina og spenntar að sjá hvernig ráðherra bregst við
Tvær af þeim stúlkum sem dvöldu á vistheimilinu Varpholti/Laugalandi í Eyjafirði eru ánægðar með greinargerð sem komin er út um starfsemi vistheimilisins á árunum 1997 til 2007. Þær segjast spenntar að sjá viðbrögð ráðherra við greinargerðinni.

Andlegt ofbeldi og niðurlæging á Laugalandi
Eftirlitsskylda barnaverndaryfirvalda brást þeim sem dvöldu á meðferðarheimilinu Varpholti/Laugalandi. Yfirvöld hefðu átt að bregðast við ákalli íbúa og skerast í leikinn þegar ljóst var hve mikið álag hvíldi á starfsfólki. Yfirgnæfandi meirihluti fyrrum vistbarna upplifði andlegt ofbeldi við dvölina.

„Stundum eins og maður þurfi að selja kerfinu að barnið sé raunverulega fatlað“
Í Íslandi í dag á dögunum var fjallað um fjölskyldusögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur sem ásamt eiginmanni sínum Kristjáni Arasyni eignaðist þrjú börn og þar á meðal Katrínu Erlu sem fæddist fötluð.

Afar ólík viðbrögð við fyrirspurn um aðfarargerðir á heilbrigðisstofnunum
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, virðist ekki vilja svara því beint hvort hann telji forsvaranlegt að aðfarargerðir til að koma á umgengni, lögheimili og/eða forsjá séu framkvæmdar á heilbrigðisstofnunum.

„Það er hægt að gera allan fjandann með þetta en það er erfitt“
„Myndirnar sýna hraust ungmenni í jákvæðu ljósi og ekki sem fórnarlömb, sem svo oft er gert með sjúklinga,“ segir Ragnar Bjarnason barnalæknir á Landspítalanum. Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson fylgdi með í sumarbúðir ungmenna með sykursýki.

Tryggjum börnum gott atlæti - núna
Nú verður ríkið að stíga inn í og lengja fæðingarorlof barna. Þó löngu fyrr hefði verið enda ótal rannsóknir sem sýna fram á að börnum er best borgið með sínu besta fólki, foreldrum sínum fyrstu tvö árin, þessum mikilvægu árum geðtengslamyndunar.

Hey pabbi, staldraðu við
Til hamingju með að vera pabbi. Hvort sem þú ert nýorðinn pabbi eða hefur verið lengi þá ertu örugglega búinn að átta þig á því að lífið verður aldrei eins og það var áður. „Áður“ er núna eitthvað allt annað líf. Þar var nægur svefn, nægur tími, reglulegar tómstundir og mjög líklega prívat tími á klósettinu.

Diljá Mist bíður og bíður: „Spennandi að sjá hvort metið verði slegið“
„Jæja! 7. sept og strákurinn minn bíður enn eftir frístundaplássi í Reykjavík. Varla er stundatöflupúsl enn að vefjast fyrir yfirstjórninni..? Í fyrra fékk hann pláss 12. október, spennandi að sjá hvort metið verði slegið,“ skrifaði Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins á samfélagsmiðla í gær.

Tæplega sex hundruð börn bíða eftir leikskólaplássi í borginni
Tæplega sex hundruð börn, tólf mánaða og eldri, voru á biðlista eftir leikskólaplássi hjá Reykjavíkurborg í lok ágústmánaðar.

Barnvæn bylting
Þann 16. ágúst síðastliðinn birtist á vef Vísis skoðunargrein hverrar höfundur er Haraldur Freyr Gíslason formaður Félags leikskólakennara. Grein Haraldar er mjög góð en í henni gælir höfundur við þá hugmynd að hugsanlega séu hagsmunir barna ekki endilega í hávegum hafðir þegar tekist er á um leikskólamál. Undirritaður telur að slíkar grunsemdir eigi við rök að styðjast.

Ósýnilegu börnin
Undanfarna mánuði hefur Barna- og fjölskyldustofa staðið fyrir herferð á samfélagsmiðlum sem miðar að því að hvetja fólk að gerast fósturforeldrar. Ástæðan? „Það hefur verið fækkun [fósturforeldra] á milli ára en þörf barnanna [sem þurfa fósturheimili] hefur aukist jafnt og þétt,“ var haft eftir forstjóra Barna- og fjölskyldustofu í fréttum RÚV á dögunum.

„Þetta er stórkostlegur staður en þetta getur orðið besti staður á jörðinni“
Hundrað og þrítugasti rampur verkefnisins Römpum upp Íslands var tekinn í notkun í dag við sumarbúðir fatlaðra barna og ungmenna í Reykjadal. Ramparnir sem áður voru við sumarbúðirnar voru komnir til ára sinna og því ljóst að þörf væri á breytingum. Foreldrar stefna á að bæta aðstöðuna enn frekar þar sem ramparnir eru aðeins fyrsta skrefið.

„Það er búið að rugla í okkur svo lengi“
„Maður veltir oft fyrir sér með þær systur, í hvaða súpu þær eru, í hvaða hringiðju. Ég held að þær séu á þeim stað þar sem pressan er óhugsandi,“ segir Erna Kristín Stefánsdóttir talskona fyrir jákvæða líkamsímynd og guðfræðingur um Kardashian systurnar.

1.200 börn á biðlista og fjöldi staða ómannaður
Alls hafa 3.368 börn fengið pláss á frístundaheimilum í Reykjavík í haust en 1.155 eru enn á biðlista. Enn hefur ekki tekist að manna nema 75 prósent staða á frístundaheimilunum og sértækum félagsmiðstöðvum borgarinnar.

Íþróttafélag og kynlífstækjaverslun hvetja bæjarbúa til að fjölga sér
Íþróttafélagið Þróttur Vogum stendur nú að átaki sem ætlað er að fjölga iðkendum félagsins til framtíðar. Félagið stendur að ástarmánuði í samstarfi við þekkta kynlífstækjaverslun, og hvetur íbúa til að fagna ástinni, með þá von að hún beri ávöxt.

Eva bjargar átta ára snáða úr ógöngum
Frásögn af átta ára dreng sem var kominn illilega af leið í strætisvagni í vikunni hefur vakið nokkra athygli víða á samfélagsmiðlum. Drengurinn er búsettur í Mosfellsbæ en var óvænt kominn í Grafarvog og vissi ekki almennilega hvað var að gerast. Eva Najaaraq Kristinsdóttir, 17 ára nemi við Fjölbrautarskólann í Ármúla, tók málin í sínar hendur.

„Það er kannski einhverjum sem finnst þetta órómantískt“
Þóra Hrund Guðbrandsdóttir eigandi Munum og framkvæmdastjóri ÍMARK telur að það ætti að reka fjölskyldur og heimili meira eins og fyrirtæki. Hún hafði velt þessu mikið fyrir sér og stofnaði í kjölfarið verkefnið Fjölskyldan ehf.

Segja stjórnendur Bakka hafa fælt foreldra frá í mörg ár
Foreldrar barna á leikskólanum Bakka í Grafarvogi segja stjórnendur skólans hafa markvisst í gegnum árin talað foreldra barna af því að skrá börnin sín á leikskólann. Nú séu börnin orðin það fá að hægt sé að réttlæta lokun leikskólans. Reykjavíkurborg segir enga ákvörðun hafa verið tekna varðandi lokun.

Látum draumana rætast, á kostnað hverra? Takmarkanir menntastefnu Reykjavíkurborgar
Sælir Skúli Helgason og Helgi Grímsson.Þið þekkið okkur líklegast ekki en við þekkjum til ykkar og því miður ekki af góðu. Á sínum tíma stóðuð þið að baki lokun á grunnskóla Staðahverfis undir heitinu “Spennandi breytingar á skólastarfi í norðanverðum Grafarvogi” sem okkur foreldrum fannst hreinlega ekkert spennandi og orðavalið sjálft endurspeglaði virðingarleysi í garð barna á svæðinu.