
Heilbrigðismál

Þrettán sóttu um stöðu skrifstofustjóra í heilbrigðisráðuneytinu
Alls bárust þrettán umsóknir um embætti skrifstofustjóra skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu í heilbrigðisráðuneytinu en umsóknarfrestur rann út 1. febrúar síðastliðinn.

„Ég er sterkari en ég hélt að ég væri“
Stella greindist 32 ára með brjóstakrabbamein, þá með tvö ung börn. Nú eru liðnir tæpir átta mánuðir frá greiningunni og hefur hún lokið lyfjameðferð og farið í brjóstnám.

Átta með svartar húfur en 23 appelsínugular
31 kona afhentu aðstoðarmanni heilbrigðisráðherra rúmlega 37 þúsund undirskriftir fyrir utan heilbrigðisráðuneytið í Skógarhlíð í morgun. Um táknræna tölu er að ræða varðandi krabbamein en um er að ræða mótmæli við breytingum vegna brjóstaskimana hér á landi.

Hrós og hvatning til starfsfólks Ljóssins á alþjóðlegum degi krabbameins
Sem forstöðukona í Ljósinu endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðvar fyrir krabbameinsgreinda verð ég á hverjum degi vitni að því hvað framlag starfsfólks miðstöðvarinnar skiptir miklu máli í andlegri og líkamlegri heilsu okkar þjónustuþega.

Fögnum saman framförum í krabbameinslækningum
Í dag 4. febrúar er Alþjóðlegi Krabbameinsdagurinn (e. World Cancer Day). Honum er ætlað að vekja athygli á og fræða um málefni krabbameinsgreindra. Í ár er áherslan á samtakamáttinn í baráttunni við krabbamein.

Yfirljósmóðir gagnrýnir lélegan tækjakost á landsbyggðinni
Yfirljósmóðir á Suðurlandi gagnrýnir lélegan tækjakost á fæðingardeildum á landsbyggðinni, ekki síst þegar um rafræna vistun gagna er að ræða þegar leita þarf sérfræðiálits hjá læknum á Landsspítalanum. Þá hái léleg tæki starfsemi fæðingardeildarinnar á Selfossi á hverjum degi.

Landsbyggðaskattur á kostnað heilsu
Á Ísafirði hefur um langt skeið komið tannréttingasérfræðingur sem hefur sinnt svæðinu og hafa foreldrar þannig getað sparað sér ferðir suður til að leita eftir þessari sérfræðiþjónustu.

Undirrituðu samning við CureVac um bóluefni gegn Covid-19
Íslensk stjórnvöld hafa undirritað samningum um kaup á bóluefni þýska líftæknilyfjaframleiðandans CureVac gegn Covid-19 sem dugir fyrir um 90 þúsund einstaklinga.

Ungt fólk, geðheilbrigði og atvinnulífið
Skýrt ákall um að setja geðheilbrigði í forgang hefur nýverið lyft þessum mikilvægu málum upp í umræðunni. Óhugnanleg tölfræði í málaflokknum liggur fyrir. Samt virðast stjórnvöld láta þessi mál sér í léttu rúmi liggja.

Moderna vill fjölga skömmtum í hverju glasi til að auka framleiðslu
Bandaríska lyfjafyrirtækið Moderna vill fjölga þeim skömmtum sem fást úr hverju hettuglasi af bóluefni fyrirtækisins gegn Covid-19. Með þessu hyggst Moderna auka framleiðslugetu sína sem nálgast nú milljón bóluefnaskammta á dag.

Hagsmunir íslenskra kvenna?
Nú hafa heilbrigðisyfirvöld tekið þá afdrifríku ákvörðun að skimanir fyrir leghálskrabbameini skuli færast til heilsugæslunnar og brjóstaskimanir til sjúkrahúsa. Verið er að breyta um aðferð, þannig að í stað leghálsstroks verður gerð HPV mæling á sýnum og svo frekari rannsóknir ef sú mæling er jákvæð.

„Þetta á ekki að vera svona mikið vandamál“
„Ég get alveg viðurkennt að þau hafa batnað en þau mega alveg vera betri,“ segir Margeir Þór Hauksson um aðgengi fyrir fatlaða hér á landi.

90 ára og eldri boðið í bólusetningu í dag
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins býður í dag öllum íbúum á höfuðborgarsvæðinu sem eru 90 ára og eldri í bólusetningu við Covid-19. Nær boðið til allra sem eru fæddir árið 1931 eða fyrr og fer bólusetningin fram á Suðurlandsbraut 34.

Heilbrigðisþjónusta í heimabyggð
Það er fátt sem er okkur dýrmætara en heilsan um það erum við væntanlega flest sammála. Ákallið fyrir síðustu kosningar var að efla opinbera heilbrigðisþjónustu um allt land og á þessu kjörtímabili hafa verið stigin mikilvæg skref í þá átt undir forystu Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra.

Saumarnir teknir úr Guðmundi Felix
Saumarnir hafa verið fjarlægðir úr Guðmundi Felix Grétarssyni, sem gekk nýverið undir handleggjaágræðslu í Frakklandi. Guðmundur birtir á Facebook-síðu sinni myndir af því hvernig axlirnar líta út eftir að saumarnir voru teknir.

Ljósmyndari hafði betur gegn ríkisskattstjóra í deilu um lokunarstyrk
Rán Péturs Bjargardóttir, ljósmyndari, hafði betur gegn ríkisskattstjóra í deilu um það hvort hún ætti rétt á lokunarstyrk. Yfirskattanefnd úrskurðaði að hún ætti rétt á styrknum þar sem hún sérhæfir sig í myndatökum af nýburum. Taldi nefndin að starfsemin teldist til þeirra sem fela í sér sérstaka smithættu.

„Krabbameinslækningar hér á heimsmælikvarða en huga þarf að endurhæfingu“
Lífslíkur og lífsgæði krabbameinsgreindra hér á landi eru með því fremsta sem þekkist í heiminum, að sögn formanns félags krabbameinslækna. Krabbameinsgreindum muni hins vegar fjölga mikið á næstu áratugum og því mikilvægt að huga að öflugri endurhæfingu.

Downs-félagið kallar eftir aðgerðum heilbrigðisráðherra í ljósi ógnvekjandi tölfræði
Rannsókn bendir til að fullorðnir einstaklingar með Downs-heilkenni séu fimm sinnum líklegri en aðrir til að verða lagðir inn á sjúkrahús ef þeir sýkjast af Covid-19 og tíu sinnum líklegri til að deyja af völdum sjúkdómsins. Stjórn Downs-félagsins hefur ítrekað óskað eftir því að fólk með Downs-heilkenni færist ofar í forgangsröðun við bólusetningu en ekki haft erindi sem erfiði.

Að lifa og deyja með reisn
Í vikunni birtu fimm norræn félög um dánaraðstoð yfirlýsingu þar sem þau hvetja ríkisstjórnir á Norðurlöndum til að grípa til ráðstafana svo íbúar landanna hafi með löglegum hætti val um að fá læknisfræðilega aðstoð við að deyja.

Leghálssýnin greind á Hvidovre sjúkrahúsinu: Biðin styttist í mest tíu til fjórtán daga
Búið er að ganga frá samningi um að tvö þúsund þúsund leghálssýni íslenskra kvenna verði rannsökuð á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn.

Bóluefni AstraZeneca fær grænt ljós hjá Lyfjastofnun Evrópu
Lyfjastofnun Evrópu hefur mælt með útgáfu skilyrts markaðsleyfis fyrir bóluefni bresk-sænska lyfjafyrirtækisins AstraZeneca gegn Covid-19 í Evrópu.

Ýmis ákvæði sóttvarnalaga styrkt og skýrð nánar
Annarri umræðu um breytingar á sóttvarnalögum lauk á Alþingi í gærkvöldi en þær fela í sér styrkingu alls konar heimilda sóttvarnayfirvalda til aðgerða í sóttvarnamálum. Varaformaður velferðarnefndar Alþingis segir brýnt að hefja þegar undirbúning að heildarendurskoðun laganna.

Kvensjúkdómalæknir segir Kristján ætla sér að rústa Krabbameinsfélaginu
Benedikt Óskars Sveinsson, kvensjúkdómalæknir sem starfaði á tuttugu ára tímabili fyrir Krabbameinsfélag Íslands segir Kristján Oddsson ætla sér að rústa Krabbameinsfélaginu í hefndarskyni eftir að hafa verið sagt upp þar fyrir nokkrum árum.

Landspítalinn tekur mál Þórdísar til skoðunar
Landspítalinn mun taka mál Þórdísar Brynjólfsdóttur, sem komst að því í gær að beiðni fyrir brjóstnámsaðgerð hennar hafði ekki verið gefin út, til skoðunar. Málið sé tekið mjög alvarlega. Þetta kemur fram í skriflegu svari Stefán Hrafns Hagalín, samskiptafulltrúa Landspítala, við fyrirspurn fréttastofu.

„Hann er búinn að vera mjög sterkur og kenna okkur svo mikið á lífið“
„Fyrir mína parta þá er þetta yndislegt. Þetta er besta tilfinning í heimi og þú gefur eitthvað af þér og færð það margfalt til baka,“ svarar Aldís Sif Bjarnhéðinsdóttir, móðir, aðspurð af hverju fólk eignast börn.

Krabbameinsfélagið sakar Kristján um lygar: Ráðuneytið vissi í október að tvöþúsund sýni yrðu ógreind í árslok
Heilbrigðisráðuneytið vissi fullvel að um tvöþúsund leghálssýni yrðu óskoðuð í árslok, þegar skimanir færðust frá Krabbameinsfélaginu til heilsugæslunnar. Þetta sýna tölvupóstsamskipti milli formanns KÍ og ráðuneytisins.

Bóluefni Pfizer virðist virka bæði gegn breska og suðurafríska afbrigðinu
Vísbendingar eru um að bóluefni Pfizer og BioNTech við Covid-19 virki vel gegn nýjum afbrigðum kórónuveirunnar sem kennd hafa verið við Bretland og Suður-Afríku.

Hefur beðið eftir brjóstnámi í þrjú ár en beiðnin var aldrei gerð
Kona sem beðið hefur eftir því að komast í brjóstnámsaðgerð og uppbyggingu á brjóstum í rúm þrjú ár komst að því í dag að beiðni um aðgerð hafi aldrei verið gefin út fyrir hana. Hún segir Landspítalann hafa brugðist sér í þessu máli.

Berst við heilaþoku og ofurþreytu eftir alvarlega Covid-sýkingu í vor
Einn þeirra sem er til meðferðar á Reykjalundi vegna eftirkasta Covid var meðvitundarlaus á Landspítalanum í þrjár vikur síðastliðið vor. Hann þjáist af síþreytu og hefur örmagnast við minnsta álag. Heilaþokan leikur hann grátt, kaffibragðið er ekki eins og áður - en hann er byrjaður að borða grænmeti eftir að bragðskynið breyttist.

Fyrsti hópurinn sem var útskrifaður af Reykjalundi á enn eftir að ná sér
Fyrsti hópurinn hefur verið útskrifaður úr sex vikna meðferð á Reykjalundi en á enn eftir að ná sér að fullu.