Heilbrigðismál

„Hún átti einhvern veginn ekki séns“
Brjóstakrabbamein er algengasta krabbameinið hjá íslenskum konum og á hverju ári greinast að meðaltali 235 konur með brjóstakrabbamein.

Barnalæknarnir flytja úr Domus og í Urðarhvarf um áramótin
Öll starfsemi barnalækna sem verið hefur í Domus Medica við Egilsgötu 3 í Reykjavík mun flytja í Urðarhvarf 8 í Kópavogi um áramótin. Unnið er að því þessa dagana að innrétta nýju læknastöðina.

Hjúkrunar- og geðheilbrigðþjónusta fyrir heimilislausa, já takk!
Í tilefni alþjóðlega geðheilbrigðisdagsins og alþjóðadags heimilisleysis 10. október síðastliðinn finn ég mig knúna til að opinberlega heiðra samstarfsfélaga mína og alla starfsmenn sem vinna í framlínunni með heimilislausum.

Íhuga hópmálsókn á hendur ríkinu vegna áhrifa bólusetningar
Hópur kvenna sem hefur upplifað breytingar á tíðahring eftir bólusetningu gegn Covid-19 íhugar nú að hefja hópmálsókn á hendur íslenska ríkinu vegna málsins.

Bjarni afar spenntur fyrir heilbrigðismálunum
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir stjórnarmyndunarviðræður hans, Sigurðar Inga í Framsóknarflokknum og Katrínar Jakobsdóttur í Vinstri grænum, í eðlilegum farvegi. Hann segist spenntur fyrir heilbrigðismálunum sem málaflokki. Þar séu mörg tækifæri.

Hjúkrunarfræðingar lýsa hættuástandi á Bráðamóttökunni
Daglega kemur fyrir að sjúkrabílar bíði með sjúklinga á börum sem komast ekki að vegna plássleysis á Bráðamóttökunni og sjúklingum er komið fyrir í öllum skúmaskotum af sömu ástæðu.

Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn 2021: Geðheilbrigðisþjónusta fyrir alla
Á heimsþingi Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (World Health Assembly) sem haldið var í maí á þessu ári voru þjóðir heimsins sammála um mikilvægi þess að efla geðheilbrigðisþjónustu fyrir alla. Geðheilsa er eitt stærsta heilbrigðismál samtímans enda fátt sem hefur jafn djúpstæð áhrif á líf og lífsgæði.

Ertu til?
Allt of oft þarf því miður alvarleg veikindi til að minna okkur á hvað skiptir máli í lífinu.

Moderna-þegar þurfa ekki að óttast aftur í tímann
Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að bóluefni Moderna gegn Covid-19 verði ekki notað hér á landi í bili. Óttast er að bólusetningin valdi aukinni tíðni hjartabólgu og gollurshússbólgu en ekki er talin ástæða til að skoða tilvik aftur í tímann.

Már tímabundið ráðinn forstöðumaður lyflækninga- og bráðaþjónustu
Már Kristjánsson hefur tekið tímabundið við starfi forstöðumanns lyflækninga- og bráðaþjónustu Landspítala.

53 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær
53 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 25 greindu voru fullbólusettir og 27 voru óbólusettir. Þá voru 29 í sóttkví en 24 utan sóttkvíar.Tveir greindust á landamærunum í fyrstu skimun, báðir með virkt smit.440 eru nú í einangrun og 1.574 í sóttkví.

Verðmætamat kvennastarfa
Rannsóknir sem gerðar hafa verið á launamun kynjanna sýna að laun karla eru almennt hærri en laun kvenna. Þessi kynbundni launamunur er meðal annars tilkominn vegna kynskipts vinnumarkaðar og þeirrar staðreyndar að konur og karlar gegna mismunandi störfum.

„Konur sem eiga ekki í nein hús að venda“
„Ég áttaði mig ekki á því að þetta vandamál væri yfir höfuð á Íslandi, að konur gætu verið í vandræðum vegna fíkniefnaneyslu á meðgöngu,“ segir hjúkrunarfræðingurinn og ljósmóðirin Elísabet Ósk Vigfúsdóttir.

Ekki útilokað að bólusetning hafi raskað tíðahring kvenna í nokkrum tilvikum
Ekki er hægt að útiloka með óhyggjandi hætti tengsl nokkurra tilfella blæðinga í kringum tíðahvörf við bólusetningu gegn Covid-19. Hið sama á við um hluta tilfella sem varða óreglulegar og langvarandi blæðingar.

55 greindust með Covid-19 innanlands
55 greindust með Covid-19 innanlands í gær. 386 eru í einangrun og 1.987 í sóttkví.

Bóluefni gegn malaríu í almenna notkun: Gæti bjargað tugum þúsunda barna á ári hverju
Hægt verður að bjarga lífum tuga þúsunda afrískra barna ár hvert eftir að notkun bóluefnis gegn malaríu var samþykkt af hálfu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) í dag.

Aðeins fjórir þurft að leggjast inn eftir milljón ferðir
Fjórir hafa þurft að leggjast inn á Landspítala eftir slys á rafhlaupahjóli en almennt eru slys á slíkum fararskjótum ekki alvarleg. Yfirlæknir bráðamóttöku bendir á að fá slys verði á rafhlaupahjólum miðað við hversu margar ferðir eru farnar á þeim.

44 greindust með Covid-19 innanlands í gær
44 greindust með Covid-19 innanlands í gær. 363 eru í einangrun og 2.074 í sóttkví.

Páll hættir sem forstjóri Landspítalans
Páll Matthíasson mun hætta sem forstjóri Landspítalans þann 11. október. Hann hyggst snúa aftur til starfa sem geðlæknir og telur tímabært að skipta um leiðtoga eftir átta ár í embætti.

Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvanir sínar um jónarásir
Bandarísku vísindamennirnir David Julius og Ardem Patapoutian hafa hlotið Nóbelsverðlaun í lífefnafræði og læknisfræði fyrir uppgötvanir sínar þegar kemur jónarásum sem opnast eða lokast við hita eða þenslu.

Óþarfi að tilkynna mistök?
Þann 29. september sl. flutti Ríkisútvarpið fréttir af því að sjúklingur á Landakotsspítala hefði fyrir mistök fengið lyf sem ekki voru ætluð þeim sjúklingi. Konan dó nokkrum dögum síðar en ekki mun vera talið orsakasamband milli andláts hennar og lyfjanna.

„Kynlíf er val en ekki kvöð“
„Foreldrar ættu algjörlega að kaupa verjur fyrir unglinginn. Um að gera að eiga alltaf nóg af smokkum heima og minna unglinginn á að ganga með hann á sér,“ segir Sigga Dögg kynfræðingur í viðtali við Makamál.

Minnir á siðareglur lækna í tengslum við umræðu um stöðu bráðamóttökunnar
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, minnti lækna á ákvæði í siðareglum lækna þess eðlis að þeir skuli gæta fyllstu varkárni í umræðu um fagleg mál, í vikulegum forstjórapistli Páls. Hann vill að starfsfólk Landspítalas sameinist í sterku ákalli til stjórnvalda.

„Ég var orðin þannig að ég gat ekki lyft bolla“
„Ég var venjulega mikill orkubolti og svo allt í einu fór að draga mjög af mér. Ég bólgnaði alveg rosalega upp og það fór að flakka bólga á milli liða, á höndunum, í hnjánum, allt í einu út um allt.“

Jöfn tækifæri til náms fyrir öll börn
Mætum börnum þar sem þau eru óháð greiningum. Verum fyrri til og styðjum við þau og styrkjum áður en þau hrasa. Grípum þau sem þess þurfa. Höldum á sama tíma vel utan um peningana og pössum að þeir nýtist börnunum okkar sem allra best. Þetta eru allt áherslur í Eddu, sem er nýtt úthlutunarlíkan fyrir grunnskóla í Reykjavík og var samþykkt í vikunni.

Líf með stóma – ekki öll fötlun er sýnileg
Í dag, 2. Október, er alþjóðlegur stómadagur. Slagorð dagsins er „Ostomates´ rights are human rights – anytime and anywhere“. Áherslan í ár er lögð á tenglsanet og náin sambönd stómaþega.

Segir stjórn og forstjóra Landspítala óhæf til að leysa vanda bráðamóttöku
Formaður félags bráðlækna segir að þrátt fyrir fyrirheit um úrbætur í málefnum bráðamóttöku Landspítalans sjáist enginn árangur. Stjórn Félags bráðalækna segir í opnu bréfi til heilbrigðisráðherra að forstjóri og framkvæmdastjórn Landspítala hafi „með brostnum loforðum sínum rúið sig trausti“.

Íslendingar minnka sýklalyfjanotkun en enn hæstir meðal Norðurlanda
Notkun sýklalyfja í íslenska heilbrigðiskerfinu hefur dregist saman um 30 prósent á fjórum árum ef tekið er mið af heildarsölu sýklalyfja hér á landi. Þrátt fyrir það notkun á slíkum lyfjum enn töluvert meiri hér en annars staðar á Norðurlöndunum.

Innkalla hnetusmjör vegna of mikils magns myglueiturs
Matvælastofnun varar við neyslu hnetusmjörs frá ECO HealthyCo vegna myglueitursins aflatoxíns, sem greindist yfir mörkum. Umræddar vörur eru Peanut Butter Crunchy og Peanut Butter Creamy.

Lést nokkrum dögum eftir hafa fengið röng lyf
Kona sem lést á Landakoti síðastliðinn fimmtudag hafði nýlega fengið ranga lyfjagjöf. Landspítalinn segir um mannleg mistök að ræða og telur ekki að orsakasamhengi sé þarna á milli.