Bretland
27 28 29 30 31 32 33 34 35 … 129 ›
Nýr kafli í samskiptum Bretlands og Úkraínu Vólódímír Selenksí Úkraínuforseti segir nýjan kafla í samskiptum Bretlands og Úkraínu vera að hefjast. Hann tekur vel á móti nýkjörnum kollega sínum. Erlent 25.10.2022 22:14
Sunak segir heilindi og fagmennsku verða hans leiðarljós Nýr forsætisráðherra Bretlands segist þegar ætla að hefjast handa við að leiðrétta þau mistök sem gerð hefðu verið í hagstjórninni undir stjórn fyrrverandi forsætisráðherra. Stjórn hans muni hafa heilindi, fagmennsku og ábyrgð að leiðarljósi. Erlent 25.10.2022 19:30
Aftur ráðherra sex dögum eftir afsögn fyrir siðabrot Rishi Sunak, nýr forsætisráðherra Bretlands, skipaði Suellu Braverman innanríkisráðherra í ríkisstjórn sinni, aðeins sex dögum eftir að hún sagði af sér ráðherraembætti fyrir að brjóta siðareglur ráðherra. Jeremy Hunt heldur áfram sem fjármálaráðherra. Erlent 25.10.2022 17:01
Sunak segist skipaður til að leiðrétta mistök Liz Truss sem var óvinsælasti forsætisráðherra Bretlands frá því mælingar hófust hefur látið af völdum og Rishi Sunak er tekinn við. Hann segist hafa hlotið embættið leiðtoga og forsætisráðherra til að leiðrétta mistök en á grundvelli þess málaefnagrundvölls sem Boris Johnson fékk umboð til að koma í framkvæmd í síðustu kosningum. Erlent 25.10.2022 11:54
Vilja að öryggisráðið ræði staðlausar áhyggjur af„skítugri sprengju“ Rússnesk yfirvöld hafa ekki gefist upp á að halda því fram að Úkraínumenn ætli sér að sprengja geislavirka sprengju, þrátt fyrir verulegar efasemdir vestrænna ríkja. Þeir vilja að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna taki málið fyrir. Erlent 25.10.2022 07:28
Sunak til fundar við Karl í dag og verður formlega forsætisráðherra Íhaldsmaðurinn Rishi Sunak mun ganga á fund Karls III Bretakonungs í dag og mun formlega taka við embætti forsætisráðherra Bretlands af Liz Truss. Erlent 25.10.2022 06:29
Erfiður vetur framundan: „Þetta var náttúrulega algjör sneypuför“ Prófessor í stjórnmálafræði segir mjög erfiðan vetur framundan fyrir nýjan forsætisráðherra Bretlands. Kostnaður fylgi sneypuför Liz Truss og efnahagskrísa á Vesturlöndum muni hafa mikil áhrif á Bretland. Stjórnarandstaðan kallar eftir kosningum og segir Íhaldsmenn ekki geta teflt fram nýjum leiðtoga í hverjum mánuði. Erlent 24.10.2022 21:44
Sunak nýtt andlit á gömul gildi Kjör Rishis Sunak sem leiðtoga breska Íhaldsflokksins markar tímamót á ýmsan hátt. Hann verður yngsti forsætisráðherrann í meira en tvær aldir og sá fyrsti sem er ekki hvítur. Inn við beinið er Sunak þó klassískur íhaldsmaður sem dáir Margaret Thatcher og aðhyllist lága skatta. Erlent 24.10.2022 16:01
Sunak verður næsti forsætisráðherra Breta Rishi Sunak verður nýr leiðtogi Íhaldsmanna í Bretlandi og þar með forsætisráðherra. Hann stóð einn eftir í keppninni um sætið eftir að Penny Mordaunt steig til hliðar rétt fyrir klukkan eitt að íslenskum tíma. Erlent 24.10.2022 13:03
Niðurskurður og skattahækkanir í farvatninu nái Sunak kjöri Prófessor í stjórnmálafræði segir ljóst að nýjum forsætisráðherra bíði það erfiða verkefni að skera niður og hækka skatta til að ná ríkisfjármálunum í eðillegt horf. Mestar líkur eru nú taldar á því að Rishi Sunak verði næsti leiðtogi Íhaldsmanna í Bretlandi og þar með forsætisráðherra, jafnvel strax í dag. Erlent 24.10.2022 12:23
Karl selur fjórtán af hestum drottningarinnar Karl III Bretakonungur hefur ákveðið að selja nokkra þeirra hesta sem hann erfði frá móður sinni, Elísabetu II drottningar, sem lést í byrjun síðasta mánaðar. Erlent 24.10.2022 07:37
Sunak gæti hreppt hnossið strax í dag Mestar líkur eru nú taldar á því að Rishi Sunak verði næsti leiðtogi Íhaldsmanna í Bretlandi og þar með forsætisráðherra, jafnvel strax í dag. Erlent 24.10.2022 06:53
Boris Johnson gefur ekki kost á sér Boris Johnson hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér fyrir leiðtogakjör breska Íhaldsflokksins. Allar líkur eru nú á því að Rishi Sunak verði næsti forsætisráðherra Bretlands. Erlent 23.10.2022 20:15
Sunak staðfestir framboð Rishi Sunak, fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands, hefur formlega tilkynnt að hann muni bjóða sig fram í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins. Hann sækist þar með eftir því að verða næsti forsætisráðherra Bretlands. Erlent 23.10.2022 10:21
Leynilegur fundur Johnson og Sunak Frestur til að gefa kost á sér sem leiðtogi breska Íhaldsflokksins nálgast óðfluga. Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra, og Rishi Sunak, sem nýtur mesta fylgis þingliðs Íhaldsflokksins, eru sagðir leggja á ráðin um leiðtogakjör flokksins. Erlent 23.10.2022 00:02
Sunak talinn með forskotið en Johnson nartar Talið er líklegt að valið um næsta forsætisráðherra Bretlands muni standa á milli Boris Johnson og Rishi Sunak. Hvorugur þeirra hefur formlega lýst yfir framboði. Erlent 22.10.2022 14:44
Johnson floginn heim úr fríinu í tæka tíð fyrir leiðtogakjör Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands flaug heim til Bretlands frá Dóminíska lýðveldinu í gær. Talið er víst að hann muni bjóða sig fram í væntanlegu leiðtogakjöri Íhaldsflokksins. Erlent 22.10.2022 07:35
Allar líkur á að Boris Johnson snúi aftur til leiks Boris Johnson, sem var forsætisráðherra Bretlands fyrir aðeins 46 dögum, er talinn líklegur til þess að gefa kost á sér í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins sem fer fram í næstu viku. Þetta er mat Baldurs Þórhallsonar, prófessors í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Erlent 21.10.2022 21:53
Starmer segir þjóðina verða að losna við snúngshurð íhaldsins Leiðtogi breska Verkamannaflokksins krefst þingkosninga án tafar. Breska þjóðin þurfi að losna undan glundroða snúngshurðar Íhaldsmanna að bústað forsætisráðherra. Penny Mordaunt hefur boðið sig fram í leiðtogaembættið og ekki er útilokað að Boris Johnson, sem sætir rannsókn breska þingsins fyrir lygar, bjóði sig aftur fram. Fréttir 21.10.2022 19:21
Mordaunt býður sig fram og Wallace „hallast að Johnson“ Penny Mordaunt, þingmaður breska Íhaldsflokksins, hefur tilkynnt að hún bjóði sig fram til að verða næsti leiðtogi Íhaldsmanna. Á sama tíma hefur varnarmálaráðherrann Ben Wallace, þungavigtarmaður í flokknum, tilkynnt að hann ætli ekki fram og „hallist að“ því að styðja Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra, til að taka aftur við keflinu. Erlent 21.10.2022 14:50
Kálið, Stóri-Sam og allt það sem entist lengur en Truss Þegar forsætisráðherratíð breska forsætisráðherrans Liz Truss líður undir lok í næstu viku verður hún sá breski forsætisráðherra sem styst hefur setið í embætti. Erlendir fjölmiðlar eru víða uppfullir af samanburði á persónum og hlutum sem entust lengur en forsætisráðherratíð Truss. Erlent 21.10.2022 13:34
Sundraður Íhaldsflokkur leitar að fimmta leiðtoganum á sex árum Stjórnarandstaðan í Bretlandi segir Íhaldsflokkinn rúinn öllu trausti og krefst tafarlausra kosninga eftir að fjórði leiðtogi Íhaldsflokksins og forsætisráðherra á aðeins sex árum sagði af sér í gær. Ekki er útilokað að Boris Johnson bjóði sig aftur fram til forystu. Erlent 21.10.2022 12:10
Diplómatafrú viðurkenndi að hafa ekið á breskan pilt Eiginkona bandarísks diplómata viðurkenndi að hún hefði orðið táningspilt að bana með því að aka bíl sínum ógætilega fyrir breskum dómstól í gær. Málið olli milliríkjadeilu á milli bandarískra og breskra stjórnvalda. Erlent 21.10.2022 08:42
Sunak, Johnson og Mordaunt virðast njóta mests stuðnings Rishi Sunak, Boris Johnson og Penny Mordaunt eru þeir kandídatar sem flestir þingmenn Íhaldsflokksins hafa lýst yfir stuðningi við til að verða næsti leiðtogi flokksins og þar með næsti forsætisráðherra. Erlent 21.10.2022 07:33
Íhaldsflokkurinn tekur viku í að finna nýjan leiðtoga Valdabarátta er hafin innan breska Íhaldsflokksins eftir að leiðtogi flokksins sagði af sér í morgun eftir aðeins fjörutíu og fimm daga í embætti forsætisráðherra. Flokkurinn ætlar að finna nýjan leiðtoga innan viku en leiðtogi Verkamannaflokksins krefst tafarlausra kosninga. Erlent 20.10.2022 19:20
Truss segir af sér í skugga glundroða innan Íhaldsflokksins Liz Truss, forsætisráðherra Bretlands, sagði af sér nú fyrir stundu. Glundroði ríkir innan flokksins eftir brotthvarf tveggja ráðherra úr ríkisstjórn Truss á skömmum tíma og frásagnir af líkamlegum átökum í þinginu. Erlent 20.10.2022 12:08
Kjarnorkuárás Rússa yrði svarað af „bandalagi viljugra“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir aðildarríki Nató munu bregðast við ef Rússar beita Svíþjóð eða Finnland einhvers konar þrýstingi eða ógnum áður en ríkin verða fullgild aðildarríki að bandalaginu. Erlent 20.10.2022 08:57
Ríkisstjórn Truss riðar til falls Algjör glundroði ríkir á stjórnarheimilinu í Bretlandi og er ríkisstjórn Liz Truss sögð hanga á bláþræði. Innanríkisráðherrann Suella Braverman sagði af sér í gær og var harðlega gagnrýnin á forsætisráðherrann í afsagnarbréfi sínu. Erlent 20.10.2022 07:26
Innanríkisráðherra Bretlands segir af sér og skýtur á Truss Suella Braverman, innanríkisráðherra Bretlands, mun láta af embætti eftir að hafa sent tölvupóst frá persónulegu netfangi sínu. Braverman hafði áður gagnrýnt u-beygju Truss og ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum harðlega en ríkisstjórnin er sögð hanga á bláðþræði. Talið er að fyrrverandi samgönguráðherra muni taka við af Braverman. Erlent 19.10.2022 16:28
Baðst afsökunar á mistökum en sagðist ekki á leiðinni út Liz Truss, forsætisráðherra Bretlands, reynir nú eftir fremsta megni að sannfæra meðlimi Íhaldsflokkinn og aðra um hæfni ríkisstjórnar hennar eftir umdeildar ákvarðanir síðustu vikur. Ný stefna í efnahagsmálum gæti gefið Truss meiri tíma en ýmsir hafa kallað eftir afsögn hennar. Erlent 18.10.2022 13:53