
Belgía

Sendiherrann kallaður heim án tafar eftir að frúin löðrungar í annað sinn
Sendiherra Belgíu í Seúl hefur verið kallaður heim „án tafar“ eftir að eiginkona hans réðist að almennum borgara í annað sinn á fjórum mánuðum. Peter Lescouhier átti að snúa til Belgíu seinna í mánuðinum vegna fyrra atviksins en hefur nú verið skipað að fljúga heim hið fyrsta.

Líkfundur í Belgíu: Talið vera af hættulega hermanninum
Lík fannst í Belgíu í dag. Það er talið vera af hermanninum Jurgen Conings sem hvarf í Belgíu fyrir mánuði síðan, eftir að hafa stolið talsvert mikið af vopnum. Talið var að Conings hafi farið inn í skóg í felur.

Helmingur belgíska EM-hópsins vildi ekki láta bólusetja sig
Helmingur belgíska hópsins sem keppir á Evrópumótinu hafnaði því að láta bólusetja sig fyrir kórónuveirunni af ótta við aukaverkanir.

Fimm táningar í Belgíu handteknir fyrir hópnauðgun
Fimm táningar hafa verið handteknir í Belgíu í tengslum við meinta hópnauðgun 14 ára stúlku sem lést minna en viku eftir árásina. Samkvæmt belgískum miðlum var myndum af árásinni deilt á netinu og stúlkan framdi sjálfsvíg fjórum dögum seinna.

Sendiherra kallaður heim eftir að konan hans sló afgreiðslukonu
Belgíska utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að kalla sendiherra sinn í Suður-Kóreu heim eftir að eiginkona hans réðst á afgreiðslukonu í höfuðborginni Seúl í síðasta mánuði. Eiginkonan bar upphaflega fyrir sig friðhelgi diplómata til að komast hjá ákæru en ráðuneytið féll frá því.

Vita ekki hvar hermaðurinn hættulegi er
Yfirvöld í Belgíu leita enn að hermanni sem stal miklu af vopnum úr herstöð og hvarf fyrir meira en viku síðan. Hermaðurinn hafði einnig hótað ráðamönnum og veirufræðingi sem hefur leitt viðbrögð yfirvalda í Belgíu við faraldri nýju kórónuveirunnar.

Leita enn að hættulegum hermanni í Belgíu
Lögregluþjónar og hermenn í Belgíu leita enn að hermanninum Jurgen Conings sem hvarf á mánudaginn, eftir að hafa stolið miklu af vopnum á herstöð. Hvarf Conings og vopnastuldur hans uppgötvaðist þó ekki fyrr en á þriðjudaginn en hermaðurinn er sagður vera í felum í stórum skógi í Hoge Kempen þjóðgarðinum.

Leita hermanns sem stal vopnum og hefur hótað forsvarsmanni sóttvarna í Belgíu
Lögreglan í Belgíu leitar að þungvopnuðum hermanni sem sagður er hafa stolið vopnum og hótað fólki. Hermaðurinn er skotþjálfi og er hann sagður hafa tekið vopn frá herstöð og horfið í gær. Áður hafði hann hótað Marc Van Ranst, veirufræðingi sem hefur leitt viðbrögð yfirvalda í Belgíu við faraldri nýju kórónuveirunnar.

Sendiherrafrú ber fyrir sig friðhelgi vegna löðrungs
Eiginkona belgíska sendiherrans í Suður-Kóreu ber fyrir sig friðhelgi erindreka erlendra ríkja til að komast undan ákæru eftir að hún sást greiða afgreiðslukonu í verslun kinnhest í Seúl. Starfsfólk verslunarinnar hafði grunað hana um hnupl.

Afléttingar víða í Evrópu
Slakað var á kórónuveirutakmörkunum víðs vegar um Evrópu bæði í dag og um helgina. Smitum hefur fækkað mikið í fjölda ríkja og sífellt fleiri eru bólusett.

Belgískur bóndi færði landamærin að Frakklandi
Landamæri Belgíu og Frakklands sem voru mörkuð á fyrri hluta 19. aldar voru færð um rúmlega tvo metra nýlega. Belgískur bóndi sem var þreyttur á að steinn sem varðaði landamærin flæktist fyrir dráttarvélinni hans færði hann og stækkaði þannig heimaland sitt örlítið á kostnað Frakklands.

Handteknir grunaðir um aðild að mannráni á átta ára stúlku
Fjórir menn eru nú í haldi frönsku lögreglunnar vegna gruns um aðild að þaulskipulögðu mannráni á átta ára stúlku. Stúlkan heitir Mia og er talin vera með móður sinni, sem lögreglu grunar að hafi fyrirskipað mannránið.

Bóluefnið frá AstraZeneca aðeins til yngri en 55 ára í Belgíu
Eftirlitsaðilar í Belgíu hafa mælt með því að Covid-19 bóluefnið frá AstraZeneca verði aðeins gefið einstaklingum undir 55 ára, að svo stöddu. Heilbrigðisráðherrann belgíski segir að verið sé að yfirfara bólusetningaráætlun landsins, þar sem stjórnvöld höfðu reitt sig á umrætt bóluefni.

Fleiri hundruð mótmælendur handteknir víða um Evrópu
Nokkur hundruð mótmælendur hafa verið handteknir í Evrópsku borgunum Brussel, Búdapest og Vín þar sem hörðum aðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins hefur verið mótmælt. Í austurrísku höfuðborginni Vín hefur hópur fólks úr röðum ný-nasista til að mynda komið saman til mótmæla.

Níu milljónir skammta til viðbótar frá AstraZeneca
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, greinir frá því á Twitter í kvöld að lyfjafyrirtækið AstraZeneca muni sjá Evrópusambandinu fyrir níu milljónum skammta af bóluefni gegn covid-19 á þessum ársfjórðungi, til viðbótar við þær fjörutíu milljónir skammta sem gert var ráð fyrir í síðustu viku. Þá mun dreifing bóluefnisins frá fyrirtækinu hefjast viku fyrr en áætlað var. Áður höfðu Frakkar og Þjóðverjar hótað að höfða mál gegn AstraZeneca vegna skorts á bóluefni gegn covid-19.

Bóluefni Janssen með 66 prósent virkni
Niðurstöður þriðja fasa prófana á bóluefni belgíska lyfjafyrirtækisins Janssen sýna að bóluefnið hefur 66% virkni gegn kórónuveirunni en allt að 72% virkni í Bandaríkjunum.

Mótmæla vegna dauða manns sem lést í haldi lögreglu
Hundruð mótmæltu í Brussel í gær vegna dauða 23 ára gamals manns, sem lést í haldi lögreglu um síðustu helgi. Mótmælendur kveiktu meðal annars í lögreglustöð og réðust að bíl Filippusar konungs.

Evrópskir ráðamenn neituðu að hitta Pompeo
Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hætti í skyndi við síðustu embættisferð sína í dag, eftir að ráðamenn og embættismenn í Evrópusambandsinu neituðu að hitta hann. Ástæðan er sögð vera árásin á þinghús Bandaríkjanna í síðustu viku og aðkoma Donalds Trump, forseta, að henni.

Felldu tvo íslenska hesta eftir slys á flugvelli í Belgíu
Fella þurfti tvo íslenska hesta eftir að gámur sem þeir voru fluttir í féll af palli á flugvelli í Belgíu rétt fyrir jólin. Icelandair Cargo hefur stöðvað frekari flutning á hrossum til stærstu dreifimiðstöðvar fyrirtækisins í Evrópu um óákveðinn tíma.

Banna flug frá Bretlandi vegna nýja afbrigðisins
Nokkur Evrópulönd hafa gripið til þeirra ráða að banna samgöngur frá Bretlandi og hefur flugi til að mynda verið aflýst. Er þetta gert vegna þess nýja afbrigðis kórónuveirunnar sem hefur fundist í Bretlandi og er talið vera sjötíu prósent meira smitandi en önnur afbrigði.

Liðsfélagi Ara rekinn eftir að hafa haldið partí í útgöngubanni
Ari Freyr Skúlason leikur með Oostende í belgísku. Nú hefur liðið rekið markvörðinn Fabrice Ondoa eftir partíhöld um síðustu helgi.

Jólasveinn smitaði mikinn fjölda á belgísku hjúkrunarheimili
61 íbúar og fjórtán starfsmenn á hjúkrunarheimili í bænum Mol fyrir utan Antwerpen í Belgíu hafa nú greinst með kórónuveiruna. Grunur er um að rekja megi smitin til manns sem ráðinn var til að mæta í jólasveinabúningi til að koma íbúum í jólaskap.

Fundinum í Brussel lokið án niðurstöðu
Fundi Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands og Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í Brussel er lauk í kvöld án niðurstöðu. Ennþá ber mikið í milli í samningaviðræðum Bretlands og Evrópusambandsins um viðskiptasamning sem markmiðið var að ná fyrir áramót. Viðræðurnar virðast vera í algjörum rembihnút.

Þingmaður gripinn í orgíu sem haldin var á svig við sóttvarnalög
József Szájer, Evrópuþingmaður fyrir ungverska stjórnarflokkinn Fidesz, hefur sagt af sér þingmennsku eftir að hann sótti samkomu í belgísku höfuðborginni Brussel á föstudag.

Vísuðu dönskum öfgamönnum sem ætluðu að brenna Kóraninn úr landi
Belgísk yfirvöld vísuðu fimm dönskum hægriöfgamönnum úr landi í dag. Þeir eru taldir hafa ætlað að brenna Kóran, helgirit múslima, í hverfi höfuðborgarinnar Brussel þar sem meirihluti íbúa er múslimar. Mennirnir eru sagðir hafa valdið alvarlegri ógn við allsherjarreglu.

Hertar aðgerðir í Belgíu frá og með morgundeginum
Stjórnvöld í Belgíu hafa ákveðið að grípa til enn harðari samfélagslegra takmarkana en undanfarið hafa verið í gildi til þess að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar.

Heilbrigðisstarfsfólk beðið um að vinna þrátt fyrir að vera með veiruna
Heilbrigðisstarfsfólk í borginni Liège í Belgíu hefur verið beðið um að halda áfram störfum þrátt fyrir að það kunni að greinast með Covid-19.

Dauðsföll í Evrópu komin yfir 250.000
Fjöldi látinna í kórónuveirufaraldrinum fór yfir 250.000 manns í Evrópu í dag og varð álfan þar með annar heimshlutinn til að fara yfir þann þröskuld. Metfjöldi nýrra smita hefur greinst í Evrópu undanfarnar tvær vikur.

Utanríkisráðherra Belgíu á gjörgæslu vegna Covid-19
Sophie Wilmes, utanríkisráðherra Belgíu og fyrrverandi forsætisráðherra, liggur nú á gjörgæslu á sjúkrahúsi í úthverfi Brussel, um viku eftir að hún greindist með kórónuveirusmit.

Belgar í basli vegna Covid
Yfirvöld í Belgíu hafa lýst yfir áhyggjum af stöðunni þar í landi vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar. Ástandið núna er sagt verra en það var í mars, þegar fyrsta bylgja veirunnar fór þar yfir.