

Sendinefnd frá Ísrael mun taka þátt í vopnahlésviðræðum í París um helgina ásamt fulltrúum Bandaríkjanna, Katar og Egyptalands. Viðræðuefni verði ásamt vopnahlé frelsun ísraelskra gísla á Gasasvæðinu.
12 einstaklingum sem fengið hafa dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar var komið yfir landamæri Egyptalands af hópi sjálfboðaliða í dag. Sema Erla Serdaroglu greinir frá því að á meðal þeirra séu særð og veik börn og alvarlega veikum eldri manni.
Vinna þriggja manna sendinefndar utanríkisráðuneytisins við að koma dvalarleyfishöfum með fjölskyldusameiningu frá Gaza tekur tíma og ómögulegt að segja hvenær henni lýkur. Ástæðan er sú að enginn íslenskur ríkisborgari er á lista íslenskra stjórnvalda.
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) hefur tilkynnt að hún hyggist gera hlé á afhendingu mataraðstoðar í norðurhluta Gasa vegna niðurbrots á lögum og reglu.
Einn nokkurra sjálfboðaliða, sem hefur dvalið í Kaíró undanfarið og aðstoðað Palestínumenn út af Gasa, segir hræðilegt að þurfa að velja hverjum skuli bjarga fyrst. hHún segist reið íslenskum stjórnvöldum að hafa ekki ráðist í verkið fyrr og þar með lagt það í hendur sjálfboðaliða.
„Ég hélt í raun að þetta væri ógjörningur,“ segir tónlistarmaðurinn Alexander Jarl um áform sín um að koma fjölskyldumeðlimum, sem staddir eru á stríðshrjáðu Gasa-svæðinu, til bjargar. Styrktartónleikar fyrir verkefninu fara fram næsta laugardag í Iðnó.
Fulltrúar Bandaríkjanna í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna hafa samið tillögu að ályktun öryggisráðsins þar sem stuðningi við tímabundið vopnahlé fyrir botni Miðjarðarhafs er lýst yfir.
Það eru ekki til nógu sterk orð til að lýsa hörmungunum á Gaza á þann hátt að við getum skilið þjáninguna og sorgina sem fylgir þessum ómannúðlega hernaði í Landinu helga. Staðan er grafalvarleg og ákall um vopnahlé þarf að ná eyrum þeirra sem geta stöðvað ófriðinn, morðin og gjöreyðileggingu samfélagsins sem áður lifði í Gaza.
Diplómatar í Egyptalandi á vegum utanríkisráðuneytisins höfðu um helgina samband við hóp sjálfboðaliða, sem hafa aðstoðað fólk út af Gasa. Sjálfboðaliðar eru á leið út til Kaíró til að halda verkefninu áfram.
Forstjóri Rapyd á Íslandi segir fyrirtækið víst vera íslenskt þó móðurfélag þess sé ísraelskt. Starfsfólk fyrirtækisins sé jafn vanmáttugt um að stöðva átökin á Gasa og aðrir hér á landi. Krafa um sniðgöngu á fyrirtækinu í nafni mannréttinda sé því ómakleg.
Benny Gantz, sem er fyrrverandi yfirmaður hjá hernum og situr nú í herráði Ísrael, segir Ísraelsmenn munu láta til skarar skríða í Rafah fyrir Ramadan ef Hamas láta ekki þá gísla sem enn eru í haldi samtakanna lausa.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir ekki koma til greina að hætta við innrás í borgina Rafah í suðurhluta Gasastrandarinnar. Rúm milljón Palestínumanna hefur flúið þangað undan átökum Ísraela og Hamas-liða sem hafa valdið gífurlegum skaða á svæðinu lokaða.
Þótt siðferðisleg hnignun vestrænna ríkisstjórna sé ekki ný af nálinni hafa síðustu mánuðir á Gaza dregið hana óþægilega fram í dagsljósið. Varla hefur sú árás á óbreytta borgara verið gerð, sem hefur verið jafn mikið sjónvarpað og nákvæmlega skrásett af þeim sem fyrir verða þrátt fyrir tilraunir stríðsvélar Ísraels til að þagga málið niður.
Palestínsk móðir og dætur hennar þrjár, sem dvalið hafa á Gasaströndinni, eru komnar til landsins. Mæðgurnar eru í hópi tólf Palestínumanna sem hópur íslenskra sjálfboðaliða aðstoðar nú við að komast yfir Rafah-landamærin.
Heitar umræður sköpuðust á sveitarstjórnarfundi Múlaþings í vikunni um flöggun fána palestínsku heimastjórnarinnar á fánastöng við félagsheimilið Herðubeið á Seyðisfirði og nýjar leiðbeiningar um flöggun á fánastöngum sveitarfélagsins.
Ísraelsher fullyrðir að hermenn hafi handsamað tugi grunaðra hryðjuverkamanna þegar árás var gerð á stærsta sjúkrahús Gasa svæðisins, Nasser spítalann.
Sérsveit Ísraelshers réðst inn í Nasser sjúkrahúsið í borginni Khan Younis á Gasa síðdegis. Sjúkrahúsið er eitt fárra sem enn er starfhæft og heldur fjöldi flóttafólks til á því. Hópur Íslendinga mun aðstoða tólf manns yfir landamærin á næstu dögum.
Hópur íslenskra sjálfboðaliða í Kaíró í Egyptalandi mun á næstu dögum aðstoða tólf Palestínumenn, sem fengið hafa dvalarleyfi hér á landi, yfir landamærin frá Gasa. Þeir gagnrýna að íslensk stjórnvöld hafi hundsað allar þeirra tilraunir til samskipta.
Enn eykst þrýstingur á Ísraelsmenn um að falla frá áformum sínum um að ráðast inn í Rafah í suðurhluta Gasa en Martin Griffiths, yfirmaður mannúðarmála og neyðaraðstoðar hjá Sameinuðu þjóðunum, segir afleiðingarnar yrðu hamfarir.
Leiðtogar á Vesturlöndum virðast vera að missa þolinmæðina gagnvart Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, og aðgerðum Ísraelshers á Gasa.
Palestínskir flóttamenn og aðrir íbúar í Rafah á suðurhluta Gasa eru gríðarlega óttaslegnir í aðdraganda innrásar Ísraelshers. Harðar loftárásir hersins hafa dunið á borginni síðustu daga.
Þrír fulltrúar utanríkisráðuneytisins eru staddir í Kaíró höfuðborg Egyptalands til að kanna aðstæður og eiga fundi með fulltrúum egypskra stjórnvalda. Það segir í svari utanríkisráðuneytisins um hlutverk fulltrúana í Egyptalandi.
Fjölgað hefur í hópi íslenskra sjálfboðaliða sem vinna að því að koma Palestínumönnum sem fengið hafa dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli fjölskyldusameiningar út af Gasa. Hópurinn er allur staddur í Kaíró í Egyptalandi og vinna þau þaðan.
Ísraelar segjast hafa bjargað tveimur gíslum sem verið hafa í haldi Hamas samtakanna frá því í október.
Átta milljónir króna söfnuðust til styrktar neyðaraðstoðar á Gasa á listaverkauppboði sem nýlega fór fram á samfélagsmiðlinum Instagram. Styrkurinn var afhentur Félaginu Ísland-Palestína í dag.
María Lilja Þrastardóttir ein úr þriggja kvenna hópi aðgerðarsinna sem fóru til Egyptalands og tókst að koma tveimur fjölskyldum frá Gasa er stödd í Rómaborg á leið sinni heim til Íslands. Hún segir ferli þriðju fjölskyldunnar langt á leið komið og gefur lítið fyrir hangs stjórnvalda.
Fulltrúar utanríkisráðuneytisins fóru til Kaíró í gær til að funda með fulltrúum egypskra stjórnvalda og annarra ríkja. Aðeins ellefu þeirra tæplega 130 Palestínumanna sem fengið hafa dvalarleyfi hér á landi eru komin til landsins.
Palestínska fjölskyldan sem handtekin var af sérsveitarmönnum í gærmorgun hefur verið send úr landi og lagði af stað til Grikklands.
Philippe Lazzarini yfirmaður Palestínuflóttamannaaðstoðarinnar segist hafa rekið starfsmenn sem sakaðir voru um hollustu við Hamas án nokkurra sönnunargagna og án þess að hafa rannsakað ásakanirnar á hendur þeim.
Talsmenn Ísraelshers segja að mörg hundruð metra langt ganganet Hamas hafi fundist á Gasa. Göng hryðjuverkasamtakanna liggi meðal annars undir höfuðstöðvum Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna, UNRWA.