Kjaramál

Veikir ekki reknir á sjó
"Við höfum aldrei rekið mann út á sjó sem er með vottorð upp á veikindi og held við förum ekki að taka upp á því núna," segir Andrés Guðmundsson, útgerðarstjóri hjá Þorbirni-Fiskanesi.

Misskildi stjórnin kjarasamninga?
Fráfarandi formaður Starfsgreinasambandsins segir að ríkisstjórnin hafi annaðhvort misskilið kjarasamninga eða hún kæri sig kollótta um frið á vinnumarkaði. Hann óttast að núgildandi kjarasamningum verði sagt upp í lok næsta árs eða í byrjun árs 2006.
Veikir skulu á sjóinn
Í nýjum ráðningarsamningi sem útgerðarfélagið Þorbjörn-Fiskanes á Suðurnesjum hefur boðið sjómönnum er ákvæði um að "ekkert mæli á móti því" að veikur maður haldi út á sjó með skipi sínu ef ljóst má vera að hann verði orðinn vinnufær innan örfárra daga.

Sólbakur landaði í morgun
Engar mótmælaaðgerðir voru á bryggjunni á Akureyri í morgun þegar löndun hófst úr togaranum Sólbaki en hann kom til hafnar klukkan átta. Forysta sjómannasamtakanna segist hlíta lögbanni á mótmælaaðgerðir sem sýslumaðurinn á Akureyri féllst á í gær, að beiðni útgerðarfélags Sólbaks.
Vökufólk afgreiði ekki Sólbak
Stjórn Verkalýðsfélagsins Vöku beinir þeim tilmælum til félagsmanna sinna að afgreiða ekki Sólbak EA-7 komi skipið til hafnar á Siglufirði.

Verkalýðsfélög deila um gjöld
Óánægja er meðal félagsmanna í Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis sem vinna á Keflavíkurflugvelli, því vinnuveitandi þeirra greiðir félagsgjöld þeirra til Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur.

Skattbyrði lífeyrisþega eykst
Tekjutengingar og aukin skattbyrði hafa skert lífeyri þeirra sem treysta á almannatryggingakerfið. Formaður Landssambands eldri borgara segir stjórnvöld hlunnfara þá lífeyrisþega sem minnst hafa á milli handanna en forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur að þar með sé aðeins hálf sagan sögð.

Fordæmir vinnubrögð Brims
"Reynt er að brjóta samstöðu sjómanna á bak aftur með stuðningi yfirvalda og lögreglunni sigað á verkfallsmenn, sem lýsir best útgerðarauðvaldi sem svífst einskis í samskiptum við launafólk," segir í yfirlýsingu Eflingar-stéttarfélags um vinnubrögð Útgerðarfélagsins Brims hf. í samskiptum við sjómenn.

Áhafnir styðja Sjómannafélagið
Áhafnir fiskiskipa á hafi úti hafa tekið upp á því að senda forystu Sjómannafélagsins stuðningsyfirlýsingar vegna Sólbaksdeilunnar. Þannig hvetur áhöfnin á Kleifabergi ÓF forystusveit sína til frekari aðgerða og að beita öllum tiltækum ráðum.
Bensínverð að sliga heimilin
Bensínverðið er að sliga heimilin, segir Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB. Samkvæmt útreikningum félagsins hefur verðið hækkað um meir en 16 prósent á tæplega tveimur árum. FÍB vill að stjórnvöld komi til móts við heimilin í landinu. </font /></b />

Samningar verða að nást
Stjórnarformaður LÍÚ segist ekki telja að útgerðir hlaupi til og stofni sértök eignarhaldsfélög um skip með sérsamningum við áhöfn. Hann segir nauðsynlegt að útgerð og sjómenn nái saman í samningum.

Handteknir á kajanum
Lögregluyfirvöld á Akureyri gerðu kleifa uppskipun úr Sólbaki EA 7 í gær með því að handtaka forsvarsmenn samtaka sjómanna. Forsvarsmenn sjómanna segja samning útgerðar og áhafnar Sólbaks ólöglegan.
ASÍ styður flugfreyjur og sjómenn
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsti í gær yfir fullum stuðningi við Sjómannasambandið í aðgerðum sínum gegn Brimi og við flugfreyjur og flugþjóna í kjarabaráttu þeirra við Iceland Express. Í ályktun frá miðstjórninni segir að fyrirtækin séu að gera tilraun til að brjóta lögvarin lágmarkskjör og réttindi kjarasamninga.

Fyrirtæki ekki rekin með ógnunum
Tekist er á um félagafrelsi og lágmarkslaun samkvæmt kjarasamningum í deilu samtaka sjómanna og útgerðarfélagsins Brims á Akureyri. Samtök sjómanna boða áframhaldandi aðgerðir, en útgerðin segist hafa hreinan skjöld og telur aðgerðirnar ólöglegar.

Misræmi í rökstuðningi handtöku
Misræmis gætti í frásögn lögregluyfirvalda og hafnarstjórnar um hvers vegna komið hefði til handtöku forsvarsmanna samtaka sjómanna við Akureyrarhöfn í gær.

Áratugastarfi rústað
Fyrir handtöku á bryggju Brims í gær sögðu forsvarsmenn sjómannasamtaka að ekki þyrfti annað til að leysa hnútinn varðandi Sólbak EA 7 en að Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, færi "að kjarasamningum og lögum". Hann segir samninginn sem gerður var við áhöfnina aðför að verkalýðsbaráttu í landinu.

Vegið að verkalýðshreyfingum
Brim og Iceland Express gera aðför að kjarasamningum að mati Alþýðusambands Íslands. Fyrirtæki eru sögð vera í stéttarfélagatukthúsi. Verkalýðsforystan segir þetta leiða til átaka.

Hindra löndun úr Sólbaki
Forystumenn sjómanna hafa komið í veg fyrir í allan dag að hægt sé að landa úr Sólbaki EA sem gerður er út af Brimi. Skipið kom til hafnar laust eftir hádegi en forystumenn sjómanna fóru niður að bryggju þegar það lagðist að og hafa þeir hindrað löndun úr skipinu.

Enn pattstaða við Akureyrarhöfn
Pattstaða ríkir enn við Akureyrarhöfn þar sem félagar úr Sjómannasambandinu hindra löndun úr Sólbaki EA. Sjómannasambandið segist verða kyrrt þar til forstjóri Brims tekur til baka sérsamning sem gerður var við áhöfnina.

Sjómannaforystan berst við Brim
Forysta sjómanna hindrar löndun úr skipinu Sólbaki. Hún ætlar að standa á hafnarbakkanum á Akureyri þar til kjör áhafnarinnar verða leiðrétt, segir Jónas Garðarsson formaður Sjómannafélags Reykjavíkur. Sólbakur kom úr sinni fyrstu veiðiferð eftir að áhöfnin skrifaði undir ráðningakjör í trássi við Sjómannasamband Íslands.

31 fundur án árangurs
Talnaútreikningur og umræður um tölur voru helstu viðfangsefni 31. fundar sjómanna og útvegsmanna hjá ríkissáttasemjara í gær.

Kennarar vilja launapottana burt
Launanefnd sveitarfélaganna bað um frest á fundi kennara upp úr klukkan sex í gærkvöldi. Launanefndin vildi fara yfir hugsanlegar leiðir til að mæta kröfu kennara um að fella svokallaða launapotta úr kjarasamningunum.
Ríkið leysi kennaradeilu
Stjórnarandstæðingar hvöttu til þess að ríkið greiddi fyrir lausn kennaradeilunnar í umræðum um stefnuræðu Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra á Alþingi í gær.

Sakna sveigjanleikans í starfinu
Við síðustu kjarasamninga var vinnutími kennara bundinn skólanum. Sá sveigjanleiki sem þeir höfðu hvarf. Kennara skortir aukinn undirbúningstíma til að auka gæði menntunar barnanna og hærri laun. </font /></b />

Enn er langt í land
Samninganefndir kennara og sveitarfélaga sátu á fundi síðdegis í gær og eru deilendur sammála um að örlítið hafi þokast í viðræðunum. Ekki er þó útlit fyrir að verkfallið leysist á næstunni. Nýr fundur verður haldinn klukkan eitt í dag.

Iðnaðarstörf flytjast úr landi
Plastprent flytur verkefni til Eystrasaltslanda þar sem launakostnaður er bara brot af því sem hér er. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir óstjórn Geirs Haarde fjármálaráðherra í launamálum hins opinbera íþyngja íslenskum iðnaði.

Fjöldaganga kennara og nema
Á annað þúsund kennarar og kennaranemar mættu við höfuðstöðvar Ríkissáttasemjara til að hvetja samningamenn sína þegar samningafundur var að hefjast þar í morgun. Síðan var haldið í fjöldagöngu niður í ráðhús þar sem Ólafur Loftsson, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, las upp svohljóðandi orðsendingu til borgaryfirvalda:

Samningamenn svartsýnir
Samningamenn kennara og samningamenn sveitarfélaganna virðast vera álíka svartsýnir á að nokkur árangur verði af samningafundi sem hófst klukkan níu hjá Ríkissáttasemjara eftir viku hlé á viðræðum. Hvorugur hefur boðað tilslakanir eða ný tilboð og sáttatillaga af hálfu Ríkissáttasemjara liggur ekki í loftinu.

Helmingur kennara fylkti liði
Samninganefndir grunnskólakennara og sveitarfélaga hittast aftur á morgun eftir sjö klukkustunda fund hjá ríkissáttasemjara í dag. Formaður Kennarasambandsins segir að þá muni koma í ljós hvort einhverjar glæður hafi kviknað sem hægt verði að blása lífi í.

Leikskólakennarar líka í viðræðum
Leikskólakennarar standa einnig í kjaraviðræðum við sveitarfélögin en meginkrafa þeirra er að fá sambærileg laun og aðrir kennarar.