Sveitarfélagið Horna­fjörður

Sveitarfélagið Horna­fjörður

Mannfjöldi: 2.589 (2025). Flatarmál: 6.309 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Höfn í Hornafirði, Hof, Nesjahverfi, Fagurhólsmýri.


Fréttamynd

Nýr í­þrótta­völlur vekur at­hygli í fá­mennri sveit

Nýjum íþróttamannvirkjum er jafnan vel fagnað meðal þeirra sem munu njóta þeirra en við Hrollaugsstaði í Suðursveit er verið er að taka í notkun nýjan fjölnota íþróttavöll. Sveitin er mjög fámenn og eru þar innan við tuttugu heimili og því vekur nýi völlurinn mikla athygli.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sóttu öku­mann sem slasaðist í mótorhjólaslysi

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á tólfta tímanum í gærkvöld, þriðjudag, til þess að sækja ökumann sem hafði lent í bifhjólaslysi nærri Höfn í Hornafirði. Þyrluáhöfnin flaug til móts við sjúkrabíl og sótti ökumanninn við Skaftafell í Öræfum á Suðausturlandi.

Innlent
Fréttamynd

Samningur um Ísa­fjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair

Ráðamenn Icelandair hafa fallið frá þeirri ákvörðun að hætta rekstri styttri Dash 8-innanlandsvéla sinna eftir að samningar tókust við Vegagerðina um framhald Ísafjarðarflugs. Samið var um nærri helmings lækkun frá upphaflegu tilboði Icelandair en á móti verður dregið úr tíðni flugferða.

Innlent
Fréttamynd

Ás­grímur Halldórs­son slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave

„Danirnir höfðu engar áhyggjur af þessu. Það er það eina sem ég veit,“ segir Ægir Birgis­son, skip­stjóri Ás­gríms Halldórs­sonar, nýs upp­sjávar­skips, sem er í smíðum á Skagen í Dan­mörku og slitnaði frá bryggju þegar stormurinn Dave gekk með látum yfir Jót­land á páska­dag.

Innlent
Fréttamynd

Stöðvuðu ferða­menn sem reyndust ekkert grun­sam­legir

Lögreglan á Austurlandi stöðvaði hóp erlendra ferðamanna á leið til Egilsstaða í gær þar sem lögreglu höfðu borist ábendingar um þar væri á ferð hópurinn sem hefði farið ránshendi um verslun í Skaftafelli. Sá hópur reyndist aftur á móti ekki hafa neitt þýfi meðferðis.

Innlent
Fréttamynd

Ferða­mennirnir þaul­vanir og breytt lands­lag

Óprúttnir aðilar fóru ránshendi um verslunina Freysnes í gær. Eigandi verslunarinnar segir þetta ekki í fyrsta sinn sem eitthvað er tekið ófrjálsri hendi þar. Fólkið hafi verið þaulvant og breytt landslag blasi við á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Féll í Jökuls­ár­lón

Maður féll í Jökulsárlón og er mikill viðbúnaður á svæðinu. Vísi barst ábending frá leiðsögumanni um að viðbragðsaðilar væru á vettvangi við Jökulsárlón vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði

Eftir tvö vonbrigðaár í loðnunni bárust loks gleðitíðindi í dag þegar Hafrannsóknastofnun lagði til fimmföldun loðnukvótans. Það þýðir að loðnuvertíðin næstu tvo mánuði gæti skilað þjóðarbúinu 35 til 40 milljarða króna útflutningstekjum, að mati forstjóra Síldarvinnslunnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Spenna vegna nýs mats á stærð loðnu­stofnsins

Sjávarútvegurinn bíður nú í ofvæni eftir nýju mati Hafrannsóknastofnunar á stærð loðnustofnsins. Fréttir sem bárust af loðnuleitinni um helgina juku mönnum bjartsýni um meiri loðnukvóta en urðu líka til þess að hlutabréf sjávarútvegsfyrirtækja hækkuðu í verði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Svarar gagn­rýni vegna um­deildra gistihýsa í Skafta­felli

Uppbygging Arctic Adventures á þrettán gistihýsum í Skaftafelli er í fullu samræmi við lög og reglur auk þess sem húsin í núverandi mynd endurspegla ekki endanlega ásýnd þeirra þar sem þau eru enn á byggingarstigi. Þá ku verkefnið vera í fullu samræmi við gildandi skipulag sveitarfélagsins og þau leyfi sem fyrir liggja vegna verkefnisins. Þetta segir forstjóri Arctic Adventures sem svarar gagnrýni sem fram hefur komið vegna uppbyggingar húsanna, en lögð hefur verið fram stjórnsýslukæra vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Fékk afa sinn með sér á skóla­bekk

Guðni Ágústsson fyrrverandi alþingismaður var ekki lengi að hugsa sig um þegar barnabarn hans bað hann um að koma með sér í íslenskuáfanga í framhaldsskóla og skellti sér með honum í námið. Þeir félagar ætla að skiptast á þekkingu og búast við háum einkunnum.

Innlent
Fréttamynd

Klappar fyrir ferða­löngunum í ó­veðrinu

Tugir sátu fastir í bílum sínum klukkustundum saman þegar ofsaveður reið yfir á þjóðvegi 1 milli Jökulsárlóns og Skaftafells í gær. Björgunarsveitir komu um tvö hundruð manns til aðstoðar. Björgunarsveitarmaður ber ferðalanga lofi sem hafi þurft að dúsa í bílum sínum í lengri tíma við erfiðar aðstæður.

Innlent
Fréttamynd

Hringvegurinn opinn á ný

Opnað hefur verið fyrir umferð um hringveginum á milli Kálfafells og Jökulsárslóns. Veginum var lokað vegna hríðarveðurs sem gekk þar yfir í gær og í nótt.

Innlent