Skagafjörður

Þurfa að kunna íslensku til að komast í hestafræði á Hólum
Um fjörutíu prósent nemenda sem komast að í hestafræði við Háskólann á Hólum eru útlendingar, og það þrátt fyrir að það sé inntökuskilyrði að geta talað íslensku. Rektor segir skólann útskrifa að minnsta kosti tíu sendiherra á hverju vori.

Um 300 hross í Laufskálarétt í dag
Um þrjú þúsund manns eru nú í Laufskálarétt í Hjaltadal í Skagafirði en hrossin í réttinni eru þó ekki nema um þrjú hundruð. Dagurinn endar á réttarballi í kvöld.

Segir kórkápu biskups algjört listaverk og þvílíkan heiður að fá að bera hana
Forláta biskupskápa Hólastiftis, eftirgerð kórkápu Jóns Arasonar, hefur núna skipt um herðar, með vígslu nýs Hólabiskups. Solveig Lára Guðmundsdóttir, fráfarandi vígslubiskup, segir það hafa verið mikinn heiður að fá að bera kórkápuna enda sé hún algjört listaverk.

Nemendur flykkjast heim að Hólum að læra fiskeldi
Sprenging hefur orðið í fjölda nemenda í fiskeldisnámi við Háskólann á Hólum og stunda núna um áttatíu manns nám í faginu. Samtímis fer þar fram rannsóknar- og kynbótastarf í fiskeldi.

Segjast hafa Húnvetninga í vinnu til að halda friðinn
Húnvetningar sjá fram á miklar samgöngubætur með fimmtán kílómetra vegagerð í Refasveit. Þetta er stærsta verk sem unnið er að á Norðurlandi vestra um þessar mundir, upp á einn og hálfan milljarð króna. Það eru hins vegar Skagfirðingar sem annast vegagerðina.

Flottur harmoníkuleikari úr Skagafirði
Einn efnilegasti og flottasti harmoníkuleikari landsins, Jón Þorsteinn Reynisson, sem er úr Skagafirði en býr á Akureyri hefur nú lokið framhaldsnámi við Konunglega danska tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn í harmonikuleik. Hann spilar á takkaharmonikku.

Stíflan sem sökkti heilum dal og eyddi sjö bæjum telst afturkræf
Heilum dal var sökkt og sjö sveitabæir fóru í eyði með Skeiðsfossvirkjun sem reist var til að rafvæða Siglufjörð. Stöðvarstjórinn, sem brátt lætur af störfum eftir yfir fjörutíu ára starf við virkjunina, segir að svona yrði örugglega ekki gert í dag.

Fólki fjölgar í Skagafirði, lóðir rjúka út og tugir íbúða í smíðum
Gróska er í húsbyggingum í Skagafirði og eru yfir fimmtíu íbúðir í smíðum um þessar mundir víðsvegar um sveitarfélagið. Hitaveita, ljósleiðari og leikskólapláss eru galdurinn, að sögn sveitarstjórans.

Rækta eitt óvenjulegasta afbrigði íslenska hestsins
Litförótt heitir eitt óvenjulegasta litaafbrigði íslenska hestsins en í því felst að hesturinn skiptir litum fjórum sinnum á ári. Litaafbrigðið var talið í hættu á að deyja út þegar hrossabændur hófu að reyna að bjarga því.

Tindastóll upp í Bestu deildina
Tindastóll vann öruggan 5-0 útisigur á Augnabliki í Kópavogi í Lengjudeild kvenna í kvöld. Sigurinn þýðir að Tindastóll er komið aftur upp í Bestu deild kvenna eftir aðeins ár í Lengjudeildinni.

„Þetta er svo langt frá því að vera allt í lagi“
Siglufjarðarvegur er óboðlegur farartálmi að sögn formanns bæjarráðs Fjallabyggðar sem telur veginn sjálfan vera á fleygiferð. Hann segir að íbúum sé illa við að keyra veginn, en þeir hafi ekki annað val.

Tekur við starfi framkvæmdastjóra SSNV
Katrín M. Guðjónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.

Sýna geitur í húsdýragarði og selja gestum svo geitaost beint frá býli
Bændur á einu stærsta sauðfjárbúi við austanverðan Skagafjörð eru búnir að stofna húsdýragarð og bjóða gestum að kaupa geitaost beint frá býli. Brúnastaðir í Fljótum eru fyrsti og eini bær landsins sem framleiðir eigin geitaosta.

Segir lúxusferðamenn þýða minni átroðning en miklu meiri tekjur
Lúxushótel í Fljótum er orðið næst fjölmennasta fyrirtæki Skagafjarðar á eftir Kaupfélaginu. Hótelstjórinn hvetur til þess að Íslendingar leggi meiri áherslu á að fá efnaðri ferðamenn til landsins, það þýði minni átroðning en miklu meiri tekjur.

Samúðarkveðjur berast víða að til íbúa Blönduóss
Samúðarkveðjur hafa borist víða að til íbúa Blönduóss eftir voveiflega atburðinn sem átti sér stað þar í gærmorgun. Nú síðast sendi Guðni Th. Jóhannesson samúðarkveðju til íbúa en einnig hafa borist kveðjur frá Katrínu Jakobsdóttir forsætisáðherra og ýmsum sveitarfélögum.

Hestar í torfhúsi á Lýtingsstöðum í Skagafirði
Fallegt torfhesthús er á bænum Lýtingsstöðum í Skagafirði þar sem nokkrir hestar geta verið inni. Þar er líka mikið af gömlum reiðtygjum, sem gestir og gangandi geta fengið að skoða. Íslenski fjárhundurinn er líka í hávegum hafður á bænum.

Eftirmaður Baldurs fundinn
Tindastóll, silfurliðs Subway-deildar karla á síðasta tímabili, hefur ráðið nýjan þjálfara. Sá heitir Vladimir Anzulovic og er 44 ára Króati.

Draumadagur í Drangey hjá Áslaugu Örnu og vinum
Veðurblíðan og náttúrufegurðin í Skagafirðinum virtust fara vel með Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, nýsköpunarráðherra, og stjörnum prýddan vinahóp hennar í skemmtiferð þeirra í vikunni.

Björguðu hundi sem féll um tuttugu metra
Björgunarsveitir á Sauðárkróki og Mývatni voru kallaðar út með stuttu millibili á áttunda tímanum í kvöld. Fyrsta útkallið sneri að hundi sem lenti féll um tuttugu metra fram af kletti í Skagafirði og hið seinna var vegna mótorhjólaslys við afleggjarann að Herðubreiðalindum.

LeBron skoðaði Drangey með fyrirliða Tindastóls
Stórstjarnan LeBron James virðist heldur betur hafa notið lífsins á Ísland ef marka má fréttir og myndir af kappanum hér á landi. Nýjustu myndirnar sýna LeBron og Helga Rafn Viggósson, fyrirliða körfuknattsleiksliðs Tindastóls, í mesta bróðerni.

Séra Gísli nýr vígslubiskup að Hólum
Séra Gísli Gunnarsson verður nýr vígslubiskup að Hólum eftir að úrslit vígslubiskupskosninga urðu ljós í dag.

Sameinað Sveitarfélag Skagafjarðar og Akrahrepps fær nafn
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á fundi 13. júní síðastliðinn að nýtt nafn sameinaðs Sveitarfélags Skagafjarðar og Akrahrepps skuli bera nafnið Skagafjörður.

„Kaupfélag Skagfirðinga virðist í sérstökum verndarflokki hjá þessari ríkisstjórn“
Alþingi samþykkti í dag þriðja áfanga rammaáætlunar með 34 atkvæðum. Sjö greiddu atkvæði á móti en fimmtán sátu hjá. Bjarni Jónsson í Vinstri grænum greiddi atkvæði gegn áætluninni, einn stjórnarliða.

Klökknaði í ræðustól þegar hann lýsti andstöðu við rammaáætlun
Stjórnarþingmaðurinn Bjarni Jónsson klöknaði í ræðustól þegar hann lýsti andstöðu sinni við breytingar á rammaáætlun í umræðum um málið á Alþingi nú síðdegis. Hann sagði dapurlegt að sterkari náttúruverndartaug væri ekki að finna í samstarfsflokkum Vinstri grænna í ríkisstjórn.

Vinstri græn í Skagafirði krefjast þess að Jökulárnar verði settar í verndarflokk
Vinstri græn í Skagafirði sendu frá sér yfirlýsingu í dag þar sem þau krefjast þess að farið verði eftir faglegu mati rammaáætlunar og leggjast gegn því að Jökulárnar í Skagafirði verði færðar úr verndarflokki yfir í biðflokk.

Gera lokatilraun til að halda Héraðsvötnum og Kjalöldum í vernd
Þingmenn þriggja minnihlutaflokka munu í dag leggja fram breytingartillögu við Rammaáætlun til að reyna að halda stórum virkjanakostum í verndarflokki. Náttúruverndarsinnar munu mótmæla áformum ríkisstjórnarinnar í dag og segja þau gera áratugalanga náttúruverndarbaráttu að engu.

Héraðsvötn færð í biðflokk: „Ég er mjög dapur yfir þessari niðurstöðu sem ég styð ekki“
Þingmaður Vinstri grænna ritar ekki undir álit meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar um tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Hann segir niðurstöðu meirihlutans vera sér mikil vonbrigði og þar standi hæst að Héraðsvötn í Skagafirði hafi verið færð í biðflokk úr verndunarflokki.

Kaupfélag Skagfirðinga kaupir Gunnars majónes
Kaupfélag Skagfirðinga hefur fest kaup á Gunnars ehf., sem er hvað þekktast fyrir majónesframleiðslu. Fyrirtækið hefur undanfarin ár verið rekið af Kleópötru Kristbjörgu.

Að minnsta kosti bið fram á haust eftir forgangsröðun jarðganga
Það ætti að koma í ljós á næsta löggjafarþingi hvaða jarðgangakostum verður forgangsraðað. Þá mun þingið taka fyrir þingsályktunartillögu um nýja samgönguáætlun fyrir árin 2023-2037 þar sem jarðgangakostum verður forgangsraðað

Mark Zuckerberg sýnir myndir frá Íslandsreisunni
Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, virðist hafa notið dvalarinnar á Íslandi vel ef marka má myndir sem hann deildi á samfélagsmiðlinum í kvöld.