Stykkishólmur

Daði lofaði afa sínum sigri í Eurovision í afmælisgjöf
Daði Freyr Pétursson, Eurovision-fulltrúi Íslendinga þetta árið, var heldur betur búinn að lofa afa sínum Björgvini Kristjáni Þorvarðarsyni, veglegri afmælisgjöf þetta árið.

Vill færa Eldfjallasafnið úr Stykkishólmi á Reykjanes
Eldgosið í Geldingadölum markar mikil tímamót í jarðsögunni þar sem vísindamenn fá í fyrsta skipti innsýn í möttulinn undir Íslandi. Þetta sagði Haraldur Sigurðsson, eldfjallafræðingur, í Víglínunni í dag.

Telja að Baldur gæti siglt á miðvikudag
Breiðafjarðarferjan Baldur gæti hafið siglingar á miðvikudag gangi allt að óskum með nýja túrbínu sem er væntanleg til landsins seint í kvöld.

„Gengur ekki að spila svona með mannslíf”
Bæjarstjóri Vesturbyggðar segir bilun farþegaferjunnar Baldurs í gær hafa verið kornið sem fyllti mælinn. Óboðlegt sé að spila með mannslíf með þessum hætti og kallar eftir tafarlausum úrbótum. Farþegi um borð segir fólk hafa orðið óttaslegið en sé komið með nóg af aðgerðarleysi.

Baldur kominn í höfn í Stykkishólmi
Breiðafjarðarferjan Baldur er komin í höfn í Stykkishólmi. Þar lenti hún skömmu fyrir klukkan tvö í dag eftir að hafa orðið vélarvana á Breiðafirði síðdegis í gær.

Þrjú þyrluútköll á einum degi
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út þrisvar sinnum í gær og áhöfnin á varðskipinu Þór einu sinni.

Baldur í togi til Stykkishólms
Áhöfn rannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar er komin með ferjuna Baldur í tog á Breiðafirði og hefur stefnan verið sett til hafnar í Stykkishólmi. Baldur varð vélarvana á Breiðafirði í dag um tíu sjómílur frá Stykkishólmi.

Ferjan Baldur vélarvana nærri Stykkishólmi
Vélarbilun hefur komið upp í Breiðafjarðarferjunni Baldri en skipið er statt um tíu sjómílur frá Stykkishólmi, mitt á milli Flateyjar og Stykkishólms. Um borð eru tuttugu farþegar auk átta manna áhafnar.

Guðni nýtti sér afléttingu áhorfendabanns og mætti á Vesturlandsslaginn
Áhorfendur máttu aftur mæta á íþróttaviðburði í gær og forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, nýtti tækifærið og skellti sér í Stykkishólm til að sjá leik Snæfells og Skallagríms í Domino's deild kvenna.

Vilja fá nýjan Baldur strax í siglingar yfir Breiðafjörð
Samgöngumálin brenna á Vestfirðingum sem aldrei fyrr. Umræðan hefur enn og aftur blossað upp eftir óhapp á Hjallahálsi um síðustu helgi þar sem vöruflutningabíll valt. Á sunnanverðum Vestfjörðum vilja samtök atvinnurekenda fá nýjan Baldur strax.

Eldfjallasafn Haraldar í Hólminum auglýst til sölu
Eldfjallasafnið í Stykkishólmi hefur verið auglýst til sölu en safninu fylgja allir þeir safnmunir sem Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur hafi komið sér upp síðustu áratugina.

Fjölskylda Covid-sjúklings af Landakoti forviða: „Þetta er ótrúlegt ábyrgðarleysi“
Fjölskylda Guðlaugs Jóns Bjarnasonar, sem er einn þeirra sjúklinga sem smitaðist af Covid-19 á Landakoti, er orðlaus yfir því hvernig staðið var að málum eftir að grunur kom upp um smit á stofnuninni.

Voru bestir á Íslandi fyrir áratug en taka nú ekki þátt: „Leiðinleg og erfið ákvörðun“
Tíu árum eftir að Snæfell varð Íslands- og bikarmeistari karla í körfubolta teflir félagið ekki fram meistaraflokki karla.

Snæfell fær þunga sekt
Körfuknattleiksdeild Snæfells fær þunga sekt fyrir að draga karlalið sitt úr keppni í 1. deild og útlit er fyrir að ekki komi lið inn í deildina í staðinn.

Snæfell hættir rétt fyrir mót | Erfiðleikar í rekstri og mönnun
Karlalið Snæfells, sem varð Íslands- og bikarmeistari í körfubolta fyrir tíu árum, hefur dregið lið sitt úr keppni í 1. deild en leiktíðin þar hefst á föstudagskvöld.

Símaklefi í hlutverki bakarís í Stykkishólmi
Til að koma í veg fyrir matarsóun í Stykkishólmi setur bakaríið Nesbrauð alla afganga dagsins í gamlan símaklefa við hlið bakarísins þar sem fólk getur verslað bakkelsi í honum eftir lokun bakaríssin. Mikil ánægja er með framtakið.

Ekki ástæða til að óttast en ástæða til að fara varlega
Íbúar í Stykkishólmi hafa verið að glíma við hópsýkingu kórónuveirunnar. Í fyrradag greindust sjö með veiruna og í gær greindust tveir aðrir til viðbótar. Á Vesturlandi öllu eru rúmlega hundrað manns í sóttkví.

Tveir greindust með veiruna í Stykkishólmi
Tveir greindust með kórónuveirusmit í Stykkishólmi í gær og eru því níu manns í einangrun í bænum.

Hætt við að veiran hafi náð fótfestu í nánu samfélagi
Þeir sjö sem greindust með covid-19 í hópsýkingu sem upp kom í Stykkishólmi voru ekki í sóttkví. Því er grunur um víðtækt samfélagssmit í bænum að sögn Jakobs Björgvins Jakobssonar, bæjarstjóra í Stykkishólmi.

Grípa til aðgerða vegna fjölda smita í Stykkishólmi
Sjö eru nú í einangrun með kórónuveiruna í Stykkishólmi en á Vesturlandi öllu eru ellefu með veiruna. Alls voru 18 í sóttkví í Stykkishólmi í gær en búist er við töluverðri fjölgun fólks í sóttkví eftir því sem störfum smitrakningarteymis vindur fram í dag. Umfangsmeiri skimun er í nú í undirbúningi í Stykkishólmi.

10,7 milljónir söfnuðust fyrir Berglindi: „Mun aldrei gleymast“
Söfnunin fyrir körfuknattleikskonuna Berglindi Gunnarsdóttur tókst frábærlega en hápunktur hennar var mjög vel heppnuð hlaupahátíð í bænum hennar Stykkishólmi um síðustu helgi.

Hressar og skemmtilegar nunnur í Stykkishólmi og Hafnarfirði
Nunnurnar í Stykkishólmi og Hafnarfirði gera mikið af því að hittast og eiga góða stund saman.

Æðardúnssöfnun á Íslandi til umfjöllunar hjá Business Insider
Æðardúnssöfnun á Íslandi er til umfjöllunar í nýjasta þætti Business Insider sem birtu er á YouTube.

Nýir lögreglubílar á Snæfellsnesi
Lögreglan á Vesturlandi tók í dag nýjar lögreglubifreiðar í notkun.

Baldur í togi og væntanlegur í höfn með kvöldinu
„Staðan er góð, hann er kominn í tog. Hringur SH153 er að draga hann og eru að vinna upp hraða. Þetta er að ganga vel miðað við allt,“ segir Gunnlaugur Grettisson hjá Sæferðum spurður um stöðuna á Breiðafjarðarferjunni Baldri sem bilaði við Flatey í gærkvöldi.

Ekki ljóst hve langan tíma mun taka að gera við Baldur
Bilun kom upp í Breiðafjarðarferjunni Baldri í gær sem varð þess valdandi að fjöldi fólks sat fast út í Flatey.

Haraldur segir ekkert benda til að skjálftarnir tengist eldvirkni
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir ekkert benda til að skjálftarnir núna út af Eyjafirði tengist eldvirkni. Fyrir átta árum taldi Haraldur miklar líkur á að skjálftahrina undan Eyjafirði í október 2012 tengdist því að kvika væri að brjóta sér leið upp í setlög á botni Eyjafjarðaráls.

Ákvörðun um stöðvun grásleppuveiða byggi ekki á vísindalegum grunni
Formaður atvinnuveganefndar telur að ákvörðunin byggi ekki á nægilega vísindalegum grunni og hvetur ráðherra til að endurskoða.

Snögg stöðvun grásleppuveiða mikið áfall fyrir sjómenn
„Þarna hefur sjávarútvegsráðuneytið sofið á verðinum um það að stöðva veiðarnar eða gefa út viðvörunarljós um að það væri að nálgast hámark og útfæra þá stöðvun svo að það væri tekið tillit til þeirra sem eru á veiðum. Þannig að menn væru með nokkuð jafn marga daga til sóknar,“ segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda.

Landsliðskona leggur skóna á hilluna
Gunnhildur Gunnarsdóttir, leikmaður Snæfells og íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, hefur tekið þá ákvörðun að hætta í körfuboltanum.