Ísafjarðarbær

Ærslabelgurinn líklega blásinn upp á morgun
Minjastofnun hefur gefið leyfi á að viðhaldsframkvæmdir tengdar belgnum fái að fara fram, svo lengi sem ekkert frekara jarðrask hlýst af þeim.

Allt loft úr ísfirska ærslabelgnum
Minjastofnun hefur farið þess á leit við Ísafjarðarbæ að viðgerðir á svokölluðum ærslabelg á Eyrartúni verði stöðvaðar.

Efast um tölurnar í dómnum
Bróðir fatlaðs manns sem var fórnarlamb þjófnaðar af hendi forstöðumanns hjá Ísafjarðarbæ dregur í efa að upplýsingarnar sem koma fram í dómi héraðsdóms yfir forstöðumanninum séu réttar.

Ungur drengur brenndist í Aðalvík á Hornströndum
Björgunarskipið Gísli Jóns frá Ísafirði hefur sinnt þremur útköllum síðastliðinn sólarhring. Nú síðast í Aðalvík eftir að tilkynning barst um að ungur drengur hafi brennst. Þá aðstoðuðu björgunarsveitir í Öræfum ferðamann sem hafði slasast og lent í sjálfheldu við Svínafellsjökul í dag.

Línubátur í togi til lands eftir að bilun kom upp í stýrisbúnaði
Bilun kom upp í stýrisbúnaði 15 tonna línubáts norður af Hornströndum rétt um klukkan 19 í kvöld. Áhöfnin átti því erfitt með að stýra bátnum, sem gerður er út frá Bolungarvík, og var því kallað eftir aðstoð björgunarsveita.

Strandveiðibátur strandaði í Súgandafirði
Björgunarsveit á Suðureyri var kölluð út um hálf fimm í dag vegna báts sem sigldi í strand utarlega í Súgandafirði.

Bæjarhátíðir haldnar um land allt
Nú fer í hönd ein stærsta ferðahelgi ársins en nóg er um að vera víða um land og eitthvað að finna fyrir alla fjölskylduna. Heilar sjö bæjarhátíðir fara fram helgina 6-.7. júlí í ár.

Milljónatuga lekatjón í sundlauginni
Lekatjón á þaki sundlaugar Flateyrar er metið á 53,3 milljónir króna.

Nafn starfsmanns Vegagerðarinnar sem lést
Maðurinn sem lést af slysförum þann 27. júní síðastliðinn þegar veghefill fór út af veginum upp á Ingjaldssandsvegi, Sandsheiði í Gerðhamarsdal, á Vestfjörðum hét Guðmundur S. Ásgeirsson.

Stal í þrjú ár af skjólstæðingum sínum á velferðarsviði
Starfsmaður á velferðarsviði Ísafjarðarbæjar, kona á fimmtugsaldri, hefur verið dæmd í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt í opinberu starfi og peningaþvætti.

Björgunarsveit í tvö útköll í Ísafjarðardjúpi
Björgunarsveit á Ísafirði var kölluð út í tvígang seinni partinn í dag vegna slysa í Ísafjarðardjúpi.

Vill verða ein af þeim bestu
Fyrir 12 árum lenti Arna Sigríður Albertsdóttir í skíðaslysi sem breytti lífi hennar. Hún lét mótlætið ekki stöðva sig og stundar handahjólreiðar af krafti í dag. Vellíðan sem fylgir íþróttinni veitir henni innblástur í að ná lengra.

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan mann í Látravík
TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, var kölluð út á tólfta tímanum í dag vegna slasaðs manns við Hornbjargsvita í Látravík.

Banaslys á Ingjaldssandsvegi
Stjórnandi veghefils sem var við störf á Ingjaldssandvegi á Sandheiði í Gerðhamradal á Vestfjörðum lést í gær þegar veghefillinn hafnaði utan vegar.

Vélarvana bátur við Maríuhorn í Jökulfjörðum
Búið er að koma farþegum bátsins heilum og höldnu aftur til Ísafjarðar.

Rannsakar reykvískar rætur sínar
Framundan er síðasta sýningarhelgi sýningar Gunnars Jónssonar GRÖF í D-sal Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu.

Kröfu um ógildingu leyfis til sjókvíaeldis í Dýrafirði hafnað
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur kveðið upp úrskurð og hafnað kröfu um að ógilda ákvörðun Matvælastofnunar frá 22. desember 2017 um að veita Artic Sea Farm hf. rekstrarleyfi fyrir 4.000 tonna ársframleiðslu á laxi eða regnbogasilungi í sjókvíum í Dýrafirði.

Lýðháskólinn á Flateyri vill ekki líkjast bóknámsskólum
Umsóknarfrestur við Lýðháskólann á Flateyri rennur út 15. júní en skólinn fagnar fjölbreytileikanum og styðst ekki við hefðbundna kennsluskrá.

Björgunin á Ísafirði: „Hann hékk þarna á klettasyllu og gat sig hvergi hreyft“
Mennirnir höfðu orðið viðskila. Erfitt reyndist að staðsetja þá nákvæmlega en þeir voru í um sjö hundruð metra hæð.

Þyrlan kölluð út vegna manna í sjálfheldu í Naustahvilft
Voru 700 metra yfir sjávarmáli og í miklum bratta.

Ólafur Ragnar kaupir æskuheimili sitt á Ísafirði
Um lítið annað rætt á Ísafirði þessa dagana.

Ísafjarðarbær þarfnast ekki fleiri vina í bili
Bæjarstjóri Ustrzyki Dolne í Póllandi óskaði formlega eftir vinabæjarsamstarfi við Ísafjarðarbæ. Vitnaði í J.K. Rowling í bréfinu og fór með himinskautum í lýsingum á fjallabænum.

Leita leiða til að fjármagna bætt aðgengi að Ísafjarðarbíói fyrir hreyfihamlaða
Umræða um aðgengi hreyfihamlaðra að Alþýðuhúsi Ísfirðinga hefur verið brennidepli í dag eftir að fjórir ungir Vestfirðingar vöktu athygli á málinu.

Færeyski forstjórinn bætti rör frítt
Björgunarskipi Ísfirðinga, Gísla Jóns, var fagnað í nýrri heimahöfn sinni um hádegi í gær. Það kom frá Bodö í Noregi. Stýrimaður á heimstíminu var Ásgeir Guðbjartsson.

Dúxinn á Ísafirði kom öllum á óvart með að bresta í söng
Pétur Ernir Svavarsson kom foreldrum sínum í opna skjöldu.

Tíu sinnum líklegra að íbúar á hættusvæði C deyi í snjóflóði en í bílslysi
Enn á eftir að koma upp fullnægjandi snjóflóðavörnum sem verja myndu um 130 íbúðir á Austurlandi og 80 íbúðir á Vestfjörðum þar sem mesta hættan stafar af ofanflóðum, á hættusvæði C.

Næstum þriðjungur útskriftarnemenda Lýðháskólans á Flateyri vill vera áfram á svæðinu
28 nemendur útskrifaðir reynslunni ríkari.

171 hús enn í snjóflóðahættu
Þrátt fyrir að áætlað hafi verið að ljúka uppbyggingu snjóflóðavarna fyrir árið 2010 á enn eftir að reisa tæplega helming varnarvirkjanna. Ofanflóðasérfræðingar og forsvarsmenn bæjarfélaga á áhættusvæðum hafa sent áskorun til ríkisstjórnarinnar að ljúka verkinu á næstu tíu árum enda sé enn hundraðsjötíuogeitt hýbýli á hættusvæði víðs vegar um landið.

Barátta bæjarstjóranna við Google bar árangur
Ísafjarðarbær og Bolungarvík eru ekki lengur kafin snjó á kortavef tæknirisans Google.

Fjölbreytt hátíðahöld
Hátíðahöld í tilefni 1. maí verða í meira en 30 sveitarfélögum samkvæmt tilkynningu frá ASÍ. Í Reykjavík verður gengið frá Hlemmi niður á Ingólfstorg þar sem útifundur verður. Fer gangan af stað klukkan 13.30.