
Vinnumarkaður

„Ríkið þarf að gera eitthvað mikið og það þarf að vera stórt“
Gríðarlegur vandi blasir við ferðaþjónustu hér á landi. Forráðamenn kalla eftir sértækum aðgerðum stjórnvald annars stefni í fjöldagjaldþrot.

Er tími fjarvinnu runninn upp?
Undanfarnar vikur hafa landsmenn uppgötvað ýmislegt merkilegt. Nú vita allir hvað Teams og Zoom er og flestir hafa lofsamað tímasparnaðinn sem fólginn er í því að þurfa hvorki að ferðast á né af fundum.

Segir að meirihluti ferðaþjónustufyrirtækja gæti farið í þrot grípi stjórnvöld ekki til aðgerða
Stjórnvöld þurfa að grípa til sértækra aðgerða fyrir ferðaþjónustuna á næstu vikum eigi meirihluti fyrirtækja í greininni ekki að fara í þrot, segir formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.

Ljóst að atvinnuleysi verði hátt út þetta ár og inn í það næsta
Hagfræðingur hjá ASÍ á von á því að það fari að draga úr atvinnuleysi eftir aprílmánuð. Atvinnuleysi verði þó áfram þónokkuð út árið og inn í það næsta.

Tveir óvinir
Í dag er veiran óvinurinn. En hún er ekki eini óvinurinn. Atvinnuleysi er einnig óvinur okkar þessa dagana. Við þann óvin getur einnig verið erfitt að eiga við. Atvinnuleysi fer nú hratt vaxandi og stefnir í að vera tvöfalt meira en í bankahruninu.

Hafna því að hafa sakað Pétur Þór um kynferðislega áreitni á vinnustað
Stjórn Eyþings hefur hafnað ásökunum og staðhæfingum Péturs Þórs Jónassonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra, um starfslok hans sem fram komu í viðtali við hann fyrr í vikunni.

Að hugsa í tækifærum og lausnum
Samkvæmt nýlegri skoðanakönnun er sennilegt að um 40 % námsmanna á Íslandi í framhaldsnámi fái ekki sumarvinnu í ár og þannig er fjárhagur þeirra er í uppnámi og áframhaldandi nám í hættu.

Fleiri uppsagnir um mánaðamótin
Forstjóri Icelandair segir óhjákvæmilegt að grípa til frekari uppsagna á næstu vikum. Ráðist verður í hlutafjárútboð á næstunni

Gera ráð fyrir 16,9% atvinnuleysi í apríl
Atvinnuleysi á Íslandi fór vaxandi framan af marsmánuði og mældist 9,2% hafði atvinnuleysi því aukist úr 5,0% í febrúar. Gera má ráð fyrir því vöxturinn haldi áfram í apríl mánuði.

Sorg í atvinnulífi
Sorgarstigin fimm í samhengi við sorg í viðskiptum og rekstri.

Til greina komi að skera flotann niður um helming
Icelandair hefur undanfarna daga rætt við stærstu hluthafa félagsins um að koma með eigið fé í reksturinn.

Beina því til fyrirtækja að fylgja túlkun Vinnumálastofnunar
Samtök atvinnulífsins munu framvegis beina þeim tilmælum til aðildarfyrirtækja að haga uppsögnum og samningum um hlutabótaleiðina svokölluðu til samræmis við túlkun Vinnumálastofnunar.

Eyþing óskaði eftir leynd um dómsátt eftir uppsögn framkvæmdastjóra
Pétur Þór Jónasson fékk tæpar 15 milljónir króna í bætur vegna þess sem hann taldi ólöglega uppsögn, eftir að dómsátt var gerð í máli hans fyrr á árinu.

Atvinnuleysi gæti náð hæstu hæðum í apríl
Búast má við því að atvinnuleysi verðið allt að fimmtán prósent í þessum mánuði. Ef það gerist yrði það mesta atvinnuleysi sem mælst hefur.

Fer ekki saman að segja fólki upp og nýta hlutabótaúrræði á sama tíma segir forstjóri Vinnumálastofnunar
Forstjóri Vinnumálastofnunar segir alls ekki fara saman að segja upp starfsfólki og nýta hlutabótaúrræði stjórnvalda á uppsagnartímanum. Fyrirtæki sem hugsanlega hafi miskilið þetta eru hvött til að draga uppsagnir til baka.

Rekstur í þrot: Algengt í smærri fyrirtækjum að eigendur hafi veitt veð eða aðrar ábyrgðir
Pétur Steinn Guðmundsson lögfræðingur fer yfir ábyrgð stjórnarmanna á vörslusköttum og öðrum skuldum. Hann segir algengt í minni félögum að eigendur hafi veitt veð eða aðrar ábyrgðir vegna lánveitinga.

Hvetja fyrirtæki sem hafa „misskilið reglurnar“ til að draga uppsagnir til baka
Félags- og barnamálaráðherra segir það vera skýrt markmið laga um hlutaatvinnuleysisbætur að viðhalda ráðningarsambandi launþega og atvinnurekenda.

„Þeir sem hafa miklar fjárhagsáhyggjur eru sjö sinnum líklegri til að skilgreinast í kulnun“
Gallup hefur mælt fjárhagsáhyggjur frá bankahruni og mælingar sýna að þeir sem eru með fjárhagsáhyggjur eða ná ekki endum saman eru meðal annars líklegri til að vera í andlegu ójafnvægi, upplifa svefnleysi, pirring, svima, vöðvabólgu og bakverki. Þá eru þeir sem eru með miklar fjárhagsáhyggjur sjö sinnum líklegri til að verða fyrir kulnun.

Fjárhagsáhyggjur eru mesti kvíðinn, bitna á öllu og afleiðingarnar oft alvarlegar
„Með aukinni fjárhagslegri streitu, aukast líkur á samskiptavandamálum, bæði á vinnustað en einnig í persónulega lífinu. Álagið getur verið mikið á hjónabandið. Auknar líkur eru á heimilisofbeldi og skilnuðum sömuleiðis,“ segir Haukur Sigurðsson sálfræðingur.

Aðilar vinnumarkaðarins ræða álitaefni sem snúa að hlutabótaúrræðinu
Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins, Alþýðusambands Íslands og Vinnumálastofnunar hafa í dag fundað um álitaefni sem snýr að því hvort gera megi samning um hlutaatvinnuleysisbætur á uppsagnartíma.

Reikningar hlaðast upp á meðan þau mega ekki vinna
Þrátt fyrir að hárgreiðslu- og snyrtistofur verði opnaðar í byrjun maí hafa þeir sem þar starfa áhyggjur af því að erfitt verði að vinna sig upp úr tekjutapinu.

Securitas segir upp starfsfólki en nýtir hlutabótaúrræði á uppsagnartímanum
Vinnumálastofnun og Alþýðusamband Íslands segja þessa leið ekki standast lög um hlutaatvinnuleysisbætur.

40% stúdenta við HÍ ekki komnir með vinnu í sumar
Forseti Stúdentaráðs segir það skýlausa kröfu ráðsins að stúdentum verði veittur réttur til atvinnuleysisbóta.

Algjört tekjufall hjá leiðsögumönnum og takmarkaðar bætur
Leiðsögumenn lenda milli skips og bryggju þegar kemur að atvinnuleysisbótum eftir að öll verkefni þeirra þurrkuðust út af borðinu upp úr miðjum mars.

Ríflega 30 þúsund manns hafa sótt um hlutabætur
Yfir 30 þúsund manns hafa sótt um hlutabætur vegna minnkaðs starfshlutfalls en flestar umsóknirnar eru úr ferðaþjónustunni. Úr atvinnugreininni hafa yfir 12 þúsund manns sótt um bætur og yfir 6 þúsund úr verslun og vöruflutningum.

Vinnumálastofnun víki frá aldursskilyrðum vegna atvinnuleysisbóta
Félags- og Barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, hefur óskað eftir því að Vinnumálastofnun víki frá aldursskilyrðum laga um atvinnuleysistryggingar

Byrjuðu að greiða út styrki í morgun og eru enn að
Næstum 47 þúsund einstaklingar eru skráðir atvinnulausir að hluta eða fullu.

Einn möguleikinn að loka álverinu í tvö ár
Rio Tinto skoðar nú þann möguleika að loka álverinu í Straumsvík í tvö ár til að draga úr tapi af rekstri þess.

„Þetta er mjög djúp kreppa“
90% aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins hafa gripið til hagræðingaraðgerða vegna kórónuveirufaraldursins og útlit er fyrir að tekjur þeirra muni dragast saman um meira en helming.

Ekki í boði að gera ekki neitt
Ekkert liggur fyrir um það hvort til greina komi að útvíkka löggjöf um laun í sóttkví að sögn félags- og barnamálaráðherra. Forseti Alþýðusambands Íslands segir nauðsynlegt að réttarstaða viðkvæmra hópa verði tryggð.